Verða að sleppa til að bjarga stofninum 27. júlí 2010 06:15 Með stórlaxi er átt við lax sem dvelur tvö ár í sjó. Miðað er við þá sem eru lengri en 70 cm eða þyngri en 3,5 kg. mynd/kristín eva
Stórlaxi hefur fækkað gífurlega í ám landsins á undanförnum árum. Veiðimálastofnun hvatti veiðimenn til þess að hlífa stórlaxi í byrjun veiðitímabilsins sökum fækkunarinnar, en stofninn er enn í hættu. Fækkunina má rekja til erfiðra aðstæðna á uppeldisslóðum hans í hafinu og hefur þetta ástand varað í tvo áratugi. Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur og sviðsstjóri hjá Veiðimálastofnun, segir að fyrir 1980 hafi hlutfall stórlaxa í ám landsins verið svipað og þeirra sem dvöldu eitt ár í sjó. „1979 var mjög kalt ár og laxastofninn á Íslandi tók mikið bakslag,“ segir Guðni. „Eftir 1985 tóku árnar við sér aftur og dánartala í sjó lækkaði – en þá fjölgaði eins árs löxum mun meira heldur en hinum.“ Veiðimálastofnun hvetur veiðimenn til þess að hlífa stórlöxunum með það að takmarki að auka hlutfall þeirra. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, segir í tilkynningu á heimasíðu Veiðimálastofnunar að jákvæð viðbrögð veiðimanna við ákallinu hafi ekki látið á sér standa. Þó hafi einhver gagnrýni borist varðandi tilkynningu um minnkandi hlutfall stórlaxa í Blöndu. Þórarinn Sigþórsson, tannlæknir og áhugalaxveiðimaður, er ósammála Veiðimálastofnun og segir nóg af stórlaxi vera í ánni. „Það eru engir teljarar í Blöndu, svo veiðitölur verður líka að leggja til grundvallar,“ segir Þórarinn. „Það getur ekki verið vitrænt að finna út stofnstærð fiska með hlutfallsreikningi.“ Guðni segir við þessu að málið sé vissulega flókið og erfitt sé að spá fyrir um framtíðina, en staðreyndin sé sú að hlutfall stórlaxa hafi farið minnkandi á undanförnum árum og fari enn. „Töluleg þróun sýnir fram á að tala stórlaxa gæti verið komin niður í núll í kringum 2020,“ segir hann. „En vissulega eru málin aðeins flóknari en svo.“ Guðni segir veiðihlutfall á stórlöxum vera hærra heldur en hjá þeim minni og það eina sem Veiðimálastofnun geti gert til þess að hafa áhrif á þróunina sé að biðja veiðimenn um að hætta að leggja ofan á náttúrulega dánartölu stórlaxa, sem nú þegar sé of há.sunna@frettabladid.is
Mest lesið Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting Innlent Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Innlent Fleiri fréttir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Sjá meira