Innlent

Skriðuföll loka veginum við Þvottárskriður

Vegurinn um Þvottárskriður á Suðausturlandi er lokaður um óákveðinn tíma vegna skriðufalla sem rekja má til mikillar rigningar.

Töluvert vatnsveður var á suðaustanverðu landinu í nótt, en hvergi eru þó vatnavextir í þeim mæli að Veðurstofan hafi áhyggjur af þeim.

22 millimetra úrkoma mældist á Höfn í Hornafirði í nótt, sem er töluvert mikið, og varar Veðurstofan enn við vatnavöxtum frá Eyjafjöllum til Austfjarða fram á daginn, en þá dregur úr úrkomu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×