Innlent

Nýr bæjarstjóri í Grindavík

Róbert Ragnarsson er 34 ára stjórnmálafræðingur
Róbert Ragnarsson er 34 ára stjórnmálafræðingur
Róbert Ragnarsson stjórnmálafræðingur er nýr bæjarstjóri Grindavíkur. Á bæjarstjórnarfundi í dag samþykkti bæjarstjórnin samhljóða að ráða hann til næstu fjögurra ára.

Í tilkynningu frá bænum segir að ráðningarsamningurinn sé mjög hagstæður fyrir bæjarfélagið og hefur verið komið til móts við þá gagnrýni er kom fram gagnvart ráðningarsamningum bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili. Gert er ráð fyrir því að Róbert mæti til starfa miðvikudaginn 4. ágúst.

„Alls sóttu 55 um starf bæjarstjóra í Grindavík en 5 drógu umsókn sína til baka þegar ljóst var að nöfn umsækjenda yrðu birt. Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu. Fyrirtækið valdi úr þeim hópi fimm hæfustu einstaklingana. Þegar ljóst var hvaða fimm einstaklingar kæmu til greina fundaði bæjarstjórn og voru bæjarstjóraefnin boðuð í viðtöl til Grindavíkur.

Aðili frá Capacent stýrði viðtölunum en bæjarráð sat viðtölin og gat spurt spurninga. Þegar öllum viðtölum var lokið hittist bæjarstjórn aftur og fór yfir umsækjendur. Í framhaldinu voru viðræður teknar upp við Róbert og var mjög ánægjulegt að samkomulag náðist fljótt um ráðningu hans.

Meirihluti og minnihluti í bæjarstjórn vann vel saman í þessu ferli og það er fagnaðarefni að ráðning bæjarstjóra var samþykkt samhljóða í dag.

Bæjarstjórn Grindavíkur vill þakka öllum umsækjendum fyrir áhugann sem þeir sýndu starfinu. Grindvíkingum óskum við til hamingju með nýjan bæjarstjóra og bjóðum Róbert og fjölskyldu hans velkomna til Grindavíkur.

Róbert Ragnarsson er 34 ára gamall stjórnmálafræðingur, kvæntur Valgerði Ágústsdóttur og eiga þau 3 syni. Hann hefur undanfarin 4 ár verið bæjarstjóri í Vogum, en áður var hann verkefnisstjóri í félagsmálaráðuneytinu. Róbert er að koma aftur til Grindavíkur eftir 10 ára fjarveru, en hann var ferðamála- og markaðsfulltrúi Grindavíkur­bæjar um aldamótin," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×