Alþingismenn geta slaufað áformum um sumarfrí Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. maí 2012 18:45
Allt útlit er fyrir að það verði þingfundir á Alþingi í sumar en engin niðurstaða fékkst í dag í fund formanna stjórnarflokkanna með leiðtogum stjórnarandstöðunnar. Formaður Sjálfstæðisflokksins að þingið hafi aldrei verið jafn mikið undir hælnum á ríkisstjórninni og núna. Formenn stjórnarflokkanna, þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, funduðu með formönnum þingflokka sinna í morgun og fóru síðan á fund í þinghúsinu með leiðtogum stjórnarandstöðuflokkanna þeim Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Bjarna Benediktssyni og Þór Saari frá Hreyfingunni til að ræða möguleg þinglok. Meðal þess sem rætt var á fundinum, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, var hvort menn ætli að halda málþófinu áfarm í stórum málum, eins og í umræðu um frumvarp um veiðigjald og frumvarp til nýrra heildarlaga um stjórn fiskveiða, máls vegna IPA styrkja frá Evrópusambandinu (beinir fjárstyrkir) og rammaáætlun um orkunýtingu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var engin niðurstaða á fundinum. Formenn stjórnarflokkanna lögðu áherslu á að klára öll stór mál sem mælt hefur verið fyrir. Þetta er mikill fjöldi mála, en þeir þingmenn sem fréttastofa hefur rætt við eru þeirrar skoðunar, í ljósi þessarar stöðu, að meiri líkur en minni séu á sumarþingi eins og staðan er núna. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í samtali við fréttastofu að ef stjórnarflokkarnir hefðu sett fram raunhæfar áætlanir um það sem þyrfti að klára og gæfu tilslakanir í t.d sjávarútvegsmálum þá væri hægt að klára þingið um miðjan júní. „Ríkisstjórnin verður að fara að gera sér grein fyrir því að þinginu er að ljúka," segir Bjarni, en samkvæmt áætlun eru þinglok hinn 31. maí næstkomandi en 90 stjórnarmál eru óafgreidd í þinginu. Bjarni telur óraunhæft hjá ríkisstjórninni að ætla að klára öll mál sem mælt hefur verið fyrir. Þá segir hann formenn stjórnarflokkanna ósveigjanlega, ekki sé við stjórnarandstöðuna að sakast.Enginn vilji hjá ríkisstjórninni til að gera málamiðlanir Sjálfstæðismenn gáfu ríkisstjórnarflokkunum í raun frítt spil varðandi stjórnarskrármálið, eftir að hafa haldið uppi málþófi um nokkurn tíma og féllu frá öllum tillögum sínum um málamiðlanir, eins og að leggja efnisspurningar fyrir þjóðina í stað ráðgefandi atkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs. „Á endanum ákváðum við að taka ekki þátt í þessari vitleysu," segir Bjarni, en hann er þeirrar skoðunar að það sé óábyrgt að eyða mörg hundruð milljónum króna í ráðgefandi atkvæðagreiðslu sem sé í raun tilgangslaus. Það liggi fyrir að breyta þurfi tillögum stjórnlagaráðs þegar frumvarp til stjórnskipunarlaga verði smíðað fyrir kosningarnar 2013. Bjarni segir umræðuna um meint málþóf stjórnarandstöðuflokkanna skrýtna. Núverandi stjórnarandstöðuflokkar séu ekki að hegða sér öðruvísi en tíðkast hafi. Þá sé við stjórnina sjálfa að sakast, enginn vilji sé meðal stjórnarflokkanna að gera málamiðlanir og slaka á kröfum. Enginn vilji sé til dæmis til staðar um að ná sátt í sjávarútvegsmálinu, svo eitthvað sé nefnt. „Það er sjaldan sem eitt þing hefur verið jafn rækilega undir hælnum á ríkisstjórninni og núna," segir Bjarni. Magnús Orri Schram formaður þingflokks Samfylkingarinnar tók undir með öðrum þingmönnum sem fréttastofan ræddi við í dag og sagði að þingfundir í sumar væru líklegir eins og staðan væri núna. Magnús sagði að mörg stór mál hefðu ekki fengið næga umfjöllun og þingið þyrfti að gefa sér góðan tíma. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira