Erlent

Ekkert bólar á samkomulagi í Grikklandi

Enn bólar ekkert á samkomulagi meðal stjórnarflokkanna þriggja í Grikklandi um nauðsynlegar niðurskurðar- og hagræðingaraðgerðir svo landið fái nýtt neyðarlán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu.

Fundað verður áfram um málið í dag. Til mikilla óeirða kom í Aþenu í gærdag þar sem verkalýðsfélög fóru í sólarhringsverkfall.

Óeirðalögreglan greip inn í óeirðirnir á einu torga borgarinnar þegar verkfallsmenn hófu að brenna þar þýska fánann og fána með hakakrossinum á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×