Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur Tveir voru fluttir á slysadeild Landsspítalans eftir að þrír bílar skullu saman á Reykjanesbtraut í gærkvöldi og að minnstakosti eisnn þeirra hafnaði utan vegar. Hvorugur slasaðist þó alvarlega, en brautinni var lokað um tíma á meðan lögreglan var að greiða úr málinu. 19.3.2012 06:56
Fólk aðstoðað í föstum bílum á Vatnaleið Björgunarsveitin í Stykkishólmi var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða fólk í nokkrum föstum bílum á Vatnaleið. Engum varð meint af dvölinni þar. 19.3.2012 06:40
Mitt Romney vann stórsigur í prófkjörinu á Puerto Rico Mitt Romney vann stórsigur í prófkjöri Repúblikanaflokksins á Puerto Rico í gærdag. 19.3.2012 06:35
Segir golfklúbba ekki skilja tækifæri í hóteli „Ég tel að það sé ákveðinn misskilningur í gangi hjá golfklúbbunum sem eru að kæra og að með nýju hóteli fylgi verulegt tækifæri fyrir golfklúbbana sem fyrir eru á svæðinu,“ segir Hallur Magnússon, hjá félaginu Sextíu plús ehf., sem áformar að reisa hundrað herbergja hótel við fyrirhugaðan golfvöll á Minni-Borg í Grímsnesi. 19.3.2012 06:30
Margir með afbrot að baki Margir þeirra sem keyptu efni til sprengjugerðar frá sömu efnaverksmiðjunni í Póllandi og Anders Behring Breivik hafa komið við sögu lögreglu, að því er greint er frá á vef Dagsavisen. 19.3.2012 05:00
Draumadagur í Hlíðarfjalli „Þetta var frábær dagur,“ segir Magni Rúnar Magnússon, svæðisstjóri Hlíðarfjalls á Akureyri, um gærdaginn í fjallinu. „Það var sjö til átta stiga frost, logn og sólskin, bara æðislegt vetrarveður.“ 19.3.2012 04:00
Fæstu fæðingar frá árinu 1988 Færri börn fæddust í Danmörku í fyrra en nokkru sinni frá árinu 1988, tæplega 59 þúsund. Þetta kemur fram í nýjustu tölum hagstofunnar þar í landi, en þar segir einnig að fæðingartíðni, hlutfall fæðinga gegn fjölda kvenna, hafi verið 1,76 í fyrra sem er lækkun milli ára. 19.3.2012 04:00
Tveir menn teknir af lífi Tveir menn sem voru dæmdir fyrir að hafa staðið á bak við sprengjuárás á neðanjarðarlestarstöð í Hvíta-Rússlandi hafa verið teknir af lífi. 19.3.2012 03:30
Fjórar mannskæðar árásir í Sýrlandi Öflug bílsprengja sprakk skammt frá öryggisbyggingu sýrlensku ríkisstjórnarinnar í borginni Aleppo í gær. Yfirvöld í Sýrlandi segja að hryðjuverkamenn hafi staðið á bak við sprenginguna. Bættu þau við að einn lögreglumaður og einn almennur borgari hafi farist í sprengingunni og þrjátíu til viðbótar hafi særst. Þetta var önnur árásin í landinu á tveimur dögum. Á laugardag fórust 27 manns í þremur sjálfsmorðssprengjuárásum í höfuðborginni Damaskus. 19.3.2012 03:00
Notuðu ekki sjálfstýringu Ástæðan fyrir því að Hercules-flutningavél norska hersins brotlenti í Svíþjóð með fimm manns um borð er líklega sú að flugmennirnir ákváðu að fljúga vélinni sjálfir í lágflugi í stað þess að nota sjálfstýringuna. Þetta sagði Trond Solna, sem hefur yfirumsjón með flutningavélum norska hersins, í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten. 19.3.2012 02:30
Vélsleðaslys í Flateyjardal Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Norðurlandi voru kallaðar út, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, rétt fyrir klukkan fjögur í dag vegna vélsleðaslyss á Flateyjardal um 1 km norðar við Heiðarhús. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er að minnsta kosti einn maður brotinn, en ekki er vitað hvort um frekari meiðsl er að ræða. 18.3.2012 16:45
Nýr forseti Þýskalands valinn Joachim Gauck, fyrrverandi prestur, hefur verið kjörinn forseti Þýskalands. Hann var kjörinn af þinginu og fékk 991 atkvæði af 1232. Fréttastofa BBC segir að presturinn hafi engin tengsl við stjórnmálaöfl. Hann hafi aftur á móti unnið sér inn gott orðspor og sé óhræddur við að hreyfa við mikilvægum málefnum. Forveri Gaucks er Christian Wulff en hann sagði af sér í siðasta mánuði vegna fjármálahneykslis. 18.3.2012 15:55
Myndar Scotts beðið með eftirvæntingu Kvikmyndar Ridleys Scott, Prometheus, er beðið með eftirvæntingu, en ný stikla úr myndinni var frumsýnd í gær. Myndin var tekin upp að hluta hér á landi, meðal annars við Dettifoss, eins og fram hefur komið. 18.3.2012 14:14
Sífelldar sprengingar í Sýrlandi Bilsprengja sprakk í borginni Aleppo í norðurhluta Sýrlands í dag, samkvæmt frásögnum þarlendra miðla. Stjórnarandstæðingar í landinu segja að einhverjir hafi farist í sprengingunni og aðrir særst en engar tölur um fjölda hafa borist. Í gær fórust að minnsta kosti 27 manns þegar sprengja sprakk í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. 18.3.2012 14:49
Þúsundir minnast Knúts Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að ísbjarnargryfjunni í dýragarðinum í Berlín í dag. Á morgun er liðið ár frá því að ísbjörninn Knútur, sem bjó í gryfjunni, drapst. Hann var fjögurra ára gamall. Margir þeirra sem lagt hafa leið sína að ísbjarnargryfjunni í dag hafa lagt þar blóm eða myndir. Nokkrir þeirra hafa fellt tár, eftir því sem þýska fréttastofan dpa greinir frá. Mamma Knúts afneitaði honum þegar hann kom í heiminn og hann var því alinn upp af dýrahirðum. Knútur öðlaðist heimsfrægð og 11 milljónir manna lögðu leið sína í dýragarðinn til að sjá hann. 18.3.2012 13:52
Segir atvinnulífið í stofufangelsi gjaldeyrishaftanna Gjaldeyrishöftin valda að atvinnulífinu líður svolítið eins og það sé í stofufangelsi, segir Svana Helen Björnsdóttir nýr formaður Samtaka iðnaðarins. Svana Helen sagði í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að gjaldeyrishöftin valdi því að íslensku stórfyrirtækin fái ekki fjármagn. 18.3.2012 11:05
Ölvaður maður skemmdi bíl Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ölvunnar og hávaða frá heimilum og skemmtistöðum. Ölvaður maður var handtekinn á Vegamótastíg grunaður um að hafa skemmt bíl. Hann var færður í fangageymslu og er vistaður þar uns hægt er að ræða við hann. Þá barst lögreglunni tilkynning um að rúða hefði verið brotin í Listasafninu við Tryggvagötu. Jafnframt barst lögreglunni tilkynning um að brotist hefði verið inn í íbúð við Álfhólsveg en ekki er vitað hverju var stolið. 18.3.2012 09:47
Björguðu erlendum ferðamönnum af jökli Björgunarfélag Hornafjarðar og þyrla Landhelgisgæslunnar fóru í gærkvöld á Skálafellsjökul, sem er hluti af Vatnajökli, til að sækja tvo erlenda ferðamenn sem þar voru í hrakningum. Ferðamennirnir settu neyðarsendi í gang þegar ljóst varð að þeir gætu ekki komið sér niður af eigin rammleik. 18.3.2012 09:10
Fundu líkamsleifar á fjallinu Sænska lögreglan tilkynnti seinni partinn í dag að hún hefði fundið líkamsleifar í hlíðum Kebnekaise hæsta fjalli Svíþjóðar, þar sem norska Herkúles flugvélin fórst í fyrradag. Frá þessu er greint á vef norsku sjónvarpsstöðvarinnar TV 2. 17.3.2012 19:36
Samkomulagið gríðarlega mikið hagsmunamál Það samkomulag sem gert var í gær um lóðir og skipulagsmál í tengslum við framtíðaruppbyggingu Landspítala Háskólasjúkrahúss og Háskóla Íslands norðan Hringbrautar er gríðarlega mikið hagsmunamál fyrir Reykjavík, segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs. 17.3.2012 18:51
Segir borgarstjóra hundsa skoðanir almennings Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, gagnrýnir harðlega að Jón Gnarr borgarstjóri hafi í gær undirritað samkomulag um lóðir og skipulagsmál í tengslum við framtíðaruppbyggingu Landspítala Háskólasjúkrahúss og Háskóla Íslands norðan Hringbrautar. 17.3.2012 17:52
Fékk verðlaun fyrir vísindaerindi Hulda Rún Jónsdóttir og samstarfsmenn hennar fengu verðlaun fyrir besta vísindaerindi unglæknis eða læknanema á Sameiginlegu vísindaþingi Skurðlæknafélags Íslands, Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands og Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna sem haldið var nú um helgina. 17.3.2012 17:26
Eitt frægasta óperuverk sögunnar í Hörpu Um hundrað manns og einn vel uppalinn hundur takast á við eitt frægasta óperuverk sögunnar í Hörpu um þessar mundir. 17.3.2012 15:39
Kristján er annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins Kristján Þór Júlíusson er nýr annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann hlaut 57% atkvæða í annarri umferð kosninga á flokksráðsfundi í Turninum í Kópavogi í dag. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn fékk 40% atkvæða. Kjósa þurfti að nýju á milli tveggja efstu frambjóðenda eftir fyrri umferð kosninga því enginn hlaut hreinan meirihluta. Upphaflega voru í framboði auk Kristjáns og Geirs Jóns, þau Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri í Hveragerði og Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðarbyggð. 17.3.2012 15:18
Fangavörður Nasista látinn Fangavörðurinn John Demjanjuk er látinn 91 árs að aldri. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi í fyrra fyrir störf sín sem fangavörður í fangabúðum Nasista í Seinni heimsstyrjöldinni. Hann var látinn laus eftir að hann áfrýjaði dómnum og var á elliheimili þegar hann lést. Demjanjuk var vörður við Sobibor fangabúðirnar í Póllandi árið 1943, en rösklega 28 þúsund manns voru líflátnir í fangabúðunum á meðan hann starfaði þar. Fangavörðurinn neitaði alltaf sök og sagðist sjálfur hafa verið fórnarlamb stríðsfanga. 17.3.2012 13:46
38 milljarða tap vegna vaxtadómsins Landsbankinn hefur gjaldfært 38 milljarða króna vegna taps af gengistryggðum útlánum í kjölfar dóms Hæstaréttar í febrúar síðastliðnum. Hagnaður bankans nam samt sem áður tæpum sautján milljörðum á síðasta ári. 17.3.2012 12:00
Síðasta helgin í Kolaportinu Fjölskylduhjálp Íslands hefur undanfarnar helgar selt notaðan og nýjan fatnað til styrktar matarsjóðnun "Enginn án matar“ á Íslandi. Fjöldi tónlistarmanna hafa lagt starfinu lið með flutningi frábærrar tónlistar. Listamennirnir Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson koma fram kl. 13.00 í dag fyrir gesti og gangandi. Framvegis verður flóamarkaður Fjölskylduhjálpar Íslands opinn alla virka daga í Eskihlíð 2 - 4 frá kl. 12 til 18. 17.3.2012 10:46
Bjarni skýtur fast á Jóhönnu Íslenska krónan er forsenda þess litla hagvaxtar sem Jóhanna Sigurðardóttir stærir sig af, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á flokksráðsfundi sjálfstæðismanna í Kópavogi í dag. 17.3.2012 10:30
Assange stefnir á þing Julian Assange, stofnandi vefsíðunnar WikiLeaks, hyggst bjóða sig fram í þingkosningum í Ástralíu. Assange er ástralskur ríkisborgari. Hann er staddur í Bretlandi þessa dagana og bíður þess að dómstóll úrskurði um það hvort hann verði framseldur til Svíþjóðar vegna ásakana um að hann hafi framið kynferðisbrot. Assange neitar ásökununum og segir að þær séu pólitísks eðlis. WikiLeaks síðan hefur birt þúsundir leyniskýrslan um viðkvæm mál, sem tengjast meðal annars bandaríska hernum, á Internetinu. Assange telur að þrátt fyrir þær sakir sem bornar eru á hann geti hann boðið sig fram til þings. 17.3.2012 09:43
Árásarmenn vistaðir hjá lögreglu Tveir voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að hafa ráðist á mann á veitingahúsi við Ingólfsstræti. Sá sem varð fyrir árásinni var meðal annars með brotna tönn og hugðist hann leita á slysadeild. Þetta var eitt fjölmargra verkefna sem lögreglan fékkst við í nótt. 17.3.2012 09:31
Kosið aftur milli Geirs Jóns og Kristjáns Greiða þarf atkvæði um annan varaformann Sjálfstæðisflokksins í annarri umferð. Eftir fyrri umferðina voru efstir þeir Kristján Þór Júlíusson þingmaður og Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn. Hvorugur þeirra náði þó yfir 50% atkvæða og þarf því að greiða atkvæði aftur. Vísir mun segja frá úrslitunum þegar þau liggja fyrir. 17.3.2012 14:47
Sjálfstæðismenn funda í dag Annar varaformaður Sjálfstæðisflokksins verður kosinn á flokksráðsfundi sem haldinn er í Turninum í Kópavogi í dag. Fundurinn hefst klukkan korter yfir níu með ræðu Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins, og Ólafar Nordal varaformanns. Þá verður jafnframt kosið í málefnanefndir flokksins sem munu starfa fram að næsta landsfundi. 17.3.2012 09:13
200 einstaklingar utangarðs Um tvö hundruð manns sem koma árlega á Vog hafa sótt sér meðferð þangað áður tíu sinnum eða oftar. Flestir glíma við geðræn vandamál. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins þurfa hátt í 150 af þessum 200 frekari úrræði frá heilbrigðis- eða félagsmálayfirvöldum eftir áfengis- og vímuefnameðferðina á Vogi. 17.3.2012 08:00
Rekstrarniðurstaða OR batnaði til muna Orkuveita Reykjavíkur birti í gær ársreikning fyrir 2011. Rekstrartekjur fyrirtækisins hækkuðu um 20% og rekstrarkostnaður lækkaði um rúm 11%. Gríðarháar skuldir sliga enn fyrirtækið en sparnaðaráætlun stjórnar hefur staðist til þessa. 17.3.2012 08:00
Segir rekstrarumhverfinu hafa hrakað Fljótfærnisleg, tíð og ófagleg lagasetning og vilji til þess að búa til séríslenskar lausnir sem ekki hafa verið reyndar annars staðar grefur undan stöðugleika og fyrirsjáanleika sem nauðsynlegur er í alþjóðaviðskiptum. Þetta sagði Niels Jacobsen, stjórnarformaður Össurar, á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. 17.3.2012 08:00
Segir allar ásakanir á hendur Geir rangar Mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar koma í veg fyrir að Geir H. Haarde verði gerð refsing vegna Landsdómsmálsins vegna óljósra heimilda í lögum, sagði verjandi Geirs í gær. Hann gagnrýndi saksóknara fyrir að sýna ekki fram á hvað Geir hefði átt að gera og hverju það hefði breytt. 17.3.2012 08:00
Lögreglan gagnrýnir frumvarp Ögmundar Frumvarp Ögmundar Jónassonar um forvirkar rannsóknarheimildir gengur allt of skammt, að mati lögreglu. Formaður Landssambands lögreglumanna segir að einungis sé kallað eftir sams konar heimildum og tíðkist í nágrannalöndum. 17.3.2012 07:30
Hermaðurinn vildi ekki til Afganistan Hermaður sem skaut sextán manns til bana í Afganistan síðastliðinn sunnudag hafði misst framan af fæti og hlotið heilaskaða í herþjónustu í Írak, segir lögmaður hans. Hann hélt að hann yrði ekki sendur til frekari herþjónustu. 17.3.2012 07:00
Stjórn leggur til metarðgreiðslu Stjórn Landsvirkjunar mun á aðalfundi félagins leggja til að 1,8 milljarða króna arður verði greiddur til ríkissjóðs, eiganda Landsvirkjunar. Hefur Landsvirkjun aldrei greitt svo háa upphæð í arð. Frá þessu var greint í gær samhliða framlagningu Landsvirkjunar á ársreikningi fyrir árið 2011. 17.3.2012 07:00
Hafa náð 250 tegunda marki Um miðjan þennan mánuð náðist 250 tegunda markið á pödduvef Náttúrufræðistofnunar. Vefnum var hleypt af stokkunum 14. ágúst 2009, en þá voru kynntar til sögunnar 80 tegundir. 17.3.2012 07:00
Viðbrögð stjórnvalda vonbrigði Kofi Annan, sérstakur erindreki Arababandalagsins og Sameinuðu þjóðanna vegna Sýrlands, segir að ef ekki verði tekið á málum þar muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir öll ríkin í kring. Aðstæðurnar séu flóknari en í Líbíu. 17.3.2012 07:00
Sænskur glæpaforingi myrtur Jörgen Lindskog, foringi vélhjólasamtakanna Outlaws í bænum Ronneby í Suður-Svíþjóð, fannst látinn fyrr í vikunni. 17.3.2012 06:00
„Ég er saklaus af þessu öllu saman“ "Ég er mjög feginn að þessum þætti málsins er lokið,“ sagði Geir H. Haarde, sem ákærður er fyrir Landsdómi, þegar aðalmeðferð málsins var lokið fyrir dóminum í Þjóðmenningarhúsinu seinnipart dags í gær. 17.3.2012 06:00
Eldur kom upp í bílskúr í Hafnarfirði Eldur kom upp í bílskúr við Flókagötu í Hafnarfirði fyrir stuttu. Töluverður reykur hafði myndast og voru slökkviliðsmenn frá tveimur stöðvum á höfuðborgarsvæðinu kallaðir út. 16.3.2012 22:45
Hringdi í neyðarlínu og sagðist vera með mann í gíslingu Maður sem talinn er eiga við geðsjúkdóm að stríða var handtekinn af lögreglunni á Selfoss í dag. Atvikið átti sér stað um hádegisbil á Eyrarbakka. 16.3.2012 21:12