Segir ummæli sín um forsetaembættið ekki kynjuð 27. maí 2012 14:27 Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, birti í dag pistil á Fésbókar-síðu sinni þar sem hann gagnrýnir skrif Rósu Guðrúnar Erlingsdóttur, stjórnmálafræðings. Rósa birti grein á Vísi fyrr í vikunni þar sem hún fór hörðum orðum um orðaval og ummæli forsetans á síðustu dögum og vikum. Þar á meðal sakaði hún Ólaf um kynjaáróður í garð meðframbjóðanda síns, Þóru Arnórsdóttur, en hann lét þau ummæli falla í viðtali að forsetinn ætti ekki að vera „skrautdúkka" og að kosningarnar snérust ekki um að velja veislustjóra á Bessastaði. Rósa telur að Ólafur hafi hér vísað til Þóru, helsta áskoranda síns. Ólafur segir að allar dylgjur um að ummæli sín um forsetaembættið séu kynjuð vera sérkennilegan málflutning.Rósa Guðrún Erlingsdóttir, stjórnmálafræðingur.„Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum," skrifar Ólafur. Þá segist hann hafa tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og að hann hafi átt fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum. Hægt er að lesa pistil Ólafs í heild sinni hér fyrir neðan, einnig er hægt að nálgast Fésbókar-síðu Ólafs hér. Þá er hægt að nálgast grein Rósu hér.Um konur.Rósa Guðrún Erlingsdóttir, ræðumaður á fundi Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, skrifar á Vísir.is pistil þar sem hún dylgjar um að umfjöllun mín um forsetaembættið sé kynjuð og að ég sé að gera lítið úr Þóru sem konu. Þetta er sérkennilegur málflutningur. Ég hef þvert á móti sýnt Þóru Arnórsdóttur virðingu með því að ræða á málefnalegum grundvelli þau sjónarmið sem hún hefur sett fram um forsetaembættið. Það er í anda jafnréttis og hvatningar minnar um að umræðan sé málefnaleg og kurteis. Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla! Engir hafa átt jafn ríkan þátt í að móta viðhorf mín og skoðanir en hópur sjálfstæðra og sterkra kvenna: Guðrún Katrín, Tinna, Dalla, Dorrit og fleiri úr fjölskyldunni.
Tengdar fréttir Orð forsetans um "skrautdúkku“ Ólafur Ragnar Grímsson steig fram á svið kosningabaráttunnar nýlega með orðræðu sem um margt minnir á vorið 1980 þegar Vigdís Finnbogadóttir var í framboði til embættis forseta Íslands. 26. maí 2012 06:00 Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira
Orð forsetans um "skrautdúkku“ Ólafur Ragnar Grímsson steig fram á svið kosningabaráttunnar nýlega með orðræðu sem um margt minnir á vorið 1980 þegar Vigdís Finnbogadóttir var í framboði til embættis forseta Íslands. 26. maí 2012 06:00