Innlent

Reykjanesbrautin einn öruggasti vegur landsins - samt flest slys á ári

Reykjanesbraut.
Reykjanesbraut. Mynd / Vilhelm Gunnarsson
Hættulegasti vegur landsins er leiðin á milli Neskaupsstaðar og Stöðvarfjarðar sem meðal annars liggur í gegnum Oddsskarð. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu nýverið. Það voru þeir Þóroddur Bjarnason og Sveinn Arnarson sem framkvæmdu rannsóknina. Niðurstöðurnar eru athyglisverðar, ekki síst vegna þess að Reykjanesbrautin á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar er ein öruggasta leiðin á Íslandi.

Þannig reiknuðu fræðimennirnir út að miðað við milljón ekna kílómetra væru fæst slys á Reykjanesbrautinni. Aftur á móti kemur fram að flest slys verða sannarlega á Reykjanesbrautinni. Munurinn er hinsvegar sá að miðað við umferðina þá er vegurinn nokkuð öruggur. Tímabilið sem var skoðað var frá 2007 til 2010.

Í grein fræðimannanna segir til útskýringar: „Fjöldi slysa var reiknaður annars vegar á hvern km en hins vegar á hverja milljón ekna km. Við mat á hættulegustu vegarköflunum var litið á báðar þessar stærðir og þær látnar hafa jafnt vægi".

Flest slys verða á Reykjanesbraut, milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur, á hverjum eknum kílómetra (10,3 slys/km). Í öðru sæti er síðan Suðurlandsvegur milli Reykjavíkur og Selfoss (10 slys/km). Í þriðja sæti er svo Vesturlandsvegur frá Þingvallaafleggjara að Borgarnesi (6,2 slys/km).

Niðurstöðurnar líta öðruvísi út þegar hættulegustu vegarkaflarnir, utan þéttbýlis þegar miðað var við meðaltöl raðtalna fyrir bæði fjölda og tíðni slysa, eru skoðaðir.

Vegurinn milli Neskaupsstaðar og Stöðvarfjarðar um Oddsskarð og Fáskrúðsfjarðargöng reyndist samkvæmt þessu líkani hættulegasti vegur landsins, en hann var í 10. sæti yfir þá vegi þar sem flest slys verða á hvern km vegar og 8. sæti yfir þá kafla þar sem flest slys verða á milljón ekna km. Í öðru sæti var vegurinn frá Hellissandi að Stykkishólmi á Vesturlandi en vegurinn frá Þingeyri til Súðavíkur á Vestfjörðum um Gemlufallsheiði og Vestfjarðagöng í þriðja sæti. Í fjórða sæti var kaflinn frá Seyðisfirði til Reyðarfjarðar um Fjarðarheiði og Fagradal.

Samkvæmt þessu líkani er vegurinn á milli Jökulárlóns og Skaftafells sá öruggasti á landinu.

Greinarhöfundar fjalla svo nokkuð um svokallaða „núllsýn".

Þannig segir í greininni: „Á síðustu misserum hefur verið lögð áhersla á svonefnda „núllsýn" umferðaröryggis þar sem stefnt er að engum umferðarslysum. Sé litið á umferðaröryggi út frá forsendum lýðheilsu er brýnast að draga úr fjölda slysa á Reykjanesbraut, Suðurlandsvegi allt að Hvolsvelli og Vesturlandsvegi norður yfir heiðar til Akureyrar, og helstu vegum á Mið-Austurlandi. Út frá öryggi einstaklinga er hins vegar nauðsynlegt að huga sérstaklega að fáfarnari vegum á norðausturhorni landsins, frá Kópaskeri og austur á Hérað, norðanverðu Snæfellsnesi og öllum helstu vegum á sunnanverðum og norðanverðum Vestfjörðum, frá Brjánslæk að Súðavík."

Hægt er að nálgast greinina í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×