Fleiri fréttir

Leita leiða til að nýta regnvatn

Leita á leiða til að nýta regnvatn í meira mæli. Stærstum hluta þess er nú veitt í skólp og út í sjó þó hagkvæmara sé að endurnýta það til að fegra eða spara. Þetta segir dósent í umhverfisverkfræði sem vinnur að því að finna blágrænar lausnir.

Flugkappar í útsýnisflugi með Catalina flugbáti

Þrír flugkappar fengu að fara í útsýnisflug með Catalina flugbáti yfir Reykjavík í dag. Kapparnir eiga það sameiginlegt að hafa flogið slíkum vélum þegar þær voru notaðar til farþegaflugs hér á landi á árunum eftir stríð.

Nýstárlegt viðvörunarkerfi gæti bjargað mannslífum

Viðvörunarkerfi sem gerir Neyðarlínunni kleyft að senda skilaboð í farsíma fólks á hættusvæðum, einungis nokkrum mínútum eftir að hættu er vart, verður tekið í notkun á þriðjudag. Tæknin skiptir sköpum og getur bjargað mannslífum.

Borgen vann BAFTA verðlaunin

Danski sjónvarpsþátturinn Borgen, sem er mörgum Íslendingum kunnur, vann hin virtu Bafta verðlaun í dag í flokknum besti sjónvarpsþátturinn. Verðlaunin voru veitt í Royal Festival Hall í Themsen í Lundúnum í dag. Þátturinn fékk einnig verðlaun í flokknum besti handritshöfundur, eftir því sem danska ríkisútvarpið greinir frá. Aðrir þættir sem voru tilnefndir í flokknum besti sjónvarpsþátturinn var Forbrydelsen 2, The Slap og Modern Family sem er sýndur á Stöð 2.

Segir stjórnarandstöðu beita nýjum aðferðum í málþófi

Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að þingfundir gætu orðið vel fram á sumar. Hann segir að eðli málþófsins hafi breyst á þinginu. Stjórnarandstaðan hafi viðhaft ný vinnubrögð í þessum efnum sem tefji fyrir öllu þingstarfi.

Lögreglumennirnir höfðu frumkvæði að því að veita þjónustu gegn greiðslu

Lögreglumenn sem unnu fyrir þrotabú Milestone samhliða störfum sínum hjá lögreglunni höfðu sjálfir frumkvæði að því að veita þrotabúinu þjónustu gegn greiðslu. Hátt verð sem mennirnir rukkuðu kom skiptastjóra Milestone í opna skjöldu. Mennirnir líta svo á að þeir hafi aðeins unnið með gögn sem þegar tilheyrðu þrotabúinu.

Meirihluti Íslendinga hlynntur staðgöngumæðrun

Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga er fylgjandi því að staðgöngumæðrun verði leyfð hér á landi. Andstaðan er mest hjá kjósendum Vinstri Grænna en minnst hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins.

Kosningamiðstöð Þóru opnar á morgun

Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í Hvítasunnu, mánudaginn 28. maí.

Hálf lamaður eftir umræðu um Vaðlaheiðargöng

Bæjastjórinn á Akureyri er ekki vongóður um framtíð Vaðlaheiðarganga. Hann segist vera hálf lamaður eftir að hafa fylgst með umræðunni um framkvæmdina í þinginu sem hann segir afar ómálefnalega.

Neyðarfundur í Öryggisráðinu

Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna mun funda seinna í dag um stöðu mála í Sýrlandi. Atburðir í borginni Houla í Homs-héraði síðustu daga eru megin ástæða fundarins. Að minnsta kosti 90 létust í árásum stjórnarhersins á borgina í gær að sögn andspyrnuhópa í landinu.

Fyrrum nasisti lést í Bæjaralandi

Fyrrverandi nasistinn Klaas Carel Faber lést í Bæjaralandi í Þýskalandi í dag, níræður að aldri. Faber, sem var af hollensku bergi brotinn, hafði búið í Þýskalandi síðan hann slapp úr fangelsi í Hollandi.

Eldsvoði í París

Slökkviliðsmenn berjast nú við eldsvoða í í sjö hæða byggingu í hjarta Parísar. Talið er að um 40 manns hafi verið í byggingunni þegar eldurinn braust út.

Jokevision 2012 - íslenskir piltar fara á kostum

Myndband sem félagarnir Ágúst Elí Ásgeirsson og Jakob van Oosterhout gerðu hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum. Strákarnir eru 15 ára gamlir en þeir reka fyrirtækið JÁ Myndir.

Ligitu enn leitað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára, frá Lettlandi.

Drusluganga í Brasilíu

Þúsundir léttklæddra kvenna mótmæltu kynbundnu ofbeldi í Brasilíu í gær en druslugöngur fóru fram víðsvegar um landið.

Þýskaland gaf lýðræðinu stig í Eurovision

Þýski kynnirinn í Eurovision gaf lýðræðinu stig í gær þegar hann talaði um mikilvægi þess og sagði Evrópu fylgjast með gangi mála í Aserbaídjan. Svíar sem sigruðu með yfirburðum virðast vera í vandræðum með að finna vænlegan stað til að halda keppnina að ári liðnu.

Jónatan fundinn

Jónatan litli sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir fyrr í dag er fundinn. Haft var upp á honum í Greniteig í Keflavík. Jónatan hafði þar hitt pilt á svipuðum aldri.

Par villtist af leið í Þórsmörk

Björgunarsveitir af Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til leitar að pari sem var á göngu yfir Fimmvörðuháls en villtist á leið sinni niður í Þórsmörk.

Þögnin er himinhrópandi afstaða

Evrópusambandið er stærsta mál í sögu íslenska lýðveldisins, að mati Ólafs Ragnars Grímssonar . Hann telur að forsetinn eigi ekki bara fara í gönguferðir og hugsa. Stígur Helgason hitti hann í vikunni og spurði meðal annars um skuldavanda heimilanna.

"Ég verð forseti fólksins"

"Þau völd forsetans sem sett voru í stjórnarskrá á sínum tíma er vald fólksins, ekki forsetans. Lýðræði þýðir beinlínis að fólkið ræður. Þó svo að þingræði sé hér til staðar þá hefur fólkið völd í gegnum forsetann. Fólkið framselur vald sitt til hans og hann talar fyrir þau."

Handtökur eftir skotárás í Manchester

Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við skotárás sem gerð var á krá í Manchester á föstudag þar sem karlmaður lést og þrír særðust.

Fjölskylda lést í Afganistan

Átta manna fjölskylda, sex börn móðir og faðir létust í loftárás Nató í austurhluta Paktia-héraðs í Afganistan í gær.

Lady Gaga aflýsir tónleikum

Söngkonan Lady Gaga hefur ákveðið að aflýsa fyrirhuguðum tónleikum í Indónesíu eftir að henni bárust hótanir frá öfgafullum múslimum.

Uppfærði Facebook áður en skotárás hófst

Finnski pilturinn sem skaut tvo til bana og særði sjö í bænum Hyvinkää í sunnanverðu Finnland aðfaranótt laugardags hefur enn ekki viljað útskýra hvers vegna hann framdi verknaðinn.

Bilun í netkerfi Símans

Miðlæg bilun er í IP-neti Símans. Þetta hefur haft áhrif á internetsamband innanlands, sem og tengingu internets frá útlöndum. Bilun hefur einnig haft áhrif á fyrirtækjatengingar í IP-neti símans.

Telur umbrot í Krýsuvík geta leitt til sprungugoss í Heiðmörk

Haraldur Sigurðsson, einn þekktasti og virtasti eldfjallafræðingur Íslendinga, telur að umbrotin í Krýsuvík geti hugsanlega leitt til eldgoss fyrir ofan Hafnarfjörð, í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn. Í grein á bloggsíðu sinni fjallar Haraldur um hræringarnar sem hófust með landrisi á Krýsuvíkursvæðinu fyrir þremur árum en þær voru þess eðlis að jarðvísindamenn töldu ástæðu til að upplýsa almannavarnir og lögregluyfirvöld um stöðuna.

Rán og ölvaðir ökumenn í höfuðborginni í nótt

Þrír menn veittust að öðrum manni á Klambratúni klukkan hálf fjögur í nótt og rændu. Mennirnir voru vopnaðir hnífum. Þeir náði lítilræði af peningum og voru farnir á brott þegar lögregla kom á staðinn.

Til handalögmála kom á danssýningu

Til átaka kom þegar tvær ungar ballerínur stigu sín fyrstu spor á sviði. Stúlkurnar ákváðu að útkljá málin í allra augsýn á meðan lagið Somehwere over the Rainbow ómaði í danssalnum.

Svíþjóð vann Eurovision - Ísland með 46 stig

Sænska söngkonan Loreen sigraði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Aserbaídsjan í kvöld, lagið fékk 372 stig. Greta Salóme og Jónsi stóðu sig með stakri prýði en enduðu með 46 stig eða í 19. sæti.

Manni bjargað úr Ölfusá

Manni var bjargað úr Ölfusá við Selfoss á tíunda tímanum í kvöld. Lögregla- og sjúkralið á Selfossi kom manninum til bjargar.

Óvanalegt lögreglumál í Bretlandi

Lögreglunni í Wakefield í Bretlandi barst tilkynning fyrr í vikunni um að alblóðugur maður haltraði við skipaskurði í bænum.

Áhugi fyrir hjólaleigu að bandarískri fyrirmynd

Ný hjólaleiga í Denver hefur hvatt borgarbúar til að hjóla sem nemur fimmhundruð og tuttugu hringum í kringum Ísland á ári. Líkur eru á að svipuðu verkefni verði komið á laggirnar í Reykjavík innan nokkurra ára.

Matti les stigin frá Íslandi

Karlmaður les í fyrsta sinn upp stigin í Eurovision af hálfu okkar Íslendinga og hann er fyrrverandi Eurovisionfari i þokkabót. Ísland á möguleika á að sigra keppnina að mati Páls Óskars en flutningur sænska Eurovisionfarans fyrir dómnefnd í nótt gæti hafa kostað hana sigurinn.

Rannsóknarnefnd um sparisjóði búin að taka skýrslur af stjórum

Rannsóknarnefnd um starfsemi sparisjóðanna fyrir hrun hefur nú tekið skýrslur af sparissjóðsstjórum flestra sparisjóðanna. Skýrsla nefndarinnar, sem verður svipað upp byggð og skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis, kemur ekki út fyrir 1. júní eins og að var stefnt heldur með haustinu.

Alþingismenn geta slaufað áformum um sumarfrí

Allt útlit er fyrir að það verði þingfundir á Alþingi í sumar en engin niðurstaða fékkst í dag í fund formanna stjórnarflokkanna með leiðtogum stjórnarandstöðunnar. Formaður Sjálfstæðisflokksins að þingið hafi aldrei verið jafn mikið undir hælnum á ríkisstjórninni og núna.

Hefur tröllatrú á Gretu og Jónsa

"Fyrst og fremst þá vona ég að þeim líði vel, að þau slappi af og segi nokkra brandara,“ segir Helga Möller, söngkona. Helga er fullviss um að þau Greta Salóme og Jónsi eigi eftir að standa sig vel og stígi stolt af sviði í Kristalshöllinni í Bakú.

Sjá næstu 50 fréttir