Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sáu ríflega þúsund seli Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra. 27.7.2010 06:45
Verða að sleppa til að bjarga stofninum Stórlaxi hefur fækkað gífurlega í ám landsins á undanförnum árum. Veiðimálastofnun hvatti veiðimenn til þess að hlífa stórlaxi í byrjun veiðitímabilsins sökum fækkunarinnar, en stofninn er enn í hættu. Fækkunina má rekja til erfiðra aðstæðna á uppeldisslóðum hans í hafinu og hefur þetta ástand varað í tvo áratugi. 27.7.2010 06:15
Ætla að opna fimm matvöruverslanir Ný verslunarkeðja ætlar sér að opna fimm matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu á næstunni. Auglýst var eftir húsnæði í helgarblaði Fréttablaðsins og herma heimildir blaðsins að viðbrögðin hafi verið góð. 27.7.2010 06:00
Ríkiskaup láta hefð ráða frekar en lestur Mikill meirihluti dagblaðaauglýsinga frá mörgum opinberum stofnunum birtist í Morgunblaðinu. Má þar nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íbúðalánasjóð og Ríkiskaup. 27.7.2010 05:15
Áhersla á sérstöðu Íslands Aðildarviðræður Íslands við ESB hefjast formlega á ríkjaráðstefnu í Brussel í dag. Á fundinum verður lögð fram greinargerð um afstöðu ríkisstjórnarinnar til komandi viðræðna. Þar mun ESB einnig leggja fram greinargerð auk þess sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, og Steven Vanackere, utanríkisráðherra Belgíu, taka til máls. 27.7.2010 05:00
Ferðalangar streyma til Eyja Ferðamönnum til Vestmannaeyja hefur snarfjölgað eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun fyrir viku síðan. Að sögn Guðmundar Pedersen, rekstrarstjóra Herjólfs, lætur nærri að fjöldi farþega hafi þrefaldast miðað við sama tíma í fyrra. 27.7.2010 04:30
Trébátar sukku í höfninni Tveir bátar sukku í Reykjavíkurhöfn um helgina. Annar báturinn, Gæskur, var í smábátahöfninni sem er við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu, en hinn var við Grandagarð og nefnist Ver. 27.7.2010 03:15
Aldrei fleiri í sundlaugunum Metaðsókn var í sundlaugar í Skagafirði í júní en um 11.500 manns sóttu þá laugarnar. Á sama tíma í fyrra voru sundlaugargestir í Skagafirði um 5.500. 27.7.2010 03:00
Kveikt í báti á Suðurnesjum Eldur kom upp í báti neðan við athafnasvæði Gámaþjónustunnar í Njarðvík í fyrradag. Minnstu munaði að eldurinn næði að teygja sig yfir í annan nærliggjandi bát en bensínstöð ÓB er um hundrað metra frá svæðinu þar sem eldurinn kom upp. 27.7.2010 02:00
Þurftu að hafa afskipti af unglingum fyrir utan 10-11 í Keflavík Lögreglan á Suðurnesjum þurfti að hafa afskipti af þremur til fjórum strákum á unglingsaldri fyrir utan 10-11 í Keflavík nú fyrir stundu. Að sögn lögreglumanns voru þeir eitthvað að „kýtast“ en þegar lögregla mætti á staðinn róuðust þeir. Enginn slasaðist. 26.7.2010 23:02
Tuttugu létust í bílasprengjum í Írak Að minnsta kosti tuttugu féllu þegar að tvær bílasprengjur sprungu í nágrenni við Karbala í Írak í dag. Árásirnar voru gerðar á þjóðvegi sem liggur til borgarinnar Najaf en margir sjíta pílagrímar fara leiðina. Auk þeirra sem létust særðust tugir manna. 26.7.2010 21:18
Greiddi ekki skuldir sem námu yfir 5 milljörðum Salt Properties, félag í eigu Róberts Wessman, greiddi ekki skuldir sem námu yfir fimm milljörðum króna, en þær voru á gjalddaga í ár. Skilanefndir Landsbankans og Glitnis og Straumur munu væntanlega leysa til sín eignir félagsins, en það á meðal annars landareignir á Spáni og í Brasilíu. 26.7.2010 18:32
Unglingar í Vinnuskóla Kópavogs rændir á vinnutíma „Ég ætlaði að fara kíkja á símann minn þegar ég og strákur í hópnum hjá mér uppgötvum að það er búið að stela frá okkur," segir Snæfríður Halldórsdóttir flokksstjóri í Vinnuskóla Kópavogs. Hópurinn sem hún sér um og er skipaður 15 ára krökkum varð fyrir því óláni í dag að stolið var þremur farsímum og einum ipod af unglingunum þegar þau voru að vinna á Víghóli í Kópavogi í dag. 26.7.2010 17:21
Nýr bæjarstjóri í Grindavík Róbert Ragnarsson stjórnmálafræðingur er nýr bæjarstjóri Grindavíkur. Á bæjarstjórnarfundi í dag samþykkti bæjarstjórnin samhljóða að ráða hann til næstu fjögurra ára. 26.7.2010 20:05
Undrast yfirlýsingar þingmanna Vinstri grænna Þrír þingmenn Vinstri grænna lýstu því yfir um helgina að þeir ætli ekki að styðja ríkisstjórnina áfram takist ekki að ógilda kaup Magma Energy á HS Orku. 26.7.2010 19:10
Of seint að stöðva kaupin en Magma opið fyrir forkaupsrétti Ráðherra getur ekki stöðvað kaup Magma Energy í HS Orku á grundvelli heimildar í lögum þar sem of langur tími er liðinn. Ef kaupsamningur verður samt ógiltur vegna þrýstings frá stjórnvöldum verður HS Orka áfram í eigu útlendinga. Forstjóri Magma á Íslandi segir fyrirtækið opið fyrir forkaupsrétti ríkisins á HS Orku. 26.7.2010 18:45
11 þúsund lífeyrisþegar þurfa að endurgreiða tryggingastofnun Um ellefu þúsund lífeyrisþegar hafa fengið ofgreitt frá Tryggingastofnun ríkisins, samkvæmt endurreikningi og uppgjöri bóta. Ofgreiðslur nema 4,3 milljörðum króna. Það þýðir að að jafnaði, að fólkið þurfi að endurgreiða um fjögur hundruð þúsund krónur. 26.7.2010 18:18
Klæddi sofandi stúlku úr nærbuxum og fróaði sér Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann á þrítugsaldri í fimm mánaða fangelsi fyrir að klæða sofandi stúlku úr nærbuxunum og fróa sér fyrir framan hana. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust. 26.7.2010 18:07
Love Parade: Öll skjöl skipuleggjenda gerð upptæk Rannsókn er hafin á aðdraganda harmleiksins á Love Parade-göngunni í Duisburg í Þýskalandi á laugardag. Öll skjöl aðstandenda göngunnar voru gerð upptæk í dag. Angela Merkel kanslari segir að rannsóknin verði mjög nákvæm. 26.7.2010 17:43
Rannsaka einkavæðingu Hitaveitu Suðurnesja Lögmæti kaupa Magma Energy á HS orku verður rannsakað af stjórnvöldum og líklegt er að einkavæðing á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja árið 2007, verði líka könnuð ofan í kjölinn. Þetta segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. 26.7.2010 16:39
Össur fer utan Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, heldur í dag til Brussel þar sem hann tekur á morgun þátt í ríkjaráðstefnu Íslands og Evrópusambandsins, sem markar upphaf aðildarviðræðna Íslands við sambandið. 26.7.2010 16:05
Erró sæmdur æðstu orðu Frakklands Listamaðurinn Erró, verður í haust sæmdur æðsta heiðursmerki Frakklands, Riddaraorðu frönsku heiðursfylkingarinnar. 26.7.2010 14:49
Fékk nýtt andlit fyrstur manna Spænski maðurinn sem læknar græddu nýtt andlit á í mars kom í dag opinberlega fram í fyrsta sinn eftir aðgerðina. 26.7.2010 14:43
Hefur ekkert um níumenningana að segja Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, segist ekkert hafa að segja um bréf sem hún sendi Jóni Ólafssyni prófessor, og lýsti þar því sem hún kallaði staðreyndir í máli níumenninganna sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi. 26.7.2010 14:35
Lifði af 50 metra fall 15 ára nýsjálenskur drengur lifði af eftir að falla 50 metra og lenda á steinsteypu um helgina. Læknar ætla að útskrifa hann af sjúkrahúsi í lok vikunnar. 26.7.2010 13:51
Ætla að fara yfir Magma-málið Ráðherrar í ríkisstjórninni hyggjast fara yfir Magma-málið. Þetta var niðurstaða fundar þeirra sem haldinn var í stjórnarráðinu í hádeginu. 26.7.2010 13:39
Engar áhyggjur af ríkisstjórninni Þingmaður Samfylkingarinnar segist ekki líta svo á að ríkisstjórnarsamstarfið sé í hættu þrátt fyrir yfirlýsingar nokkurra þingmanna vinstri grænna í Magma málinu. Samfylkingarmenn ætla að ræða Magma málið á óformlegum þingflokksfundi í dag. 26.7.2010 13:16
Rafsegulsvið svipað og í Svíþjóð Ný rannsókn á rafsegulsviði í íbúðarhúsnæði sýnir að meðaltal rafsegulsviðs á íbúðarhúsnæði er svipað og í Svíþjóð. 26.7.2010 12:34
Pakistan leikur tveimur skjöldum í Afganistan Leyniþjónusta Pakistan aðstoðar Talibana í stríði við Bandaríkjamenn í Afganistan þrátt fyrir að fá milljarð dollara árlega frá Bandaríkjastjórn og vera yfirlýstur bandamaður Bandaríkjanna. Þá virðast Talibanar í Afganistan sterkari en nokkru sinni þrátt fyrir níu ára stríðsrekstur Bandaríkjamanna í landinu. Þetta kemur fram í leyniskjölum Bandaríkjahers sem vefsíðan Wikileaks birti í gærkvöldi. 26.7.2010 12:00
Octopus, ein stærsta ofursnekkja heims siglir til Reykjavíkur Glæsisnekkjan Octopus, eða Kolkrabbinn er lögð af stað áleiðis til Íslands og er væntanleg til Reykjavíkur á föstudag. 26.7.2010 11:08
Pútín á þríhjóli Forsætisráðherra Rússa, Vladimir Pútín, kom nokkuð á óvart þegar hann mætti á vígalegu Harley-þríhjóli á vélhjólahátíð í Úkraínu um helgina. Flestir hefðu talið að Pútín myndi velja rússneskt Ural-hjól af þessu tilefni. 26.7.2010 10:47
Aðildarviðræður hefjast á morgun Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykktu í morgun að hefja formlegar viðræður við Ísland um inngöngu í sambandið. 26.7.2010 10:23
Nágrannadeilur í Garðabæ: Sátt náðist á samstöðufundi Sátt hefur náðst í nágrannadeilunum í Garðabæ. Fjölskyldan sem flúði heimilið sitt getur nú flutt aftur heim, bílskúrinn fær að rísa og kærur verða dregnar til baka. 26.7.2010 10:07
Andlit Jesú sést í hænsnafjöðrum Gloriu Andlit Jesú Krists þykir sjá greinilega í fjöðrum hænunnar Gloriu en hún er meðal húsdýra á býli í ensku Miðlöndunum. Eigandi hænunnar tók eftir andlitnu þegar hann myndaði Gloriu nýlega í rykbaði. 26.7.2010 08:54
Danskar þyrlur hlupu í skarðið fyrir Landhelgisgæsluna Þyrlur af dönsku varðskipunum Triton og Vædderen, sem legið hafa við bryggju í Reykjavíkurhöfn undanfarna daga, sinntu tveimur þyrluútköllum um helgina, sem Landhelgisgæslan gat ekki sinnt vegna manneklu. 26.7.2010 07:55
Lítil sem engin lundaveiði í Eyjum Nokkrir lundaveiðimenn héldu í gær út í úteyjar Vestmannaeyja til veiða, en þær eru heimilar frá og með gærdeginum fram á fimmtudag. 26.7.2010 07:53
Ekkert lát á heróínstrauminum frá Afganistan Ekkert lát er á heróínstrauminum frá Afganistan en framleiðsla á því er mun meiri í dag en þegar NATO réðist inn í landið fyrir níu árum siðan. 26.7.2010 07:47
Tveir teknir úr umferð vegna fíkniefnaaksturs Einn ökumaður var tekinn úr umferð á Akureyri í nótt vegna fíkniefnaaksturs. 26.7.2010 07:45
Hugo Chavez hótar olíubanni á Bandaríkin Hugo Chavez hinn litríki forseti Venensúela hefur hótað því að stöðva alla olíuflutninga frá landinu til Bandaríkjanna ef Kólombíumenn ráðast á Venesúela. 26.7.2010 07:44
Einn af Rauðu Khmerunum dæmdur fyrir stríðsglæpi Einn af fyrrverandi fangelsisstjórum Rauðu Khmeranna í Kambódíu, kallaður Duch að nafni, hefur verið dæmdur fyrir glæpi gegn mannkyninu af stríðsglæpadómstóli Sameinuðu þjóðanna. 26.7.2010 07:42
Hefðbundnar síldveiðar falla í skuggan af makrílveiðum Hefðbundnar síldveiðar úr Norsk-íslenska síldarstofninum falla nú í skuggann af makrílveiðum, því síldin er í flestum tilvikum aðeins meðafli með makrílnum 26.7.2010 07:38
Fordæma lekann hjá Wikileaks Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa fordæmt birtingu leyniskjalanna sem Wikileaks vefsíðan hefur birt og jafnframt komið í hendur stórblaðanna New York Times, Der Spiegel og Guardian. 26.7.2010 07:34
Þriðji hver Dani viðurkennir framhjáhald Þriðji hver Dani viðurkennir að hafa haldið framhjá maka sínum. Svo virðist sem mikil veðurblíða í Danmörku undanfarnar vikur hafi aukið framhjáhald landsmanna. 26.7.2010 07:19
Þrennt flutt á heilsugæslustöð eftir bílveltu Þrennt var flutt á heilsugæslustöðina á Hvammstanga til aðhlynninagr og rannsókna, eftir að bíll fólksins fór út af veginum í miklum bratta i Hrútafirði síðsdegis í gær. 26.7.2010 07:17
Telur óvíst hvort stjórnin lifi „Það verður bara að fá að koma í ljós,“ segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, spurð hvort hún telji að ríkisstjórnin muni lifa Magma-málið svokallaða af. Þrír þingmenn flokksins, Guðfríður Lilja, Atli Gíslason og Þuríður Backman, hafa um helgina kveðið svo fast að orði að þeir geti ekki – eða tæpast – stutt samstarfið við Samfylkinguna nema kaup Magma á HS orku verði stöðvuð. 26.7.2010 06:45