Innlent

Reykjanesbrautin nú ein öruggasta leiðin

Við Fáskrúðsfjarðargöng Stóraukið umferðaröryggi fékkst með opnun Fáskrúðsfjarðarganga. Þrátt fyrir það er leiðin milli Stöðvarfjarðar og Neskaupstaðar hættulegri en flestar.
fréttablaðið/gva
Við Fáskrúðsfjarðargöng Stóraukið umferðaröryggi fékkst með opnun Fáskrúðsfjarðarganga. Þrátt fyrir það er leiðin milli Stöðvarfjarðar og Neskaupstaðar hættulegri en flestar. fréttablaðið/gva
Hættulegasti vegur landsins er leiðin milli Neskaupstaðar og Stöðvarfjarðar sem meðal annars liggur í gegnum Oddskarð. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu nýverið.

Það voru þeir Þóroddur Bjarnason félagsfræðingur og Sveinn Arnarson félagsfræðinemi sem framkvæmdu rannsóknina. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar, ekki síst vegna þess að Reykjanesbrautin á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar er ein öruggasta leiðin á Íslandi.

Fræðimennirnir reiknuðu út að miðað við milljón ekna kílómetra væru fæst slys á Reykjanesbrautinni, en aftur á móti kemur fram að flest slys verða þar. Munurinn er hins vegar sá að miðað við umferðina er vegurinn nokkuð öruggur.

Tímabilið sem var skoðað var frá 2007 til 2010. Fram kemur að hættulegasti vegarkaflinn utan þéttbýlis er leiðin milli Neskaupstaðar og Stöðvarfjarðar um Oddsskarð og Fáskrúðsfjarðargöng. Í öðru sæti var vegurinn frá Hellissandi að Stykkishólmi en vegurinn frá Þingeyri til Súðavíkur um Gemlufallsheiði og Vestfjarðagöng í þriðja sæti. Í fjórða sæti var kaflinn frá Seyðisfirði til Reyðarfjarðar um Fjarðarheiði og Fagradal. Vegurinn milli Jökulsárlóns og Skaftafells er sá öruggasti á landinu, miðað við sömu forsendur.

Þannig segir í greininni að sé litið á umferðaröryggi út frá forsendum lýðheilsu er brýnast að draga úr fjölda slysa á Reykjanesbraut, Suðurlandsvegi allt að Hvolsvelli og Vesturlandsvegi norður yfir heiðar til Akureyrar, og helstu vegum á Mið-Austurlandi.

- vg, shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×