Innlent

Vill lyftu á Fríkirkjuvegi 11 til að auðvelda aðgengi fatlaðra

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Fríkirkjuvegur 11. Húsið var byggt 1907-1908 af Thor Jensen og hefur lengi þótt mikil borgarprýði. Björgólfur Thor Björgólfsson, afkomandi Thors, keypti húsið og veðsetti það fyrir hrun. Hann vill nú ráðist í ýmsar breytingar innanhúss og meðal annars innrétta íbúð á efstu hæðinni, en hann og fjölskylda hans eru búsett í Lundúnum.
Fríkirkjuvegur 11. Húsið var byggt 1907-1908 af Thor Jensen og hefur lengi þótt mikil borgarprýði. Björgólfur Thor Björgólfsson, afkomandi Thors, keypti húsið og veðsetti það fyrir hrun. Hann vill nú ráðist í ýmsar breytingar innanhúss og meðal annars innrétta íbúð á efstu hæðinni, en hann og fjölskylda hans eru búsett í Lundúnum.
Ásgeir Ásgeirsson, arkitektinn sem teiknaði breytingarnar á Fríkirkjuvegi 11 sem Húsfriðunarnefnd hefur nú lagst gegn, segir að gert sé ráð fyrir lyftu í nýjum teikningum, m.a til að auðvelda aðgengi fatlaðra. Hann segir að húsið sé með B-friðun sem þýðir að núverandi eigandi getur ráðist í breytingar án afskipta nefndarinnar.

Hið sögufræga hús sem byggt var af Thor Jensen árin 1907-1908 hefur lengi þótt mikil borgarprýði, en húsið er nú í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, kaupsýslumanns. Björgólfur, sem eignaðist húsið í góðærinu og veðsetti það fyrir lánum, vill gera á því miklar breytingar innanhúss, en hann vill meðal annars vinna færa aðalstigann, gera nýjan og brjóta niður veggi.

Húsið opnað almenningi

„Það sem vakir fyrir eigendum er notkunargildið. Á efri hæð hússins verði íbúð og á neðri hæð og kjallara verði fundar- og veisluaðstaða sem hægt verður að leigja, verður opin almenningi og þar fram eftir götunum. Þannig að við erum að opna húsið fyrir almenningi og gera það upp," segir Ásgeir. Hann segir að bæta þurfi salernisaðstöðu í húsinu og setja upp lyftu til að auðvelda aðgengi fatlaðra.

Húsfriðunarnefnd sættir sig ekki við þessar breytingar sem eru áformaðar en í fundargerð nefndarinnar segir að með þessum breytingum verði gildi þessa glæsilega húss rýrt meira en ásættanlegt geti talist.

Svo virðist sem Húsfriðunarnefnd vilji beita sér fyrir því að húsið verði einnig friðað að innan.

Ekki hefur verið starfsemi í húsinu að undanförnu en eftir hrun hefur það hýst ýmis menningar- og nýsköpunarverkefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×