Innlent

Par villtist af leið í Þórsmörk

Björgunarsveitir af Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til leitar að pari sem var á göngu yfir Fimmvörðuháls en villtist á leið sinni niður í Þórsmörk.

Fólkið hafði sjálft samband við Neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð. Voru björgunarsveitir kallaðar út klukkan rúmlega eitt í nótt.

Hópar voru sendir upp Hvannárgil og Kattahrygg þar sem vitað var að fólkið var komið fyrir keðjuna við Heljarkamp og því ekki þörf á leitarhópum uppfrá Skógum.

Björgunarsveitir fundu fólkið rúmum tveimur tímum eftir að leit hófst og var það þá statt á gönguleiðinni yfir Útigönguhöfða, nokkur hundruð metra frá Heljarkambi.

Var það í þokkalegu ástandi þrátt fyrir að hafa verið á göngu í 13 tíma enda ágætlega búið og vel nestað. Var parinu fylgt niður í Þórsmörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×