Matti les stigin frá Íslandi Hugrún Halldórsdóttir skrifar 26. maí 2012 19:37
Karlmaður les í fyrsta sinn upp stigin í Eurovision af hálfu okkar Íslendinga og hann er fyrrverandi Eurovisionfari i þokkabót. Ísland á möguleika á að sigra keppnina að mati Páls Óskars en flutningur sænska Eurovisionfarans fyrir dómnefnd í nótt gæti hafa kostað hana sigurinn. Þó svo að Matthías Matthíasson, eða Matti, eins og hann er oftast kallaður stígi ekki á svið í Eurovision þetta árið fer hann með stóra rullu í kvöld því hann verður kynnir okkar Íslendinga. „Ég var hissa þegar ég fékk símtalið því ég held karlmaður hafi aldrei áður kynnt stigin fyrir Ísland í Eurovision. Það er bara gaman að vera fyrstur," segir Matti. Matti birtist Evrópubúum með Snæfellsjökul baðaðan sólarlagi í bakgrunni og í sérhönnuðum fötum sem eru glæsileg að hans mati. Þú gefur ekkert meira upp? „Nei, nei, er ekki gaman að hafa smá spennu í þessu?" Um 150 milljónir fá að sjá Matta lesa stigin en þrátt fyrir það vottar ekki fyrir stressi hjá honum. „Ég veit ekki hvað er að mér, það rennur blóðið í mér út af þessu. Ég held að þetta verði bara gaman." Og að öðrum sem lætur ekki stressið yfirtaka sig, Páli Óskari, sem heldur í kvöld Eurovisiongleði á Nasa í tíunda sinn. „Það er óneitanlega skrýtin tilhugsun að þetta sé í síðasta sinn sem spilað verður í þessu húsi," segir Páll Óskar. „Það er þyngra en tárum taki að hugsa til þess að þessi fallegi salur sé að fara yfir móðuna miklu." Palli hefur lætur húsið sögufræga ávallt skína og fær í kvöld allra skærustu Eurovisionstjörnurnar til liðs við sig. Hann hefur að sjálfsögðu spáð í spilin síðustu daga og var þar til í nótt viss um að Svíþjóð færi með sigur af hólmi en babb kom í bátinn þegar Loreen söng fyrir dómnefndina „Það fauk snjókorn ofan í hálsmálið á henni. Ég vona að þetta verði ekki til þess að dómnefndin afskrifi hana. Þetta gæti þýtt eitt, að íslenska lagið eigi meiri möguleika á að ná topp sætinu í kvöld.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira