Fleiri fréttir

Átján hundruð milljónir í einum lottópotti

Það stefnir í að aðalvinningurinn í Víkingalottóinu á miðvikudaginn kemur verði sá næststærsti sem spilað hefur verið um frá því að Víkingalottóið hóf göngu sína hér á landi.

Vatnsauðlindinni tryggð vernd

Innleiðing vatnatilskipunar Evrópusambandsins er hafin í samræmi við lög sem voru samþykkt á Alþingi vorið 2011 um stjórn vatnamála. Lögin fela í sér innleiðingu vatnatilskipunarinnar í íslenskan rétt. Tilgangurinn er að tryggja verndun og heilnæmi vatns á Íslandi til framtíðar.

Framhaldsnám sé á Hólmavík

Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri Strandabyggðar, lagði á fundi með fjárlaganefnd Alþingis á föstudag megináherslu á að undirbúningur við stofnun framhaldsdeildar á Hólmavík verði hafinn árið 2012.

Hollande sigraði í forvalinu

Francois Hollande sigraði í gær í forkosningum Sósíalistaflokksins í Frakklandi. Hann verður því frambjóðandi flokksins til forseta landsins á næsta ári.

Byltingar þörf til að takast á við kreppu

„Eftirspurn eftir mat er að verða meiri en framboðið. Undanfarin tíu ár hefur verið framleitt minna af fæðu en þörf er fyrir,“ segir Julian Cribb, prófessor í miðlun vísindalegrar þekkingar. Cribb skrifaði bókina The Coming Famine – The Global food crisis and what we can do to avoid it, eða Hungursneyðin yfirvofandi – alþjóðlega matarkreppan og hvað við getum gert til að forðast hana. Cribb heldur fyrirlestur í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar klukkan tólf í dag.

Ingibjörg Sólrún á leið til Kabúl

Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, hefur verið boðið starf yfirmanns UN Women í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Þetta staðfesti Ingibjörg Sólrún við Fréttablaðið í gær. Hún er nú í viðræðum við stofnunina um að taka að sér starfið, en slíkar ráðningar eru tímafrekar sökum pappírsvinnu og annars.

Ákalli norskrar eyju svarað úr Borgarnesi

Með flutningi 13 Íslendinga til eyjunnar Fjelberg undan Noregsströnd hefur eyjarskeggjum fjölgað um 10 prósent. Eyjan fékk styrk frá norska ríkinu til þess að laða til sín barnafjölskyldur og var ákveðið að auglýsa eftir þeim á Íslandi. Nú eru þrjár íslenskar fjölskyldur búsettar á Fjelberg ásamt þeim 108 íbúum sem fyrir voru.

Nálgunarbann eftir grófa árás

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að karlmaður skuli sæta brottvísun af heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar og nálgunarbanni í fjórar vikur, eftir að hann hafði gengið í skrokk á henni með þeim afleiðingum að hún fékk meðal annars heilahristing.

Sýnir verk með stórstjörnum

Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður sýnir í hinu virta hönnunarsafni Triennale í Mílanó fyrst Íslendinga. Þar tekur Þórunn þátt í stórri samsýningu og er ekki í amalegum félagsskap þar sem verk eftir heimsþekkta listamenn á borð við Damien Hirst og Louise Bourgeois eru til sýnis.

Damanaki boðar minni miðstýringu

Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri ESB, leggur mikla áherslu á að draga úr miðstýringu við endurskoðun sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu sambandsins.

Alls eru 297 látnir í Taílandi

Tala látinna af völdum flóðanna í Taílandi hefur nú hækkað upp í 297 en miklir rigningar hafa verið í landinu síðustu tvo mánuði. Talið er að yfir 8,5 milljónir manna í 61 héraði hafi orðið fyrir barðinu á flóðunum. Búist var við meiri rigningu á sunnudag í fleiri héruðum sem og í höfuðborginni, Bangkok. Þar vinna hjálparstarfsmenn að því að breikka skurði og styrkja flóðvarnir í kringum borgina.

Hafa gefið út nöfnin á föngunum sem verður sleppt

Stjórnvöld í Ísrael hafa gefið út nöfn á þeim fjögur hundruð sjötíu og sjö föngum frá Palestínu sem sleppt verður í skiptum við Ísraelska hermanninn Gilad Shalit sem situr nú í fangelsi í Palestínu. Forseti Ísrael Simon Peres hefur hafið náðunarferli fangana.

Varað við stormi

Búist er við stormi á Norðvestur landinu í dag og einnig Suðaustanlands á morgun.

Slegist fyrir utan Manhattan - rólegt á Airwaves

Líkamsárás átti sér stað fyrir utan veitingastaðinn Manhattan í Keflavík í nótt. Nokkrum mönnum lenti þar saman og var einn barinn í höfuðið með glasi. Hann hlaut þó ekki alvarlega áverka en ryskingarnar stöðvuðust þegar lögregla mætti á svæðið. Þá var tilkynnt um líkamsárás á skemmtistaðnum 800 bar á Selfossi um hálffjögurleytið í nótt.

Mikið um hálkuslys

Mikil hálka var í morgun og virtist koma mörgum í opna skjöldu. Þannig urðu sjö umferðaróhöpp í nótt og tvær bílveltur á Suðurlandsvegi eftir miðnætti í nótt.

Hafa áhyggjur af börnum með snjallsíma

Ef trylltir uppvakningar og þrýstnar stúlkur í leit að sætum strákum myndu rata í barnatímana yrði líklega eitthvað sagt. Þannig hafa bandarískir foreldrar verulegar áhyggjur af snjallsímum, sem fjölmörg börn hafa undir höndum, en þangað virðist "óviðeigandi“ efni eiga greiða leið í formi smáforrita (apps).

Pylsusali reyndist líka vera vopnasali

Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn af lögreglunni í San Jose í Bandaríkjunum í september ásamt meintum vitorðsmanni sínum, sem er rúmlega tvítugur, fyrir að selja vopn úr pylsuvagni.

Manngerðir jarðskjálftar: "Það er alls ekki í lagi“

"Ég hef aldrei orðið fyrir alvarlegum óþægindum af þessu eins og ég segi er ég ekki hrædd, manni bara bregður. En sú tilhugsun að þetta er af mannavöldum? Það finnst mér aftur ekki í lagi, alls ekki í lagi,“ segir Anna Halla Hallsdóttir, íbúi í Hveragerði um jarðskjálftana en íbúum er verulega brugðið eftir morguninn, enda skóku tveir skjálftar bæinn á innan við klukkustund. Báðir mældust fjórir á richter.

Rólegt á starfakynningu

Það var rólegt um að litast á starfakynningu Vinnumálastofnunar og evrópsku vinnumiðlunarinnar í dag, þar sem Íslendingar gátu kynnt sér atvinnutækifæri í öðrum Evrópuríkjum.

Mótmæli víða um heim - Assange mótmælti í London

Fjölmenn mótmæli fóru fram í miðborginni í dag sem og í fjölmörgum löndum. Hundruð manna voru samankomnir á Austurvelli þar sem Hörður Torfason hélt ræðu. Á sama tíma fóru fram önnur mótmæli á Lækjartorgi. Þau eru hluti af mótmælum á heimsvísu þar sem meðal annars Julian Assange mótmælti.

Fjölmenn mótmæli í miðborginni

Fjölmenni eru samankomin á Austurvelli þar sem Hörður Torfason heldur byltingaræðu. Þar fara nú fram önnur mótmæli dagsins, en hin eru á Lækjartorgi, og eru hluti af heimsmótmælum.

Skjálftarnir voru fjórir á richter

Báðir jarðskjálftarnir í morgun reyndust vera fjórir á richter samkvæmt upplýsingum jarðvísindamanna á Veðurstofu Íslands.

Orkumálastjóri: Skjálftarnir ekki endilega af mannavöldum

„Á þessu svæði, sem verið er að vinna á, þá hafa skjálftar verið í mesta lagi fimm til sex á ricther,“ segir Guðni Albert Jóhannesson, Orkumálastjóri, en Orkumálastofnun hefur að beiðni iðnaðarráðuneytisins fylgst með niðurdælingum Orkuveitu Reykjavíkur á svæðinu, sem hefur skapað fjölda smáskjálfta.

Birta dóm í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á netinu

Embætti ríkissaksóknara hefur birt dóminn í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu á vefsvæði sínu vegna mikillar, "og stundum villandi, umfjöllunar um svonefnt Guðmundar- og Geirfinnsmál undanfarið“ eins og segir í tilkynningu frá embættinu. Þar má lesa bæði dóm sakadóms Reykjavíkur og Hæstaréttar í sakamálinu á hendur Erlu Bolladóttur, Guðjóni Skarphéðinssyni, Kristjáni Viðari Viðarssyni, Sævari Marinó Ciesielski, Tryggva Rúnari Leifssyni og fleirum.

Ófært á Hrafnseyrarheiði vegna snjóflóða

Allar aðalleiðir eru auðar um sunnanvert landið og eins á Austurlandi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Á Vesturlandi er snjóþekja á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Fróðárheiði og Svínadal.

Tvenn mótmæli í miðbænum í dag

Boðað hefur verið til tveggja mótmælafunda í miðbæ Reykjavíkur, en kveikjan að þeim báðum eru alþjóðleg mótmæli sem fram fara víða um heim í dag.

Réðust á lögregluna

Þrír menn réðust að nokkrum lögregluþjónum í Sandgerði um ellefuleytið í gærkvöldi. Lögregla var kölluð að heimahúsi í bænum og stöðvaði mennina þegar þeir voru á leið þar út.

Flugfreyjur á leið í verkfall

Flugfreyjufélag Ísland felldi í gær nýjan kjarasamning við Icelandair og er þetta í annað sinn sem flugfreyjur hjá fyrirtækinu hafna samningi sem samninganefnd þeirra hefur gert.

Tveir snarpir jarðskjálftar nærri Hveragerði

Jarðskjálfti upp á 3,8 á richter skók jörðu rétt eftir klukkan níu í morgun. Upptök skjálftans voru við Hellisheiðarvirkjun samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Eldur í barnaherbergi

Eldur kviknaði í barnaherbergi í húsinu Birkifelli, sem er Við Laugar í Reykjadal, skammt frá Húsavík.

Sjá næstu 50 fréttir