Innlent

Össur fer utan

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Mynd/GVA

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, heldur í dag til Brussel þar sem hann tekur á morgun þátt í ríkjaráðstefnu Íslands og Evrópusambandsins, sem markar upphaf aðildarviðræðna Íslands við sambandið.

Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að ráðstefnan verði haldin í framhaldi af fundi utanríkisráðherra ESB.

Ráðstefnuna sitja auk Íslands, utanríkisráðherra Belgíu, Steven Vanackere, en Belgar fara með formennsku ESB á síðari hluti þessa árs, Stefan Fule, stækkunarstjóri Evrópusambandsins og fulltrúar aðildarríkja ESB.

Össur mun ávarpa ráðstefnuna þar sem hann gerir grein fyrir umsókn Íslands, helstu áherslumálum og hagsmunum Íslands í aðildarviðræðunum.

Í tilkynningunni segir að í aðdraganda ráðstefnunnar hafi utanríkisráðherra átt samráð m.a. við utanríkismálanefnd Alþingis og ráðherranefnd um Evrópumál.

Fulltrúar samninganefndar Íslands sækja ríkjaráðstefnuna, auk Össurar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×