Ósáttir við seinagang - rannsaka ábendingar vegna sprengjumanns 1. febrúar 2012 13:35
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar ábendingar sem þeim hafa borist og tengjast sprengju sem sprakk á Hverfisgötunni snemma í gærmorgun. Lögreglan verst allra frétta. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins og er sprengjan enn í rannsókn. Þá rannsakar embætti ríkislögreglustjóra seinagang vegna tilkynningar sem fór ekki réttar boðleiðir í gærmorgun. Þannig hringdi kona inn til lögreglunnar þegar hún heyrði sprengingu á leið til vinnu. Því næst sá hún feitlaginn og lágvaxinn karlmann á miðjum aldri hlaupa að sendibifreið. Svo virðist sem tilkynning konunnar hafi ekki ratað inn á borð lögreglunnar fyrr en um klukkustund síðar. Það var fjarskiptamiðstöð lögreglunnar sem barst tilkynningin upphaflega. Vísir hefur reynt ítrekað að ná í Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá embættinu, vegna fréttarinnar. Hann sagði hinsvegar í samtali við RÚV í dag að rekja mætti töfina á viðbrögðum lögreglu til mistaka hjá fjarskiptamiðstöð. Þar hafi menn ekki áttað sig á alvarleika málsins. Hann sagði að málið væri í rannsókn og vinnubrögð séu til endurskoðunar. Samkvæmt heimildum Vísis er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu afar ósátt við seinaganginn og krafðist í kjölfarið rannsóknar á málinu innan embætti ríkislögreglustjóra. Tilkynning barst frá lögreglunni í gær. Þar kom fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn hennar á sprengju sem fannst neðst við Hverfisgötu í Reykjavík. Aðili sem var á biðstöð fyrir strætisvagna neðst á Hverfisgötunni, fyrir klukkan sjö, er sérstaklega beðinn um að gefa sig fram. Aðrir, hvort sem þeir geta gefið upplýsingar um fólk eða ökutæki á þessu svæði á tímabilinu 6.30-7, eru einnig beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 en upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is. Sömuleiðis er hægt að koma nafnlausum ábendingum á framfæri í síma 800-5005.
Tengdar fréttir Ekki talin þörf á að rýma Stjórnarráðið en Hverfisgata 4 rýmd Ríkisstjórn Íslands, sem setið hefur á fundi í Stjórnarráðshúsinu, hefur rætt við Ríkislögreglustjóra vegna ástandsins sem nú ríkir við Stjórnarráðið. Þar fannst torkennilegur hlutur sem talinn er vera sprengja eða leifar af sprengju. 31. janúar 2012 10:08 Heimavarnarliðið sver af sér sprengjumálið „Það var enginn úr okkar hópi sem kom að þessu," segir Páll Heiðar Magnússon Aadnegar, sem er í Heimavarnarliðinu svokallaða, en uppi var sú kjaftasaga að það væri einhver meðlimur félagskaparins sem hefði búið til sprengju og sprengt á Hverfisgötunni snemma í morgun. 31. janúar 2012 16:34 Búið að opna Hverfisgötu Lokun á Hverfisgötu í Reykjavík hefur verið aflétt, en í morgun fannst þar torkennilegur hlutur, sem er talinn vera leifar af sprengju. 31. janúar 2012 13:16 Mikill viðbúnaður við Stjórnarráðið - tilkynnt um sprengju Mikill viðbúnaður er við Stjórnarráðshúsið á Hverfisgötu en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu barst tilkynning til þeirra um að hlutur hefði fundist sem gæti mögulega verið sprengja eða leifar af sprengju.. 31. janúar 2012 09:30 Vitna leitað vegna sprengjunnar sem sprakk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn hennar á sprengju sem fannst neðst við Hverfisgötu í Reykjavík í morgun. Aðili sem var á biðstöð fyrir strætisvagna neðst á Hverfisgötunni, fyrir klukkan sjö, er sérstaklega beðinn um að gefa sig fram. Aðrir, hvort sem þeir geta gefið upplýsingar um fólk eða ökutæki á þessu svæði á tímabilinu 6.30-7, eru einnig beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 en upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is. Sömuleiðis er hægt að koma nafnlausum ábendingum á framfæri í síma 800-5005. 31. janúar 2012 17:14 Sprengjuleitarvélmenni sent á vettvang Sprengjuleitarvélmenni hefur verið gert út af örkinni til þess að finna og rannsaka torkennilegan hlut sem lögreglunni grunar að gæti verið sprengja eða leifar af sprengju. 31. janúar 2012 10:00 Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira
Ekki talin þörf á að rýma Stjórnarráðið en Hverfisgata 4 rýmd Ríkisstjórn Íslands, sem setið hefur á fundi í Stjórnarráðshúsinu, hefur rætt við Ríkislögreglustjóra vegna ástandsins sem nú ríkir við Stjórnarráðið. Þar fannst torkennilegur hlutur sem talinn er vera sprengja eða leifar af sprengju. 31. janúar 2012 10:08
Heimavarnarliðið sver af sér sprengjumálið „Það var enginn úr okkar hópi sem kom að þessu," segir Páll Heiðar Magnússon Aadnegar, sem er í Heimavarnarliðinu svokallaða, en uppi var sú kjaftasaga að það væri einhver meðlimur félagskaparins sem hefði búið til sprengju og sprengt á Hverfisgötunni snemma í morgun. 31. janúar 2012 16:34
Búið að opna Hverfisgötu Lokun á Hverfisgötu í Reykjavík hefur verið aflétt, en í morgun fannst þar torkennilegur hlutur, sem er talinn vera leifar af sprengju. 31. janúar 2012 13:16
Mikill viðbúnaður við Stjórnarráðið - tilkynnt um sprengju Mikill viðbúnaður er við Stjórnarráðshúsið á Hverfisgötu en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu barst tilkynning til þeirra um að hlutur hefði fundist sem gæti mögulega verið sprengja eða leifar af sprengju.. 31. janúar 2012 09:30
Vitna leitað vegna sprengjunnar sem sprakk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn hennar á sprengju sem fannst neðst við Hverfisgötu í Reykjavík í morgun. Aðili sem var á biðstöð fyrir strætisvagna neðst á Hverfisgötunni, fyrir klukkan sjö, er sérstaklega beðinn um að gefa sig fram. Aðrir, hvort sem þeir geta gefið upplýsingar um fólk eða ökutæki á þessu svæði á tímabilinu 6.30-7, eru einnig beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 en upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is. Sömuleiðis er hægt að koma nafnlausum ábendingum á framfæri í síma 800-5005. 31. janúar 2012 17:14
Sprengjuleitarvélmenni sent á vettvang Sprengjuleitarvélmenni hefur verið gert út af örkinni til þess að finna og rannsaka torkennilegan hlut sem lögreglunni grunar að gæti verið sprengja eða leifar af sprengju. 31. janúar 2012 10:00