Segir stjórnarandstöðu beita nýjum aðferðum í málþófi Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. maí 2012 19:18
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að þingfundir gætu orðið vel fram á sumar. Hann segir að eðli málþófsins hafi breyst á þinginu. Stjórnarandstaðan hafi viðhaft ný vinnubrögð í þessum efnum sem tefji fyrir öllu þingstarfi. Samkvæmt dagskrá þingsins átti þingstörfum að ljúka 31. júní, sem er á fimmtudaginn næstkomandi. Steingrímur J. Sigfússon, sjávarúvegs- og landbúnaðarráðherra, segir að það geti stefnt í langt sumarþing. Þótt ríkisstjórnin sé með 90 ókláruð mál á dagskrá muni hún leggja áherslu á stóru málin. Steingrímir líkir þessu við vorvertíð sjómanna í grásleppu. Eða ókláruð vorverk í landbúnaði. Það þýði ekkert að hætta þó það gangi illa. Sú skylda hvíli á þinginu að ljúka sínum verkefnum. Og menn þurfi að sýna þá ábyrgð að gera það. Mikið hefur verið gert úr málþófi stjórnarandstöðunnar á Alþingi að undanförnu. Hefur því meðal annars verið haldið fram að einstakir þingmenn hafi hreinlega haldið þinginu í gíslingu með málþófi sem birtist í stuttum ræðum og andsvörum frá samherjum. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur sagt þessa umræðu skrýtna. Stjórnarandstaðan hafi ekki viðhaft önnur vinnubrögð en þau sem hafi tíðkast árum saman. Þá var bent á að allir lengstu ræður í sögu þingsins hefðu verið fluttar af núverandi stjórnarþingmönnum og ráðherrum. Forsætisráðherra er á toppnum með 10 klukkutíma langa ræðu. Steingrímur segir að það hafi hins vegar orðið eðlisbreyting í þessum efnum. Hann segist ekki vera að lýsa sig saklausan af málþófi frá tíma sínum í stjórnarandstöðu, en nálgunin sé önnur. Menn hafi flutt langar ræður og látið til sín taka þegar stór mál hafi verið til umræðu og grundvallar hagsmunir í húfi. Ekki hafi þekkst hér áður að menn beiti málþófi með þeirri aðferð að nýta tíma í fyrirspurnir um störf þingsins og ítrekað flytja stuttar ræður og fái andsvör frá samherjum sínum eða „meðsvör" eins og hann kallar þetta. Hann segir að þessi nálgun stjórnarandstöðunna rhafi staðið þingstörfum fyrir þrifum í raun. Sjá viðtal við ráðherrann um þessi mál í myndskeiði með frétt. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira