Innlent

Segir ærumissi ekki skýra meiðyrðamál

Gestur Jónsson afhenti Jóni Finnbjörnssyni dómara gögn áður en málflutningur lögmanna í meiðyrðamálinu hófst í gær.
Gestur Jónsson afhenti Jóni Finnbjörnssyni dómara gögn áður en málflutningur lögmanna í meiðyrðamálinu hófst í gær. Fréttablaðið/GVA
Meiðyrðamál Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Birni Bjarnasyni er tilraun til að koma höggi á Björn að mati verjanda hans. Alvarleg ærumeiðing að segja Jón Ásgeir dæmdan fyrir fjárdrátt en ekki bókhaldsbrot segir lögmaður hans.

Það er einsdæmi að höfðað sé meiðyrðamál á hendur manni sem vill leiðrétta allt sem hefur verið missagt, og ljóst að annað en meidd æra liggur að baki meiðyrðamáli sem Jón Ásgeir Jóhannesson hefur höfðað á hendur Birni Bjarnasyni, segir Jón Magnússon, verjandi Björns.

Meiðyrðamálið var höfðað vegna rangfærslna í bók Björns, Rosabaugur yfir Íslandi. Í bókinni var meðal annars ranglega sagt að Jón Ásgeir hefði verið sakfelldur fyrir fjárdrátt í Baugsmálinu, þegar hið rétta er að hann var sakfelldur fyrir meiri háttar bókhaldsbrot.

Aðalmeðferð í málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Björn leiðrétti rangfærslurnar í annarri prentun bókarinnar, í aðsendri grein í Morgunblaðinu og á vef sínum, og bað Jón Ásgeir afsökunar á ummælunum, sagði Jón Magnússon í dómsal í gær.

„Þetta er eitt sérkennilegasta meiðyrðamál sem höfðað hefur verið á Íslandi,“ sagði Jón. Hann sagði augljóst að enginn ásetningur hafi verið hjá Birni að meiða æru Jóns Ásgeirs og erfitt að sjá hverju meiðyrðamál eigi að skila.

Jón sagði að ekki þyrfti að gera annað en að lesa bókina í heild sinni til að sjá að rétt sé farið með allt sem máli skipti. Málið sé tilraun til að koma höggi á Björn, og hafi ekkert með æru að gera.

Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, sagði vart hægt að deila um að með því að fullyrða að Jón Ásgeir hafi verið dæmdur fyrir fjárdrátt en ekki bókhaldsbrot hafi æra hans verið meidd.

Þrátt fyrir að Björn hafi leitast við að leiðrétta rangfærslurnar gerði hann það aðeins að hluta, sagði Gestur. Í annarri prentun bókarinnar segi enn að Jón Ásgeir hafi verið sakaður um fjárdrátt í ákærulið þar sem hann hafi ekki verið ákærður, og sakfelldur fyrir þann ákærulið.

„Þessi ummæli sem krafist er ómerkingar á eru röng og meiðandi, og fela í sér aðdróttanir,“ sagði Gestur í dómsal í gær. Um það breyti afsökunarbeiðni í skötulíki engu, enda verði ærumeiðing ekki refsilaus þó að gerandinn iðrist.

Gestur sagði að horfa verði til þess að Björn sé löglærður maður og hafi starfað sem dómsmálaráðherra stærstan hluta þess tíma sem Baugsmálið var rekið hjá lögreglu og fyrir dómstólum. Til þess verði að líta við ákvörðun refsingu.

Jón Ásgeir krefst einnar milljónar króna í miskabætur af Birni og 300 þúsunda að auki til að kosta birtingu dómsins.

brjann@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×