Innlent

Uppfærði Facebook áður en skotárás hófst

mynd/AP
Finnski pilturinn sem skaut tvo til bana og særði sjö í bænum Hyvinkää í sunnanverðu Finnland aðfaranótt laugardags hefur enn ekki viljað útskýra hvers vegna hann framdi verknaðinn.

Pilturinn hafði sama kvöld verið að drekka áfengi á veitingahúsi í bænum og farið að rífast við vini sína.

Aðeins nokkrum mínútum áður en hann hóf skothríð setti hann inn fésbókarfærslu í gegnum farsíma þar sem hann sendir vinum sínum kveðju og segir að þetta hafi verið skemmtilegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×