Innlent

Stálu umferðarmerkjum fyrir tæpa milljón - lögreglan undrandi

Bolungarvík.
Bolungarvík.
Starfsmenn Vegagerðarinnar á Ísafirði urðu heldur betur hvumsa er þeir sáu að búið var að stela 12 umferðarmerkjum úr Bolungarvíkurgöngunum og tveim umferðarmerkjum af þjóðveginum við Vatnsfjarðarháls inni í Djúpi.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum uppgötvaðist þjófnaðurinn í fyrradag, en ekki er vitað nákvæmlega hvenær hann átti sér stað.

Merkin úr Bolungarvíkurgöngunum eru upplýsingarmerki með bókstöfum á frá A til L 50 x 60 cm að stærð, á bláum gruni með hvítum stöfum.

Skiltin við Vatnsfjarðarháls voru annars vegar hinn hefðbundni þríhyrningur með upphrópunarmerki á „Önnur hætta" og undirmerki þar við sem á stóð „Impossible".

Kostnaður við hvert þessara umferðarmerkja er 60.000 eða samtals 840.000.

Lögreglan spyr svo hvumsa í tilkynningu sinni: „Hvað ætlar þjófurinn eða þjófarnir að gera við umferðarmerkin?"

Hver sá sem getur gefið upplýsingar um þjófnaðina er beðinn um að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum í síma 450 373




Fleiri fréttir

Sjá meira


×