Rannsóknarnefnd um sparisjóði búin að taka skýrslur af stjórum Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. maí 2012 18:45 Rannsóknarnefndir Alþingis eru nú til húsa á Austurströnd í sama húsnæði og hýsti áður embætti Landlæknis.
Rannsóknarnefnd um starfsemi sparisjóðanna fyrir hrun hefur nú tekið skýrslur af sparissjóðsstjórum flestra sparisjóðanna. Skýrsla nefndarinnar, sem verður svipað upp byggð og skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis, kemur ekki út fyrir 1. júní eins og að var stefnt heldur með haustinu. Samkvæmt þingsályktun um rannsókn á sparisjóðunum frá 11. júní í fyrra átti rannsóknarnefd um málefni sparisjóðina fyrir hrun að skila niðurstöðum sínum fyrir hinn 1. júní næstkomandi. Nú er ljóst að þetta mun ekki nást, en þess skal getið að ekki var skipað í nefndina fyrr en þremur mánuðum eftir samþykkt þingsályktunartillögunnar um rannsóknina. Bjarni Frímann Karlsson, einn nefndarmanna, sagði í samtali við fréttastofu að það væri útilokað að nefndin myndi ljúka störfum fyrir 1. júní. Hann sagði að ekki væri búið að fastsetja neina dagsetningu varðandi útgáfu skýrslunnar en líklegast kæmi hún út með haustinu. Rannsóknarnefndin fékk sömu rannsóknarheimildir og rannsóknarnefnd Alþingis. Hún getur kallað eftir þeim gögnum sem hún þarf og boðað menn í viðtöl. Samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar er nú búið að taka skýrslu af flestum sparisjóðsstjórum íslenskra sparisjóða fyrir hrun. Skýrsla nefndarinnar verður svipað upp byggð og skýrsla RNA með ítarlegum upplýsingum um útlán einstakra sparisjóða og þar með stærstu lántakendur en það eru upplýsingar sem að margra mati vantaði sárlega í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þegar hún kom út, en sú nefnd hafði ekki umboð til að fjalla um málefni sparisjóðanna. Alþingi ályktaði líka hinn 17. desember 2010 að hefja rannsókn á starfsemi Íbúðalánasjóðs frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lánareglum hans sem hrint var í framkvæmd á árinu 2004 og til ársloka 2010, en í kjölfar rannsóknarinnar á að fara fram heildarendurskoðun á stefnu og starfsemi sjóðsins og fjármögnun húsnæðislánakerfisins á Íslandi. Vinna nefndarinnar þokkalega á veg komin, en ekki liggur fyrir hvenær skýrslan kemur út. „Það má segja að umfangið hafi verið miklu meira en þingið gerði sér grein fyrir," segir Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri, en hann er einn nefndarmanna í rannsóknarnefnd um málefni Íbúðalánasjóðs.
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira