Háhyrningar höfða mál gegn sædýrasafni 8. febrúar 2012 00:00 Hvalir Háhyrningurinn Tilikum sýnir listir sínar í sædýrasafni Seaworld.
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hafnaði því á mánudag að vísa frá máli sem gæti skorið úr um hvort dýr njóti sömu verndar gegn þrælahaldi og menn. Dýraverndarsamtökin PETA hafa höfðað málið fyrir hönd fimm háhyrninga. Í stefnu PETA segir að farið sé með háhyrningana eins og þræla í sædýrasöfnum Seaworld. Þeir séu neyddir til að skemmta gestum og búa í glerbúrum. Theodore Shaw, lögmaður Seaworld, krafðist þess að málinu yrði umsvifalaust vísað frá dómi, en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann sagði dómsmálið sóun á bæði tíma og peningum. PETA vísar til ákvæða í stjórnarskrá Bandaríkjanna, sem leggur blátt bann við þrælahaldi. Þessu mótmælir Shaw og bendir á að stjórnarskráin nái aðeins yfir réttindi manna. Þar sé raunar ekkert fjallað um mannréttindi dýra, hvorki smáhvela né annarra. Slík réttindi gætu að auki haft áhrif víðar, til dæmis mætti líta til lögregluhunda, eldiskjúklinga og annarra dýra. Dómarinn ákvað að vísa málinu ekki strax frá, heldur tekur sér umhugsunarfrest til að íhuga næstu skref þessa óvenjulega dómsmáls. Óvíst er hvort háhyrningarnir Tilikum, Katina, Kasatka, Corky og Ulises bíða spenntir eftir niðurstöðunni, þó að málið sé höfðað í þeirra nafni. - bj
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira