Innlent

Tafir í Keflavík vegna veðurs - farþegar fastir um borð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Svo hvasst er á Keflavíkurflugvelli að flugvélar sem þar lenda komast ekki allar upp að flugstöðinni í einu. Því hafa nokkrar vélarnar þurft að bíða með að hleypa fólki frá borði. Samkvæmt upplýsingum Vísis voru farþegar í um fjórum vélum að bíða nú rétt fyrir klukkan fimm og verður þeim lagt upp að flugstöðinni eftir því sem veður leyfir. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair hefur flug til Ameriku og til Bretlands verið sett i bið þangað til veður lægir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×