38 milljarða tap vegna vaxtadómsins JMG skrifar 17. mars 2012 12:00 Steinþór Pálsson er forstjóri Landsbankans.
Landsbankinn hefur gjaldfært 38 milljarða króna vegna taps af gengistryggðum útlánum í kjölfar dóms Hæstaréttar í febrúar síðastliðnum. Hagnaður bankans nam samt sem áður tæpum sautján milljörðum á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi Landsbankans sem birtur var í gær. Arðsemi eigin fjár var 8,8 prósent og er eigið fé bankans nú rúmir 200 milljarðar króna. Virðisrýrnun útlánasafns er 23,6 milljarðar en þá er búið að gera ráð fyrir virðisaukningu á árinu að frádregni 38 milljarða niðurfærslu vegna dóms Hæstaréttar í febrúar síðastliðnum um réttmæti þess að nota viðmiðunarvexti Seðlabankans aftur í tímann, þegar lánveitandi hafði gefið út fullnaðarkvittanir fyrir greiðslum afborgana. Þessi fjárhæð er í samræmi við sviðsmynd sem Fjármálaeftirlitið óskaði eftir að fjármálafyrritæki notuðu sem viðmið við útreikning á áhrifum dómsins. Bankinn segir þetta þó ekki breyta því að fleiri dóma sé þörf til að skýra stöðu annarra lána en fjallað er um í þessu tiltekna dómsmáli. Ástæða fyrir því að áhrif dómsins eru gjaldfærð árið 2011 er að ársreikningur skal á hverjum tíma endurspegla eignasafnið eins og það er í raun og veru. Það kann því að vera að niðurstaðan breytist og mun munurinn þá verða tekjufærður í næsta ársreikningi. Landsbankinn er annar bankinn sem gefur út áhrif gengislánadómsins á efnahagsreikning sinn, fyrr í vikunni gaf Arion Banki út sinn ársreikning og kom þar fram að áhrif dómsins væru metin á 13,8 milljarða króna fyrir skatt. Íslandsbanki hefur ekki gefið út sinn ársreikning en ljóst er að áhrif gengislánadómsins hlaupa á tugum milljarða króna.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira