Fleiri fréttir

Hundruð tóku þátt í hestareið

Það var mikið um dýrðir hjá hestamönnum á Selfossi í dag þegar Sleipnishöllin var formlega vígð. Hundruðir hrossa og reiðmanna tóku þátt í hópreið um Selfoss en riðið var frá Engjavegi að Eyrarvegi, að Tryggvatorgi og síðan austur Austurveg að Brávöllum.

Hleypir fantasíum kvenna út

Hildur Sverrisdóttir lögfræðingur vinnur nú að bók þar sem íslenskar konur deila sögum af kynferðislegum fantasíum sínum með öðrum. Hún sagði Kjartani Guðmundssyni frá mikilvægi þess að konur geti notið kynferðislegs efnis á sínum forsendum.

Íslenskir rithöfundar kepptust um athygli á Crimefest

Íslendingar eiga tvo fulltrúa á alþjóðlegu glæpasagnaráðstefnunni Crimefest þetta árið. Það eru þau Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson. Ráðstefnuna sækja um fjögur hundruð rithöfundar, lesendur, útgefendur og gagnrýnendur. Metsölubók Yrsu, Ég man þig, er væntanleg í Bretlandi á næstunni, en sú bók keppir jafnframt um Glerlykilinn fyrir Íslands hönd þetta árið. Nýjasta bók Ragnars, Myrknætti, var nýverið seld til þýska útgáfurisans Fischer Verlage.

Hillary ferðast um Skandínavíu

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, verður á ferð um Skandínavíu í næstu viku. Hún ætlar að heimsækja Kaupmannahafnarbúa þann 31. maí næstkomandi og fara þaðan til Svíþjóðar. Eftir það fer hún til Tyrklands.

Handtökur í Aserbaídsjan

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Asebaídsjan, Ali Kerimli, var handtekinn fyrr í dag í kjölfar götumæla í miðborginni í gær. Lögregluyfirvöld í Bakú, höfuðborg landins, og víðar hafa handtekið fjölda manns á síðustu vikum.

Hvítasunnuhelgin byrjar vel - umferð þung en gengur vel

Ein stærsta ferðahelgi ársins stendur nú yfir. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína út á land og segir lögregla að umferð hafi að mestu gengið vel fyrir sig. Þá segir stöðvarstjóri lögreglunnar á Selfossi að umferð hafi verið stöðug og að ökumenn hafi sýnt töfum skilning.

Skjaldborg hafin á Patreksfirði

Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg á Patreksfirði hófst í gærkvöldi. Opnunarmynd hátíðarinnar var Hreint hjarta eftir Grím Hákonarson en hún fjallar um sér Kristinn Friðfinnsson, sóknarprest á Selfossi, sálgæslu hans við sóknarbörn og útistöður við kirkjuyfirvöld.

Árleg sýning Ljósmyndaskólans hefst í dag

Árleg ljósmyndasýning fyrsta árs nema við Ljósmyndaskólann opnar í dag. Alls munu 19 nemendur sýna verk sín þar sem ýmislegt verður tekið, þar meðal má nefna portrait, landslag, kynferðislegt ofbeldfi, tísku og átröskun.

Lagarde: Engin áform um að slaka á kröfum til Grikkja

Ekki verður slakað á kröfum til Grikkja varðandi niðurskurð, segir Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hún segist hafa meiri samúð með Afríkubörnum sem ekki geta menntað sig en Grikkjum sem lifa undir fátæktarmörkum.

Óvæntir gestir í för með íslenska Eurovision-hópnum

Svíum er spáð sigri en Íslendingum sautjánda sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer í kvöld. Tveir óvæntir gestir fá að vera með íslenska hópnum í græna herberginu á stóru stundinni.

Ákæra vegna brots á þagnarskyldu opinberra starfsmanna fordæmalaus

Aldrei í réttarsögunni hefur verið ákært fyrir brot á þagnarskyldu opinberra starfsmanna, að sögn ríkissaksóknara. Lögreglumennirnir tveir sem seldu þrotabúi trúnaðarupplýsingar sem þeir öfluðu í starfi sínu yrðu þeir fyrstu, ef þeir verða ákærðir.

Skiptar skoðanir um fjármögnun Vaðlaheiðaganga

Skiptar skoðanir eru á meðal stjórnarliða um frumvarp fjármálaráðherra um heimild til að fjármagna Vaðlaheiðargöng. Þingmaður Framsóknar telur að málið nái ekki að fara í gegnum þingið.

Viðrar vel á hvítasunnu

Svo virðist sem að vel muni viðra um hvítasunnuhelgina. Hiti á landinu hefur aukist jafnt og þétt síðustu daga og er spáð allt að 23 stiga hita á austanverðu landinu.

Handtöku Breiviks lýst

Norskir lögreglumenn báru vitni í máli Anders Behring Breivik í Osló í gær. Þeir lýstu því þegar fjöldamorðinginn var handsamaður í Útey, 22. júlí síðastliðinn, stuttu eftir að hann hafði myrt 69 manns.

Rætt um Vaðlaheiðagöng fram eftir miðnætti

Umræður um frumvarp fjármálaráðherra um heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðlaheiði stóðu fram eftir miðnætti á Alþingi í nótt. Þá voru sjö enn á mælendaskrá, þar af helmingur stjórnarliðar.

Nítján ára dúx á leið í Listaháskólann

Auður Lóa Guðnadóttir dúxaði í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, en útskriftarathöfnin var í gær. Auður Lóa tók stúdentspróf af listnámsbraut á þremur árum og komst í vikunni inn í BA-nám í myndlistardeild Listaháskóla Íslands.

"Ekkert fréttnæmt" af lögreglu í nótt

Nóttin var tíðindalítil hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Það tíðindalítil, að lögreglan treystir sér til að fullyrða í tilkynningu að "ekkert fréttnæmt" hafi átt sér stað.

Blóðbað í Sýrlandi

Þjóðarráðið í Sýrlandi, stærstu samtök andspyrnumanna í landinu, hafa farið fram á að Öryggisráð Sameinu Þjóðanna komi saman vegna atburðanna í bænum Houla í Homs-héraði í nótt.

Skotárás í Finnlandi - maðurinn handtekinn

Piltur og stúlka létu lífið í skotárás í finnsku borginni Hyvinkaa í nótt, þau voru bæði átján ára gömul. Þá særðust um tíu manns, þar af tveir lífshættulega.

Góðgerðarstarf líður fyrir tekjuhrun í spilakössum

Tekjur Íslandsspila hafa lækkað um fimmtung frá hruni. Góðgerðarstarf Rauða krossins, Landsbjargar og SÁÁ líður fyrir. Netspilun tekur sífellt stærri sneið af kökunni. Frjáls félagasamtök fá ekki aðgang að netinu.

Meirihluti vill kjósa um Evrópusambandið

Tæplega sex af tíu vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi aðildarviðræðum við ESB áfram samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Átti ekki von á að grunur um brot kæmi upp

Sérstakur saksóknari var meðvitaður um fyrirætlanir þeirra Guðmundar Hauks Gunnarssonar og Jóns Óttars Ólafssonar um að hefja störf sem sjálfstæðir rannsakendur eftir að þeir létu af störfum hjá embættinu.

Hentar ekki öllum að vera viðskiptavinir MP

MP Banki mun leggja nýtt gjald á viðskiptavini sem annað hvort eiga eða skulda minna en tvær milljónir. Forstjórinn segir bankann vera að staðsetja sig gagnvart helstu markhópum. Það henti mögulega ekki öllum að vera hjá MP.

Verðbólga lækkaði merkjanlega

Tólf mánaða verðbólga lækkaði úr 6,4 prósentum í 5,4 prósent í maímælingu Hagstofunnar. Var það talsvert meiri lækkun en búist hafði verið við en greiningardeildir bankanna höfðu spáð verðbólgumælingu upp á 5,9 til 6 prósent. Lækkunin var einnig talsvert meiri en Seðlabankinn virðist hafa gert ráð fyrir í nýjustu hagspá sinni sem hljóðaði upp á 5,9 prósent verðbólgu á öðrum ársfjórðungi.

Risaratsjár Monge forða geimárekstrum

Franska skipið Monge liggur við Reykjavíkurhöfn. Það er einstaklega vel tækjum búið og fylgist meðal annars með eldflaugatilraunum og aðskotahlutum í geimnum. Getur numið hlut á stærð við 100 krónu mynt í 800 km hæð.

Andstæður mætast í seinni umferðinni

Mohammed Morsi, forsetaefni Bræðralags múslima keppir að öllum líkindum við Ahmed Shafik, fulltrúa gömlu stjórnarinnar, í seinni umferð forsetakosninganna í júní. Fulltrúi vinstrimanna gæti þó enn átt möguleika.

Viðræður um fjármögnun hefjast í næstu viku

Formlegar viðræður um fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar hefjast í næstu viku. Að sögn Ingvars Stefánssonar, fjármálastjóra Orkuveitunnar, hafa óformlegir fundir átt sér stað frá því stjórn Orkuveitunnar veitti í lok apríl umboð til að hefja viðræðurnar.

Blaðamaður í kókaínsmygli

Blaðamaður í Kaupmannahöfn, sem skrifaði um fíkniefnaviðskipti, hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að hafa smyglað fjórum kílóum af kókaíni frá Perú til Danmerkur.

Kattarkona í Ísrael tók að sér 550 ketti

Maður frá Ísrael sótti um skilnað frá eiginkonu sinni á dögunum. Slíkt þykir nú varla fréttnæmt enda er það daglegur viðburður víða um heim. En ástæðan fyrir því að Ísraelinn vildi skilnað frá eiginkonu sinni var sá að konan tók að sér nokkra ketti. Það er nú kannski ofsögum sagt að þetta hafi verið "nokkrir“ kettir, því þegar hann kom heim einn daginn biðu hans hvorki meira né minna en 550 kettir.

Eitrað fyrir skólastúlkum

Eitrað var fyrir 120 skólastúlkum og þremur kennurum þeirra í skóla í Takhar í Afganistan síðastliðinn miðvikudag, að því er segir á fréttavefnum b.dk. Að sögn lögreglu voru andstæðingar menntunar kvenna að verki.

Framhaldið af Hungurleikunum komið út á íslensku

Slökkviliðsbíll var til taks þegar bóksalar sóttu framhald Hungurleikanna, Eldar kvikna, á lager Forlagsins við Fiskislóð í dag, í stað þess að bíða eftir að bókin færi í almenna dreifingu. Viðlíka áhuga bóksala hefur ekki orðið vart síðan Rannsóknarskýsla Alþingis kom út.

Matarolía af ökrum íslenskra bænda

Íslensk matarolía af akrinum er það nýjasta sem íslenskir bændur bjóða landsmönnum en þetta er afurð repjuræktar undir Eyjafjöllum. Repjuakurinn hjá Ólafi Eggertssyni, bónda á Þorvaldseyri, þekkist úr á gula litnu. Repjan var þegar farin að blómstra í síðustu viku en henni var sáð í fyrrasumar.

Ótrúlegir hæfileikar hjá kisa

Kötturinn Óskar hefur heldur betur slegið í gegn á internetinu síðustu daga en hann er gæddur þeim hæfileika að geta opnað frystinn heima hjá sér. Myndband af hæfileika kattarins var fyrst birt á youtube.com í febrúar en á síðustu dögum hefur klippan af honum farið eins og eldur um sinu og hafa nú yfir tvær milljónir manna horft á hana.

Jónsa og Grétu Salóme spáð 2. sæti

OGAE, eða Organisation Générale des Amateurs d l'Eurovision, er heiti á alþjóðlegum samtökum opinberra aðdáendaklúbba Eurovision. Meðlimir klúbbanna koma frá þrjátíu og fjórum evrópulöndum. Í kvöld birtu samtökin niðurstöður úr könnun sem aðdáendur keppninnar frá öllum löndunum tóku þátt í og þar er Íslandi spáð 2. sæti.

Hvað gerum við ef við vinnum Eurovision?

"Það er ekki til nein viðbragðsáætlun í þessu máli,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og æðsti yfirmaður Eurovision hér á landi. Íslendingar taka þátt í aðalkeppninni á morgun og er íslenska laginu spáð góðu gangi.

Catalina markaði djúp spor í flugsögu Íslands

Íslenskir flugáhugamenn fá langþráðan draum uppfylltan á Reykjavíkurflugvelli um helgina; að skoða Catalina-flugbát en þessar vélar hafa markað hvað dýpst spor í íslenska flugsögu. Íslendingar kynntust Catalinum fyrst á stríðsárunum þegar þær gegndu lykilhlutverki í hernaði Bandamanna gegn kafbátum Þjóðverja á Atlantshafinu.

Raunhæft að ljúka viðræðunum fyrir kosningar

Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segist telja að öll spilin í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins muni verða á borðinu fyrir þingkosningar á næsta ári. Það sé vel raunhæft á ljúka viðræðum á því ári sem sé til stefnu.

Lögreglumenn fóru að selja trúnaðarupplýsingar haustið 2011

Lögreglumennirnir tveir sem sérstakur saksóknari hefur kært til ríkissaksóknara vegna brots á þagnarskyldu hófu að selja skiptastjóra Milestone trúnaðarupplýsingar í lok september 2011, löngu áður en þeir hættu hjá embættinu. Þeir héldu áfram að yfirheyra sakborninga og starfa hjá embættinu sem verktakar.

Harður árekstur í Hafnarfirði

Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru meiðsl á fólki talin vera minniháttar. Annar bíllinn er á hliðinni. Tveir sjúkrabílar og dælubíll var sendur á staðinn en ekki þarf að klippa farþega og bílstjóra út. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Þriðjungur ökumanna óku of hratt

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglu var fylgst með ökutækjum sem var ekið Langarima í suðurátt, að Rósarima.

Kannabis í kjallara

Tvö hundruð grömm af marijúana í sölupakkningum fundust við húsleit í kjallaraíbúð í miðborginni í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu játaði húsráðandi, karlmaður á þrítugsaldri, aðild sína að málinu.

Sjá næstu 50 fréttir