Nýstárlegt viðvörunarkerfi gæti bjargað mannslífum Hugrún Halldórsdóttir skrifar 27. maí 2012 19:45
Viðvörunarkerfi sem gerir Neyðarlínunni kleyft að senda skilaboð í farsíma fólks á hættusvæðum, einungis nokkrum mínútum eftir að hættu er vart, verður tekið í notkun á þriðjudag. Tæknin skiptir sköpum og getur bjargað mannslífum. Þeir sem verða á þjónustusvæðum í og við Vík í Mýrdal á þriðjudag fá send neyðarskilaboð klukkan fjögur síðdegis og verða beðnir um að yfirgefa svæðið vegna yfirvofandi hættu. Auðvitað verður tekið fram að um æfingu sé að ræða en frá og með þeim tíma getur Neyðarlínan sent slík skilaboð til íbúa og ferðamanna á ákveðnum svæðum. Tökum Heklu sem dæmi. Ef vísbendingar um Heklugos hefðu borist Neyðarlínunni um eittleytið í dag hefði kerfið getað sent öllum þeim þrjúhundruð ferðamönnum á svæðinu neyðarskilaboð innan tveggja mínútna. „Það tók 102 sekúndur að finna þá og koma skilaboðum til þeirra um það að þeir ættu að drífa sig beinustu leið þaðan sem þeir komu og hraða sér til byggða," segir Tómas Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. Áður hafa starfsmenn símafyrirtækjanna þurft að hafa upp á númerunum og það gat tekið sex klukkustundir eða jafnvel lengri tíma. Viðvörunarkerfið er mikilvægt skref í að auka öryggi íbúa landsins og ferðamanna en neyðarskilaboðin verða send á bæði íslensku og ensku. „Hugsanlega í seinni tíð reynum við að greina betur hvaðan hver sími er. Þannig getum við sent skilaboð á íslensku, ensku og pólsku ef um er að ræða pólskt númer." „Ég á von á því að við getum hugsanlega bjargað einhverjum mannslífum," segir Tómas. „Við fáum kannski hálftíma fyrirvara á Heklugosi þar sem jarðfræðingar eru farnir að mæla hana svona vel. Og það getur alveg verið nóg til þess að ferðamaður getu komið sér úr bráðri hættu áður en hún verður raunverulega að bráðri hættu."
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira