Innlent

Ránið í Árbænum upplýst: Samskipti við unglingsstúlku rannsökuð frekar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst rán sem var framið í Árbæ á sunnudagskvöld og hafa tvö ungmenni, 18 ára piltur og 16 ára stúlka, játað sök í málinu.

Fórnarlambið er karl á sextugsaldri en af honum var stolið peningum, sjónvarpi og síma. Málsatvik voru á þá leið að maðurinn kynntist stúlkunni á stefnumótalínu en síðan voru frekari samskipti á milli þeirra á spjallrás á netinu áður en þau hittust á heimili mannsins.

Þar birtist einnig pilturinn en hann og stúlkan ógnuðu manninum með hnífi og blóðugri sprautunál áður en þau fóru á brott með fyrrnefnda muni.

Sjónvarpið er komið í leitirnar en símanum munu ungmennin hafa hent.

Þótt ránið sé upplýst á lögreglan enn eftir að rannsaka samskipti mannsins og stúlkunnar í aðdraganda þess en í því skyni var lagt hald á tölvur þeirra beggja.


Tengdar fréttir

Vopnað rán í Árbæ: Kynntist tálkvendinu á Netinu

Létt daður á Netinu þróaðist upp í vopnað rán í Árbæjarhverfi í gærkvöldi. Tilkynnt var um málið á ellefta tímanum í gærkvöldi og var aðdragandi málsins sá að húsráðandi hafði átt í sambandi við konu á Netinu um skeið, sem leiddi til þess að hún þáði heimboð til hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×