Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jarðskjálftahrina við Grímsey Jarðskjálftahrina varð norðaustur af Grímsey um fjögur leitið í gær þegar þar urðu þrír skjálftar upp á 2 til 2,3 á Richter með skömmu millibili. 8.2.2012 07:11
Ekkert bólar á samkomulagi í Grikklandi Enn bólar ekkert á samkomulagi meðal stjórnarflokkanna þriggja í Grikklandi um nauðsynlegar niðurskurðar- og hagræðingaraðgerðir svo landið fái nýtt neyðarlán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu. 8.2.2012 07:09
Argentína kvartar til SÞ vegna Falklandseyja Stjórnvöld í Argentínu ætla að senda inn formlega kvörtun til Sameinuðu þjóðanna vegna þess sem þau kalla hervæðingu Breta á Falklandseyjum. 8.2.2012 06:52
Þyrla sótti veikan 14 mánaða dreng til Vestmanneyja Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gærkvöldi 14 mánaða veikan dreng til Vestmannaeyja og var hann fluttur á barnaspítala Hringsins. 8.2.2012 06:49
Santorum kom, sá og sigraði í þremur prófkjörum Rick Santorum kom sá og sigraði í prófkjörum Repúblikanaflokksins í Minnesota, Missouri og Colorado í nótt. 8.2.2012 06:47
Segir ærumissi ekki skýra meiðyrðamál Meiðyrðamál Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Birni Bjarnasyni er tilraun til að koma höggi á Björn að mati verjanda hans. Alvarleg ærumeiðing að segja Jón Ásgeir dæmdan fyrir fjárdrátt en ekki bókhaldsbrot segir lögmaður hans. 8.2.2012 06:45
Denzel Washington leikur í nýjustu mynd Baltasars Baltasar Kormákur og Mark Wahlberg eiga nú í samningaviðræðum við Hollywood stjörnuna Denzel Washington um að Washington taki að sér annað aðalhlutverkið í myndinni 2 Guns sem þeir Baltasar og Wahlberg hafa ákveðið að gera saman. 8.2.2012 06:44
Kona réðist að öryggisverði í verslun 10-11 Kona í annarlegu ástandi réðst að öryggisverði í verslun 10-11 við Barónstíg á öðrum tímanum í nótt, þar sem hann hafði afskipti af henni vegna þjófnaðar. 8.2.2012 06:35
Fyrir þá sem eru þreyttir á spillingu „Samstaða á að höfða til kjósenda sem hafa fengið nóg af spillingunni í samfélaginu og hafa fengið nóg af misskiptingunni á milli þeirra sem eiga og hinna sem skulda.“ Þetta sagði þingkonan Lilja Mósesdóttir þegar hún kynnti nýjan stjórnmálaflokk sinn, Samstöðu – flokk lýðræðis og velferðar, í Iðnó í gær. Flokkurinn hefur fengið listabókstafinn C. 8.2.2012 06:00
Reykjanesbrautin nú ein öruggasta leiðin Hættulegasti vegur landsins er leiðin milli Neskaupstaðar og Stöðvarfjarðar sem meðal annars liggur í gegnum Oddskarð. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu nýverið. 8.2.2012 04:00
Viðræðurnar dragast enn Grísku stjórninni tókst ekki í gær, frekar en síðustu daga, að leggja lokahönd á nýja aðhaldsáætlun til að tryggja fjárhagsaðstoð frá ESB og AGS. Almenningur í Grikklandi efndi til mótmæla um land allt í gær. 8.2.2012 03:30
Mótmælendur hröktu forsetann úr embætti Mohammed Nasheed, fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Maldíveyja, sagði af sér í gær eftir öflug mótmæli gegn honum. 8.2.2012 02:00
Háhyrningar höfða mál gegn sædýrasafni Alríkisdómari í Bandaríkjunum hafnaði því á mánudag að vísa frá máli sem gæti skorið úr um hvort dýr njóti sömu verndar gegn þrælahaldi og menn. Dýraverndarsamtökin PETA hafa höfðað málið fyrir hönd fimm háhyrninga. 8.2.2012 00:00
Páll Óskar vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision "Ég hef nú þegar hvatt Pál Magnússon til að afþakka þátttöku Íslands í Eurovision í Bakú. Ég vona að hann geri það og taki þessari áskorun minni. Listamaðurinn sem vinnur keppnina á laugardaginn getur líka afþakkað ferðina sjálfur ef hann vill," segir Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari á Facebook-síðu sinni. 7.2.2012 23:20
Liverpool-kötturinn slær í gegn á internetinu Kötturinn sem náði að læðast inn á Anfield, heimavöll knattspyrnuliðsins Liverpool, í gærkvöldi hefur slegið í gegn á internetinu. Stöðva þurfti leikinn í þrjár mínútur á meðan kisi kannaði völlinn en það voru svo vallarstarfsmenn sem tóku hann í fangið og komu honum á betri stað. 7.2.2012 21:20
Bjór með pizza-bragði Síðar á þessu ári kemur bjór með pizza-bragði á markað í Bretlandi. Það er bruggfyrirtæki í Bandaríkjunum sem bruggar bjórinn en hann hefur verið á markaði í Bandaríkjunum í fimm ár með góðum árangri. Í bjórnum eru tómatar og hvítlaukur ásamt kryddunum basil og oreganó. 7.2.2012 20:25
Skilin eftir úti í nístingskulda með feldinn frosinn við stéttina Yfirvöldum hefur borist fjöldi ábendinga vegna illrar meðferðar á hundstík á heimili í Kópavogi, en ekkert hefur verið aðhafst. Þegar verst lét var tíkin skilin eftir úti í nístingskulda með feldinn frosinn við gangstéttina. 7.2.2012 19:30
Samstaða á Patreksfirði: "Við munum ekki breyta um nafn" "Það kemur svolítið á óvart að hún skuli velja akkúrat þetta nafn án þess að hafa samband við okkur. Ég fékk bara tölvupóst áðan frá félaga mínum sem sagði mér frá þessu,“ segir Haukur Már Sigurðsson, formaður Samstöðu á Patreksfirði. 7.2.2012 19:27
Næstu kosningar snúast um trúverðuleika til að framfylgja loforðunum Nýtt stjórnmálaafl, Samstaða, var kynnt til sögunnar í dag. Formaður flokksins er Lilja Mósesdóttir fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna. 7.2.2012 19:15
Lyfjameðferðin kostar 40 milljónir á ári Ungur maður byrjar á árinu í lyfjameðferð á Landspítalanum sem kostar um fjörtíu milljónir á ári. Um er að ræða dýrustu einstöku lyfjameðferð sem að spítalinn hefur veitt. Óttast er að skera þurfi niður lyfjameðferðir vegna kostnaðar. 7.2.2012 18:45
Voru um tíma trúlofuð Maður á þrítugsaldri, sem grunaður er um manndráp í Hafnarfirði, var í dag úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Hann var um tíma trúlofaður konunni sem hann er talinn hafa orðið að bana. Hún lætur eftir sig tæplega tvítugan son. 7.2.2012 18:30
Lilja stofnar Samstöðu - Siggi Stormur er varaformaður Nýr stjórnmálaflokkur, Samstaða, flokkur lýðræðis og velferðar, var kynntur formlega til leiks á blaðamannafundi í dag. Þar fer Lilja Mósesdóttir fremst í flokki. Flokkurinn hefur fengið listabókstafinn C og hyggur hann á framboð í öllum kjördæmum í næstu Alþingiskosningum. 7.2.2012 17:04
Tafir í Keflavík vegna veðurs - farþegar fastir um borð Svo hvasst er á Keflavíkurflugvelli að flugvélar sem þar lenda komast ekki allar upp að flugstöðinni í einu. Því hafa nokkrar vélarnar þurft að bíða með að hleypa fólki frá borði. Samkvæmt upplýsingum Vísis voru farþegar í um fjórum vélum að bíða nú rétt fyrir fimm og verður þeim lagt upp að flugstöðinni eftir því sem veður leyfir. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hefur flug til Ameriku og til Bretlands verið sett i bið þangað til veður lægir. 7.2.2012 17:00
Lýsa eftir vinnuvél Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vinnuvél sem var stolið úr Kjalarvogi við Vogarbakka í Reykjavík sl. fimmtudagsmorgun. 7.2.2012 16:56
Fengu hugmyndina að Geimgæðingum á barnum - áhuginn gríðarlegur "Hugmyndin kviknaði svona eiginlega á barnum,“ segir Þorvaldur S. Gunnarsson, leikstjóri Space Stallions sem á þriðja hundrað þúsund manns hafa barið augum á vefnum YouTube. Það er óhætt að segja að myndbandið, sem var útskrifaverkefni Þorvalds og sex manna hóps sem samanstendur af Íslendingum og Dönum, hafa slegið í gegn. 7.2.2012 16:51
Stúlka varð fyrir líkamsárás í Ármúla Stúlka varð fyrir líkamsárás í Ármúla eftir hádegi í dag. Hópur stúlkna mun hafa ráðist á hana með nokkuð harkalegum hætti að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu. Lögregla veit hverjar stúlkurnar sem að árásinni stóðu voru og ætlar sú sem fyrir henni varð að kæra verknaðinn. Ekki kemur fram í tilkynningu lögreglu hvort stúlkan hafi slasast í árásinni. 7.2.2012 16:29
Upplýsingafulltrúi Marel mun vinna fyrir Hollywoodstjörnur Jón Ingi Herbertsson er að láta af störfum í markaðsdeildinni hjá Marel til þess að fara að vinna í upplýsingadeild Sameinuðu þjóðanna. Hann mun vinna að samskiptum SÞ við kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinn og hluti af vinnunni snýst um að vinna með velgjörðarsendiherrum SÞ. Á meðal þekktustu velgjörðarsendiherranna eru Angelina Jolie, George Clooney, Michael Douglas og Charlize Theron svo dæmi séu nefnd. Aðspurður segist Jón Ingi þó varla hægt að stilla málum þannig upp að hann hafi yfirgefið Marel fyrir Angelinu Jolie. 7.2.2012 16:06
Almannatengill segir nafnavandræði draga úr trúverðugleika "Ég held að það sé alltaf óheppilegt fyrir stjórnmálaöfl að lenda í nafnavandræðum,“ segir Andrés Jónsson, almannatengill. Lilja Mósesdóttir kynnti í dag nafn á nýjum stjórnmálaflokki sínum en hann ber heitið Samstaða. Í frétt á Vísi hér í kvöld var sagt frá því að til er stjórnmálaafl sem heitir Samstaða, en það eru samtök sem voru stofnuð á Patreksfirði árið 1998. Þau eiga núna þrjá fulltrúa í bæjarstjórn bæjarins. 7.2.2012 21:49
Herjólfur siglir ekki vegna veðurs Seinni ferð Vestmannaferjunnar Herjólfs hefur verið felld niður vegna veðurs. Farþegar eru vinsamlega beðnir að hafa samband við afgreiðslu til að breyta pöntun sinni að því er fram kemur í tilkynningu frá Herjólfi. Þá er fólk beðið um að fylgjast með heimasíðu Herjólfs þar sem frekari upplýsingar verða gefnar þegar þær berast. 7.2.2012 16:06
Umferðarljós á Hafnarfjarðarvegi óvirk í nótt Í nótt er áætlað að ljúka breytingum á umferðarljósum á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Fjarðarhraun og Álftanesveg í Engidal. 7.2.2012 15:59
Póstmálum bjargað á Grundarfirði Allt útlit er fyrir að íbúar á Grundarfirði geti áfram fengið póstinn borinn til sín áfram eftir að gengið var frá ráðningu nýs starfsmanns. Útburður á póstinum var til umræðu fyrir fáeinum dögum vegna erfiðleika við að ráða bréfbera til starfans. 7.2.2012 15:10
Geimgæðingar íslenskra listamanna slá í gegn á YouTube Útskriftaverkefni nokkurra Íslendinga í danska skólanum Animation Workshop í Viborg í Danmörku fer nú sigurför á YouTube. Þannig hafa hátt í þrjú hundruð þúsund manns horft á myndbandið frá því það var sett inn í síðustu viku. 7.2.2012 14:36
Frost í Feneyjum Kuldakastið í Evrópu virðist síst vera á undanhaldi og í dag hefur frostið þýtt margskonar tafir á samgöngum. Vegir hafa lokast og flugumferð stöðvast vegna kuldans. Þá voru skólar lokaðir í Róm í dag og um stærstan hluta Ítalíu hefur verið snjókoma. Meðal annars eru hin heimsfrægu síki í Feneyjum nú í klakaböndum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Talið er að tíu manns hafi látist af völdum veðursins á Ítalíu og meðal annars létust tveir þegar snjór féll af þaki of kaffærði þá. 7.2.2012 14:23
Lögðu hald á 400 lítra af gambra og 14 lítra af landa í húsleit Lögreglan á Selfossi haldlagði 400 lítra af gambra og fjórtán lítra af ætluðum landa í húsleit sem þeir gerðu um hádegisbilið í dag. Engin tæki eða tól var að finna í húsnæðinu. Karlmaður á sextugsaldri játaði að hafa átt bruggið. Málið telst upplýst. 7.2.2012 14:09
Fleiri ökumenn undir áhrifum fíkniefna en áfengis Um helgina voru tólf ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. 7.2.2012 13:57
Ráðhúsinu breytt í Lególand Undirbúningur er í fullum gangi fyrir Vetrarhátíð sem sett verður fimmtudaginn 9. febrúar næstkomandi. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir að nú sé í fullum gangi undirbúningur að því að breyta Tjarnarsal Ráðhússins í undraheima Legó. Þar gefst gestum og gangandi "tækifæri á að sýsla með tannhjól, mótora og fleira og boðið verður upp á aðstoð við að skapa eigin módel.“ 7.2.2012 13:36
Utanríkisráðherra Rússa fagnað sem hetju í Rússlandi Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands var fagnað sem þjóðhetju af stuðningsmönnum Assads Sýrlandsforseta þegar Lavrov kom til landsins í dag. Þúsundir veifuðu sýrlenskum og rússneskum fánum á götum höfuðborgarinnar Damaskus en Lavrov kom til borgarinnar til viðræðna við Assad forseta. 7.2.2012 13:31
Reykjanesbrautin einn öruggasti vegur landsins - samt flest slys á ári Hættulegasti vegur landsins er leiðin á milli Neskaupsstaðar og Stöðvarfjarðar sem meðal annars liggur í gegnum Oddsskarð. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu nýverið. Það voru þeir Þóroddur Bjarnason og Sveinn Arnarson sem framkvæmdu rannsóknina. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar, ekki síst vegna þess að Reykjanesbrautin á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar er ein öruggasta leiðin á Íslandi. 7.2.2012 12:45
PIP-púðar fjarlægðir á kostnað ríkisins Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að bjóða öllum konum með PIP-púða að láta fjárlægja þá, þeim að kostnaðarlausu. Kostnaður ríkisins getur numið allt að 150 milljónum. Þær konur sem vilja nýja púða þurfa sjálfar að greiða fyrir aðra aðgerð. 7.2.2012 12:21
Búist við vitlausu veðri þegar líður á daginn Veður fer versnandi um og eftir miðjan daginn í dag og verður ástandið verst á vestanverðu landinu. Veðurstofan gerir ráð fyrir stormi og allt að 20 til 25 metrum á sekúndu og þá er búist við því að það taki að frysta á fjallvegum. 7.2.2012 12:15
Úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald - sætir geðrannsókn Karlmaðurinn, sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana á heimili sínu aðfaranótt mánudags, var í dag í héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 7.2.2012 12:06
Tvö börn urðu fyrir bíl Tvö börn urðu fyrir bíl um klukkan átta í morgun. Í öðru tilfellinu varð barn fyrir bíl við skóla í Hafnarfirði og í hinu tilfellinu varð barn fyrir bíl við skóla í Garðabæ. Ekki liggja fyrir upplýsingar um meiðsl á börnunum. Lögreglan brýnir fyrir fólki að vera sífellt á varðbergi í umferðinni hvort sem er við skóla eða annars staðar. 7.2.2012 11:25
Farið fram á gæsluvarðhald yfir meintum morðingja Karlmaðurinn sem er grunaður um að hafa orðið konu að bana á heimili sínu í gær, er fyrir Héraðsdómi Reykjaness, þar sem farið er fram á gæsluvarðhald yfir honum. Dómari hefur ekki úrskurðað manninn í gæsluvarðhald, en maðurinn hefur margsinnis komist í kast við lögin þrátt fyrir ungan aldur. 7.2.2012 11:21
Eldsneytisþjófur ók á tvo bíla og stakk af Eigandi vörubifreiðar á Ártúnshöfða kom að manni sem var að stela díselolíu af eldsneytistanki bifreiðarinnar. Þegar þjófurinn varð eigandans var kom styggð að honum og flúði hann af vettvangi. Áður en hann komst í burtu hafði hann þó afrekað að bakka utan í vörubílinn og rekast síðan á jeppabifreið sem var á stæðinu. 7.2.2012 11:17
Frændinn talinn sekur en samt sýknaður Maður sem ákærður var fyrir fjölda kynferðisbrota gagnvart bróðurdóttur sinni hefur verið sýknaður í dómi Héraðsdóms Vesturlands frá fyrsta þessa mánaðar. 7.2.2012 11:00