Innlent

Jokevision 2012 - íslenskir piltar fara á kostum

Myndband sem félagarnir Ágúst Elí Ásgeirsson og Jakob van Oosterhout gerðu hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum. Strákarnir eru 15 ára gamlir en þeir reka fyrirtækið JÁ Myndir.

Ágúst og Jakob gera óspart grín af nokkrum lögum í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Þetta er ekki fyrsta framlag þeirra til þjóðfélagsumræðu Íslendinga þegar Eurovision-tíðin gengur í garð en þeir hafa birt svipuð myndbönd undanfarin ár.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir ofan en það er kallað Jokevision 2012. Þá er áhugasömum bent á YouTube síðu þeirra en þar er hægt að fylgjast náið framleiðslu piltanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×