Innlent

Fleiri ökumenn undir áhrifum fíkniefna en áfengis

Um helgina voru tólf ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Garðabæ.

Fimm voru teknir á laugardag og sjö á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 17-34 ára og þrjár konur, 21-28 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Fjórir voru teknir á laugardag og sex á sunnudag. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 18-51 árs og þrjár konur, 21-23 ára. Tveir þessara ökumanna hafa aldrei öðlast ökuréttindi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×