Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Háhyrningar stefna Sea World fyrir þrælahald All sérkennilegt dómsmál er nú rekið fyrir dómstól í Flórída en sækjendurnir í því eru fimm háhyrningar sem eru í eigu skemmtigarðsins Sea World. 7.2.2012 07:14
Roskin hjón sluppu ómeidd úr eldsvoða Roskin hjón sluppu ómeidd út en töluvert tjón varð, þegar eldur kviknaði í einbýlishúsi við Eikjuvog í Reykjavík í gærkvöldi. 7.2.2012 07:03
Ferðakonan í Hvalfirði þakkaði Neyðarlínunni fyrir hjálpina Dönsk ferðakona, sem björgunarsveitarmenn komu til hjálpar í ofsaveðri í Hvalfirði í fyrrinótt, heimsótti starfsfólk Neyðarlínunnar í gærkvöldi og færði því körfu með góðgæti, í þakklætisskyni fyrir þátt þeirra í björguninni. 7.2.2012 07:01
Þrjú prófkjör hjá Repúblikönum í dag Prófkjör verða hjá Repúblikönum í þremur ríkjum í dag en það eru Colorado, Minnesota og Missouri. 7.2.2012 06:58
Varað við stormi á öllu landinu Veðurstofan varar við stormi á öllu landinu og á flestum miðum og djúpum umhverfis landið. 7.2.2012 06:56
Framsýn vill fund um málefni Stapa-lífeyrissjóðs Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að fara þess á leit við stjórn Stapa-lífeyrissjóðs að þegar í stað verði boðað til fulltrúaráðsfundar í sjóðnum. 7.2.2012 06:55
Jarðskjálftinn á Filippseyjum kostaði 15 mannslíf Að minnsta kosti 15 manns létu lífið í öflugum jarðskjálfta sem varð við Filippseyjar í gær. 44 er enn saknað og rúmlega 50 eru slasaðir. 7.2.2012 06:52
Kjósarhreppur hafnar hugmyndum um nýja háspennulínu Hreppsnefnd Kjósarhrepps hafnar með öllu hugmyndum Landsnets um að leggja nýja háspennulínu frá Geithálsi í gegnum hreppinn og að Grundartanga, til að mæta aukinni orkuþörf þar. 7.2.2012 06:51
Miðaldra par gerði sig heimakomið í tómri íbúð Lögregla handtók í gærkvöldi par á miðjum aldri, sem hafði komið sér fyrir í tómri íbúð í austurborginni. 7.2.2012 06:47
Þolinmæðin gagnvart leiðtogum Grikklands á þrotum Grísk stjórnvöld eru farin að reyna mjög á þolinmæði annarra leiðtoga ríkja á evrusvæðinu. 7.2.2012 06:42
Óreglumaður í haldi grunaður um morð Ungur maður kom í annarlegu ástandi á lögreglustöð í gær og átti erfitt með að gera sig skiljanlegan. Í kjölfarið fannst látin kona á heimili hans og svo virðist sem henni hafi verið ráðinn bani með hníf. Maðurinn er góðkunningi lögreglu. 7.2.2012 06:15
Brottnám PIP-púða kostar tugi milljóna Velferðarráðherra mælist til að allar konur með PIP-púða geti látið fjarlægja þá á Landspítalanum. Hópur kvenna vill nýta aðgerðina til að fá nýja púða. Gætt verður að hagsmunatengslum og enginn mun vísa á sjálfan sig, segir ráðherra. 7.2.2012 06:00
Ríkisstjórnin hrökklast frá Ríkisstjórn Rúmeníu hefur sagt af sér vegna mikillar ólgu og mótmæla undanfarnar vikur. Aðhaldsaðgerðir að kröfu AGS og EBS eru óvinsælar. 7.2.2012 05:00
Sprengjum rigndi á Homs Stjórnarherinn í Sýrlandi gerði öflugar sprengjuárásir á borgina Homs í Sýrlandi í gær, þar sem harðir bardagar við uppreisnarmenn hafa staðið yfir undanfarna daga. Þetta eru hörðustu árásir stríðsins til þessa. 7.2.2012 03:15
Sagðist eiga skilið heiðursmerki Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sagðist eiga skilið heiðursmerki og krafðist þess að vera látinn laus. 7.2.2012 01:00
Handleggirnir geta sagt til um sjúkdóma Mishár blóðþrýstingur í handleggjum fólks getur verið merki um sjúkdóma í æðakerfinu samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem gerð var við Exeter-háskóla í Bretlandi. 6.2.2012 23:15
Er hreinn sveinn en á samt fjórtán börn Þrjátíu og sex ára gamall bandaríkjamaður er talinn hafa feðrað fjórtán börn þrátt fyrir að vera hreinn sveinn. 6.2.2012 22:26
Ómar Stefáns: Við þurfum tilfinningalegt svigrúm eins og forsetinn "Maður finnur fyrir því að bæjarbúar vilja fara að fá niðurstöðu í þessi mál en eins og forsetinn sagði þá þurfum við smá tilfinningalegt svigrúm," segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi. 6.2.2012 21:53
Yfirvöld í Íran banna Simpson Yfirvöld í Íran hafa nú bannað leikföng af bandarísku þáttaröðinni Simpson og er nu bannað að selja eða eiga slík leikföng í landinu. Það er þó í lagi að eiga Superman og Spiderman. 6.2.2012 21:09
Slær í gegn á Youtube Borðtennispilturinn Jamie hefur fengið gríðarlega mikla athygli á veraldarvefnum síðustu daga. En í myndskeiði sem birt var á myndbandasíðunni Youtube.com sést hann sitja á borðtennisborði og faðir hans dælir í hann kúlum sem hann slær af miklum krafti. Ekki fylgir sögunni hversu gamall Jamie er en hann er eflaust eins til tveggja ára. 6.2.2012 20:28
Íbúarnir fóru út úr brennandi húsi Eldur kom upp í húsi í Eikjuvogi í Reykjavík um klukkan hálf átta í kvöld. Þegar slökkvilið kom á staðinn voru tveir íbúar í húsinu komnir út. Slökkviliðið náði hinsvegar tökum á eldinum á skömmum tíma og hefur nú slökkt hann. Oddur Hallgrímsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, segir í samtali við fréttastofu að tjón sé vegna elds og reyks en unnið er að því að reykræsta húsið. Eldsupptök eru ókunn. 6.2.2012 19:57
Helgi í Góu um lífeyrissjóðina: "Bíddu, hvaða rugl er þetta?" „Það var nú gert grín að mér þegar ég var að tala um þetta, en það hefur ýmislegt komið í ljós," segir Helgi Vilhjálmsson, oft kenndur við sælgætisgerðina Góa. 6.2.2012 19:41
Gefa skýrslu um fundinn fræga 7. febrúar nái Landsdómsmál fram að ganga Verði ákæra á hendur Geir H. Haarde ekki felld niður fær þjóðin í fyrsta sinn frásögn fyrir dómi um hvaða upplýsingum bankastjórn Seðlabankans kom á framfæri við þrjá ráðherra í ríkisstjórninni um alvarlega stöðu íslensku bankanna sjöunda febrúar 2008. Fimmtíu og sex eru á vitnalista ákæruvaldsins í málinu en þar má finna ráðherra, bankastjóra og embættismenn. 6.2.2012 19:13
Íbúi við Skúlaskeið í Hafnarfirði: "Þetta er bara harmleikur" „Þetta er bara harmleikur," segir íbúi við Skúlaskeið í Hafnarfirði en karlmaður á þrítugsaldri er nú í haldi lögreglu grunaður um að hafa myrt konu á fertugsaldri í húsi við götuna í nótt. 6.2.2012 19:01
Nýja þyrlan hvorki með nætursjónauka né hitamyndavél Nýja leiguþyrla landhelgisgæslunnar er illa útbúin og hefur takmarkaða getu til að sinna björgunarstörfum að nóttu til. Í vélinni er hvorki nætursjónauki né hitamyndavél. 6.2.2012 18:45
Ólafur sendi nýjum forseta Finnlands kveðju frá þjóðinni Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag nýkjörnum forseta Finnlands, Sauli Niinistö, hamingjuóskir frá íslensku þjóðinni. Í kveðjunni minnti Ólafur Ragnar á trausta og langvarandi vináttu Finna og Íslendinga, þjóða sem báðar tilheyrðu hinni norrænu fjölskyldu. Í tilkynningu frá embættinu segir að Ólafur hafi jafnframt bent á að málefni Norðurslóða væru sameiginlegt hugðarefni þjóðanna sem hafa mundi sívaxandi þýðingu á komandi áratugum. 6.2.2012 17:50
Morð í Hafnarfirði - einn í haldi lögreglu Karl á þrítugsaldri er í haldi lögreglunnar, grunaður um manndráp samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 6.2.2012 16:44
Auka þvinganir gegn Íran Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ákvað í dag að allar eigur íranska ríkisins í Bandaríkjunum skuli frystar. Þannig hefur Obama sett harðari þvinganir á írönsk stjórnvöld, þar með talið seðlabankann. 6.2.2012 16:25
Stal lunda og fór með hann á Lundann Um helgina var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt að uppstoppuðum lunda hafi verið stolið af skemmtistaðnum Conero. Þetta kemur fram á vefnum Eyjarfréttir.is 6.2.2012 16:24
Bandaríska sendiráðinu í Sýrlandi lokað Bandaríkjamenn hafa lokað sendiráði sínu í Sýrlandi þar sem ekkert lát virðist vera á óöldinni sem þar ríkir. CNN fréttastofan hefur eftir starfsmanni utanríkisráðueytisins að sýrlensk yfirvöld hafi neitað að verða við óskum um aukna öryggisgæslu við sendiráðið og því hafi verið ákveðið að senda allt starfsliðið heim. 6.2.2012 15:35
Lilja kynnir nýtt stjórnmálaafl - hvorki til vinstri né hægri Lilja Mósesdóttir hefur formlega stofnað nýtt stjórnmálaafl en framboðið mun bjóða fram í öllum kjördæmum landsins samkvæmt tilkynningu frá Lilju. Sjálf sagði Lilja sig úr þingflokki Vinstri grænna fyrir um ári síðan ásamt Atla Gíslasyni. Síðar sögðu þau sig formlega úr flokknum sjálfum. 6.2.2012 15:32
Sýknaður af því að misnota bróðurdóttur sína - málið fyrnt Karlmaður var sýknaður af því að hafa misnotað dóttur bróðir síns ítrekað árin 1990 til 1996 þegar stúlkan var sex til þrettán ára gömul, í Héraðsdómi Vesturlands í síðustu viku. 6.2.2012 15:25
Átt þú þessa skartgripi? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda skartgripa sem eru í hennar vörslu. Gripirnir sjást á meðfylgjandi mynd og einnig er leitað að eiganda snyrtivara sem sjást líka á myndinni. 6.2.2012 15:25
Stjórnarmeirihlutinn jókst um einn mann Stjórnarmeirihlutinn styrktist um einn mann í dag þegar Arndís Soffía Sigurðardóttir, þingmaður VG, tók sæti sem varamaður Atla Gíslasonar þingmanns á Alþingi. Ólíkt Atla, sem hefur yfirgefið þingflokk VG, styður Arndís Soffía stjórnarmeirihlutann. Því má segja að meirihlutinn hafi styrkst tímabundið um einn mann. Ríkisstjórnin verður því með 33 manna meirihluta næsta hálfa mánuðinn í stað 32 eins og venja er þegar Atli Gíslason er á þingi. 6.2.2012 14:36
Leikskólakennarar gáfu sveitarfélögum tæpar 400 þúsund Haraldur F. Gíslason, formaður Félags Leikskólakennara, afhenti í dag Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands sveitarfélaga, risaávísun að andvirði 363 þúsund krónur. Peningurinn er afrakstur söfnunar sem leikskólakennarar efndu til með styrktartónleikum fyrir sveitarfélögin vegna kjarabaráttu sinnar. Ávísunin er afhent í tilefni þess að í dag er Dagur leikskólans. 6.2.2012 14:14
Jón tapaði fyrir Persónuvernd - þarf að greiða 100 þúsund í málskostnað Máli Jóns Magnússonar, hæstaréttarlögmanns og fyrrverandi þingmanns, gegn Persónuvernd var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ástæðan var sú að Jón gat ekki sýnt fram á að hann ætti lögvarðra hagsmuna að gæta í málinu. 6.2.2012 14:09
Sjá gjaldtöku ekki sem lausn "Þetta er ekki lausn á málinu og við höfum ekki hugsað út í þetta á þennan hátt," segir Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri björgunar- og slysavarnarsviðs hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg, um hugmyndir Ólínu Þorvarðardóttur vegna tryggingamála í tengslum við bíla sem sitja fastir í snjósköflum og ófæru. 6.2.2012 13:44
Breivik segir gjörðir sínar ekki vera refsiverðar Anders Behring Breivik, fjöldamorðinginn í Útey og Osló, neitar því að gjörðir hans séu refisverðar. Þetta sagði hann þegar að hann mætti fyrir rétt í Osló í dag. Hann var færður í dómhúsið í handjárnum í fylgd tveggja lögreglumanna. Eins og kunnugt er, gengst Breivik við því að hafa orðið 77 manns að bana þann 22. júlí síðastliðinn. 6.2.2012 13:12
Tvö fyrirtæki nota Skráargatið Að minnsta kosti tvö matvælafyrirtæki hér á landi hafa ákveðið að taka upp hollustumerkið Skráargatið á völdum vörum. Þó er ekki búið að innleiða merkið formlega hér á landi. 6.2.2012 14:00
Árásum á Homs haldið áfram Stjórnarherinn í Sýrlandi hefur í dag haldið áfram árásum á borgina Homs og fleiri borgir sem hafa verið vígi mótmælenda í landinu síðustu mánuði. Að minnsta kosti fimmtíu hafa fallið í Homs í dag að því er Sky fréttastofan hefur eftir mótmælendum í borginni. Árás hersins er viðamikil og hafa hermennn látið til skarar skríða í tólf hverfum á sama tíma. 6.2.2012 13:38
Segir fráleitt að AGS hafi lagt til lokun menningarstofnana Franek Rozwadowski fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi vísar því alfarið á bug að sjóðurinn hafi á sínum tíma gert tillögu um að loka ríkisreknum menningarstofnunum í sparnaðarskyni. 6.2.2012 12:19
Réttað yfir fyrrverandi garðyrkjustjóra Orkuveitunnar Aðalmeðferð stendur nú yfir í máli Kristins H. Þorsteinssonar, fyrrverandi garðyrkjustjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur, sem var ákærður af sérstökum saksóknara fyrir fjárdrátt. 6.2.2012 11:59
Eyjafjallajökull fyrir Evrópudómstólinn Evrópudómstóllinn í Lúxemborg mun í þessari viku fella úrskurð í mikilvægu máli sem snýst um viðskiptavin Ryanair flugfélagsins og bætur henni til handa. Eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010 spilar stóra rullu í málinu en niðurstaða dómstólsins gæti haft gríðarleg áhrif á flugrekstur í framtíðinni komi til þess að lofthelgi verði lokað sökum náttúruhamfara á borð við eldgos. 6.2.2012 11:59
Svaf fyrir framan Ráðhúsið í Þorlákshöfn - vildi spara pening Lögreglan á Selfossi sinnti heldur sérkennilegu útkalli í nótt. Þeim barst tilkynning um mann með svefnpoka sem væri að leggja sig til við Ráðhúsið í Þorlákshöfn. 6.2.2012 11:44
Þyrlan farin í loftið - veður frekar slæmt Þyrla Landhelgisgæslunnar er farinn í loftið til þess að sækja breskan ferðmann sem slasaðist á göngu sinni frá Laugafelli suður í Nýjadal eða Sprengisandsleið eins og gönguleiðin er að jafnan kölluð. 6.2.2012 11:36