Fleiri fréttir

Minntust forfeðra sinna með bálför

Skoskir afkomendur víkinga minntust forfeðra sinna í bænum Lerwick í gær. Hátíðarhöldin náðu hámarki þegar eldur var borinn að tignarlegri galeiðu.

Hélt alltaf í vonina

„Þegar maður getur ekki einu sinni brosað þá reynir maður það samt," segir Eiríkur Ingi Jóhannsson sem komst einn lífs af þegar togarinn Hallgrímur sökk við Noregsstrendur í síðustu viku. Þrír menn fórust í slysinu. Eiríkur var í ítarlegu viðtali við Kastljósið á RÚV um lífsreynslu sína í kvöld. Þar sagði hann að börnin hefðu verið honum ofarlega í huga þegar hann áttaði sig á því að hann væri í lífshættu.

73 látnir eftir óeirðir á fótboltaleik

73 létust þegar átök brutust út meðal aðdáenda á fótboltaleik í Egyptalandi í dag. Rúmlega 150 slösuðust og er talið að tala látinna eigi eftir að hækka.

Vill lyftu á Fríkirkjuvegi 11 til að auðvelda aðgengi fatlaðra

Ásgeir Ásgeirsson, arkitektinn sem teiknaði breytingarnar á Fríkirkjuvegi 11 sem Húsfriðunarnefnd hefur nú lagst gegn, segir að gert sé ráð fyrir lyftu í nýjum teikningum, m.a til að auðvelda aðgengi fatlaðra. Hann segir að húsið sé með B-friðun sem þýðir að núverandi eigandi getur ráðist í breytingar án afskipta nefndarinnar.

Tilraun til ráns í miðbæ Reykjavíkur

Ránstilraun átti sér stað í versluninni Yggdrasill í miðbæ Reykjavíkur síðdegis í dag. Einn maður var að verki og ógnaði hann afgreiðslustúlku með oddhvössum hlut.

Þurfa að farga 500 kindum

Riðuveiki fannst í kind sem slátrað var í haust frá bænum Merki í Jökuldal. Þetta sýna niðurstöður tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði.

Auglýst eftir manni og bíl í tengslum við sprengjuna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að karlmanni og hvítri sendibifreið í tengslum við sprengju sem fannst skammt frá Stjórnarráðshúsinu í gærmorgun. Maðurinn er talinn hafa komið með sprengjuna í umræddum bíl, sem er af gerðinni Renault Kangó. Lögregla hefur í dag farið yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum en fjölmargar ábendingar hafa borist vegna málsins. Maður sem var á strætisvagnabiðstöð skammt frá vettvangi í gær, og lýst var eftir, hefur gefið sig fram við lögreglu. Allir þeir sem veitt geta upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögreglu.

Stöðvuðu ökumenn með fíkniefni

Lögreglan stöðvaði ökumann bíls á gatnamótum Kringlumýrabrautar og Laugavegar í dag vegna gruns um að ökumaður væri með fíkniefni meðferðis. Lítilræði af fíknefnum fundust á manninum.

Kaldara á Bretlandi en Íslandi

Það hefur væntanlega farið hrollur um lesendur breska blaðsins Daily Express þegar þeir sáu forsíðu blaðsins í gær. Þar var því slegið upp að kaldara yrði á Bretlandi en á Íslandi í þessari viku. Hitastigið gæti farið niður í allt að -11 gráður. Í greininni segir að rekja megi kuldann til lægðar sem leggur yfir Bretlandseyjarnar en hún kemur frá Síberíu. Búist er við því að hitinn geti náð upp í allt að 2 gráður en fer langt niður fyrir frostmark.

Steingrímur setti Framadaga í HR

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, setti Framadaga háskólanna í Háskólanum í Reykjavík í dag en þetta er í fyrsta sinn sem þeir eru haldnir í HR. Í tilkynningu segir að ár taki 35 fyrirtæki þátt og hafa þau aldrei verið fleiri. Framadögum er ætlað að gefa ungum háskólaborgurum tækifæri á að finna draumastarfið, hvort heldur í sumar eða sem framtíðarstarf.

Deilt um hleranir í Háskóla Reykjavíkur

Málfundafélag Lögréttu í Háskóla Reykjavíkur býður til málfundar á morgun, fimmtudaginn 2. febrúar kl. 16:00, í húsnæði Háskólans í Reykjavík, stofu V101.

Tugir látnir í frosthörkum í Evrópu

Mikil snjókoma og frosthörkur hafa sett allt úr skorðum í Evrópu í dag. Nú er svo komið að snjór liggur yfir stórum hluta álfunnar frá Ítalíu í suðri og til Tyrklands í austri. Veðrið hefur orsakað að minnsta kosti áttatíu dauðsföll, aðallega í Úkraínu og í Póllandi.

18 króna hækkun á árinu

Frá áramótum hefur verð á bensíni hækkað um sem nemur 18 krónum. Hækkun undanfarinna tveggja daga er nálægt fjórum krónum. N1 reið á vaðið í fyrradag með hækkun úr 242,7 krónum á lítrann í 246,7 krónur. Í gær fylgdu svo hækkanir á öllum öðrum bensínstöðvum.

Bjargsigið í útrýmingarhættu, ekki svartfuglarnir

Það eru bjargsigsmennirnir og ævagamlar menningarhefðir sem eru í mestri útrýmingarhættu, en ekki svartfuglarnir, segir helsti sigmaður Vestmannaeyja, sem óttast að fimm ára veiðibann verði til þess að kunnátta og hefðir við eggjatöku glatist.

Fundu vopnabúr

Heilt vopnabúr virðist hafa komið í ljós þegar lögreglan fór í húsleitir á dögunum í tengslum við rannsóknir á innbrotum. Á Vísi fyrr í dag var greint frá því að þrír hafi verið handteknir vegna málsins en verulegt magn þýfis fannst, auk vopnanna sem sjá má á myndinni. Alls var leitað á fimm stöðum og hefur þýfið þegar verið tengt við muni sem stolið var í sjö til átta innbrotum í umdæminu. Lögregla segir einnig viðbúið að munir úr fleiri innbrotum eigi eftir að koma við sögu.

Flúði land þrátt fyrir farbann - farið fram á alþjóðlega handtökuskipun

Einn þriggja Litháa sem á dögunum voru dæmdir fyrir að koma að fíkniefnaframleiðslu í sumarbústað í Ölfusborgum í október hefur flúið land, þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður í farbann. Hann mun hafa farið með flugi frá Íslandi til Parísar og þaðan áfram til Ríga í Lettlandi.

Risaslöngur ógna lífríkinu í Flórída

Risastórar kyrkislöngur og snákar ógna nú lífríkinu á fenjasvæðum Flórída í Bandaríkjunum. Um er að ræða snáka og kyrkislöngur sem fólk hefur haldið sem gæludýr en að lokum sleppt lausum út í náttúruna þar sem þau hafa náð að aðlagast.

Ósáttir við seinagang - rannsaka ábendingar vegna sprengjumanns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar ábendingar sem þeim hafa borist og tengjast sprengju sem sprakk á Hverfisgötunni snemma í gærmorgun. Lögreglan verst allra frétta. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins og er sprengjan enn í rannsókn.

Subway opnar á Ísafirði

Subway keðjan á Íslandi hefur fest kaup á húsnæði í verslunarkjarnanum Neista á Ísafirði og hyggst opna þar veitingastað í vor samkvæmt fréttavef Bæjarins besta, bb.is. Um er að ræða húsnæði sem áður hýsti Office 1 og síðar Bókahornið.

Enn leitað að sprengjumanni

Lögregla leitar enn að þeim sem ábyrgð ber á sprengjunni sem sprakk á Hverfisgötunni í gærmorgun.

Fundu verulegt magn þýfis í fimm húsleitum

Þrír menn voru handteknir þegar verulegt magn þýfis fannst við húsleitir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Alls var leitað á fimm stöðum og hefur þýfið þegar verið tengt við muni sem stolið var í sjö til átta innbrotum í umdæminu. Lögregla segir einnig viðbúið að munir úr fleiri innbrotum eigi eftir að koma við sögu.

Ferðafólk sagt trufla útgerð

Bæjarstjórn Norðurþings samþykkir ekki áform skipulagsnefndar um að stækka blandað svæði fyrir hafnarstarfsemi og verslun og þjónustu á kostnað hreins hafnarsvæðis á Húsavík.

Fórnarlamb mansals súludansari á Goldfinger

Fórnarlamb mansals hér á landi starfar sem súludansmey á nektarstaðnum Goldfinger. Þetta staðfestir Ásgeir Þór Davíðsson í samtali við blaðið DV í dag. Þar kemur fram að konan hafi yfirgefið vernd mansalsteymis hér á landi og endað á Goldfinger.

Ólafur og Dorrit skoða mörgæsir

Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaief eru nú stödd á Suðurskautslandinu ásamt fríðu föruneyti. Á vef forsetaembættisins hefur þessi mynd nú verið birt sem sýnir Ólaf og Dorrit ásamt fjölda mörgæsa.

Mikið fannfergi í Japan

Yfir 50 manns hafa farist í miklum blindbyl sem herjað hefur á íbúa í norðvesturhluta Japan. Á sumum stöðum er snjókoman á við yfir þriggja metra jafnfallinn snjó.

Frekari hækkanir framundan hjá hinu opinbera

Samtök verslunar og þjónustu og Samband íslenskra sveitarfélaga gagnrýna bæði frumvarp innanríkisráðherra um breytingar á lögum um þjóðskrá og almannaskráningu, sem myndi fela í sér verulegar hækkanir á þjónustu.

Línur skýrast í Kópavogi í dag

Það skýrist væntanlega í dag hvort Samfylkingin og Vinstri grænir annarsvegar og Sjálfstæðismenn hinsvegar, ná samkomulagi um meirihlutamyndun í bæjarstjórn Kópavogs.

Umferðarskiltum stolið úr göngum

Tólf umferðarmerkjum hefur verið stolið úr hinum nýju Bolungarvíkurgöngum, en ekki er vitað hvenær þjófnaðurinn átti sér stað. Þá hefur tveimur merkjum til viðbótar verið stolið af þjóðveginum í Ísafjarðardjúpi. Þetta kemur fram á bb.is.

Sjá næstu 50 fréttir