Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hafa ekki áhuga á að nýta kvótann Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, vísar því á bug að óbeint sé verið að innkalla aflaheimildir með því að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar. Reynslan sýni að útgerðarmenn hafi ekki áhuga á að nýta kvótann til veiða. 18.7.2010 18:45
Hvalaskoðun vinsælasta afþreying ferðamanna Hvalaskoðun er ein vinsælasta afþreying erlendra ferðmanna á Íslandi en atvinnugreinin skilar þjóðarbúinu milljörðum króna árlega. Þorbjörn Þórðarson fréttamaður skellti sér í hvalaskóðun í Faxaflóa. 18.7.2010 18:36
17 björgunarsveitarmenn báru konu sem ökklabrotnaði Kona ökklabrotnaði í gönguferð í Varmadal inn af Hveragili í dag. Björgunarsveit Hveragerðis kom konunni til aðstoðar sem var í tveggja kílómetra fjarlægð frá bílastæðinu í Gufudal. 18.7.2010 18:20
Mikil flóð í Kína Mikil flóð eru í Kína. Fimmtán hafa látist og tuttugu og einn hefur týnst í miklum flóðum í Sichuan héraðinu. 18.7.2010 17:24
Írar geta lært mikið af Íslendingum Bernard Allen, írskur stjórnmálafræðingur og formaður nefndar sem rannsakar ástæður og orsakir efnahagshrunsins á Írlandi, segir að Írar ættu að líta til Íslands við rannsóknina á efnahagshruninu árið 2008. 18.7.2010 16:46
Hitinn yfir 24 gráður annan daginn í röð Annan daginn í röð fer hitinn sunnanlands yfir 24°C og yfir 23°C vestanlands. Hlýjast er á Hellu eða 24,3 gráður. Á Þingvöllum er 23,9 gráður og í Hvalfirði er 23,3 gráður. 18.7.2010 16:02
Eldur í tréi fyrir utan World Class Eldur kom upp í tréi fyrir utan World Class í Laugardalnum rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra tók ekki nema fimm til tíu mínútur að slökkva eldinn sem var minniháttar. 18.7.2010 14:44
Ósáttur við að allt sé lokað á háannatíma „Þetta er háannatími og það er allt lokað af því það er sunnudagur," segir Steinar Pálmason, sem rekur gistiheimilið Álftaland á Reykhólum. Hann segist hafa tekið á móti þrjátíu Þjóðverjum í morgun en hafi ekki getað farið með þá á hlunnindasýningu sem er á svæðinu vegna þess að allt sé lokað. Hann hefur reynt að ná í sveitarstjórann í allan dag án árangurs. 18.7.2010 13:57
Ómar Ragnarsson: Ég er ekki að brjóta nein lög „Ég er með atvinnuflugmannsréttindi og má fljúga verkflug og það sem flug sem ég þarf í sambandi við mína kvikmyndagerð,“ segir Ómar Ragnarsson. Vefurinn AMX segir að Ómar fljúgi í leyfisleysi með ferðamenn vegna þess að hann hafi ekki réttindi sem atvinnuflugmaður. Ómar segir það alrangt. 18.7.2010 13:32
Úthafsrækjukvóti hefur verið vannýttur Jón Bjarnason, sjávarútvegráðherra, segir að úthafsrækjukvóti hafi verið vannýttur á síðustu árum og því þurfi að skoða aðrar leiðir til að nýta stofninn. Útvegsmenn kjósi í mörgum tilfellum að nýta rækjukvóta einungis til að auka framsalsheimildir í öðrum tegundum. 18.7.2010 12:56
Sjálfsmorðsárásir í Írak: Yfir 50 látnir Að minnsta kosti fjörutíu og þrír létust í sjálfsmorðsárás í höfuðborg Íraks, Bagdad í morgun. Þá er talið að fjörutíu hafi særst í árásinni. Samkvæmt upplýsingum frá írösku lögreglunni beindist tilræðið að meðlimum súnnískra hersveita. 18.7.2010 11:37
Senda baráttukveðjur Félag íslenskra flugumferðarstjóra lýsir yfir stuðningi við Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og sendir því baráttukveðjur. Þetta kemur fram í tilkynningu sem þeir hafa sent frá sér. 18.7.2010 10:28
Slepptu átján tonnum af vatni Slökkviliðið var kallað út um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Eldur logaði í mosa og sinu í hrauninu sunnan við Straumsvík og var mjög erfitt að komast að eldinum og því var óskað eftir aðstoð frá Landhelgisgæslunni. 18.7.2010 12:39
Hillary Clinton til Pakistan Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lenti á flugvellinum í Íslamabad í Pakistan klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma en hún er í opinberri heimsókn í landinu. 18.7.2010 11:15
Beinbrotnaði er hún datt fram úr rúminu Leikkonan Zsa Zsa Gabor var flutt á sjúkrahús í Hollywood í Bandaríkjunum í gær eftir að hafa dottið fram úr rúmi sínu. Leikkonan, sem er 93 ára, beinbrotnaði við fallið en hún var að horfa á sjónvarpið þegar slysið átti sér stað. Að öðru leyti er ekki vitað um liðan hennar. 18.7.2010 10:00
Fjórtán létust í rútuslysi Að minnsta kosti fjórtán létu lífið og tólf slösuðust í Albaníu þegar rúta keyrði útaf fjallvegi í norðurhluta landsins og féll tugi metra ofan í gljúfur. Nokkrir þeirra sem slösuðust eru enn í lífshættu og því ekki útilokað að tala látinna kunni að hækka. 18.7.2010 09:54
Fresta endurskoðun á efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Evrópusambandið hafa frestað endurskoðun á efnahagsáætlun Ungverja vegna ágreinings um niðurskurð í opinberum útgjöldum. AGS og ESB vilja sjá harkalegri niðurskurð og telja að stjórnvöld í Ungverjalandi hafi ekki gengið nægilega langt. 18.7.2010 09:51
Mikið af fólki í miðbæ Reykjavíkur Mikið af fólki var í miðbæReykjavíkur í nótt samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Nokkur erill var hjá sjúkraflutningamönnum vegna pústra og ölvunar. Lögreglan og sjúkraflutningamennirnir segja hins vegar að nóttin hafi gengið stóráfallalaust fyrir sig. 18.7.2010 09:37
Varðskip hjálpar franskri skútu Varðskip Landhelgisgæslunnar fór í morgun að aðstoða franska seglskútu sem hafði fengið „eitthvað rusl í skrúfuna," eins og stjórnstöð orðaði það í samtali við fréttastofu. Samkvæmt upplýsingum er búið að laga skrúfuna. 18.7.2010 09:33
Tveir fullir og einn dópaður undir stýri Nóttin var að mestu róleg hjá lögreglunni á Selfossi en tveir voru teknir vegna gruns um ölvun við akstur, annar þeirra á Flúðum. Þá var einn tekinn á Skeiðarvegi vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. 18.7.2010 09:24
Slökkvistarf enn í fullum gangi - Þyrlan í aðalhlutverki Enn logar talsverður eldur í gróðri sunnan við Straumsvík. Sjö slökkviliðsmenn eru á vettvangi með einn dælubíl og sexhjól. Aðgengi að svæðinu er mjög slæmt og nota slökkviliðsmenn því sexhjólið sem er með litlum vatntanki til að ferja vatn. 17.7.2010 22:05
Æfir yfir ákvörðun sjávarútvegsráðherra Útgerðarmenn eru æfir vegna þeirrar ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar. Þeir telja að með þessu sé ráðherra að óbeint innkalla kvótaheimildir. Útgerðarmenn hafa óskað eftir fundi með ráðherra vegna málsins. 17.7.2010 18:30
Skiptar skoðanir um kattahald í bæjarráði Kópavogs „Ég fylgi þessu máli stíft eftir, ég lofa því. En ef ég á að vera raunsæ þá verður engin ákvörðun tekin fyrr en í september þegar að bæjarstjórn kemur aftur saman," segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. En hún sagði í samtali við Vísi fyrr í mánuðinum að hún myndi berjast fyrir samræmdum reglum um kattahald í bænum. Vísir hefur fjallað mikið um lausagöngu katta og villikatta. 17.7.2010 16:17
Andrés segir ummæli Daniels Hannan „hlægileg" Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna, segir að ummæli Daniels Hannan um að hagsmunum Breta væri betur borgið í EES-samstarfinu en í Evrópusambandinu algjörlega hlægileg. Hann segir að Hannan sé eindreginn ESB-anstæðingur og setja þurfi skoðanir hans á Evrópumálum í það samhengi. 17.7.2010 21:55
Talsverður eldur logar í gróðri sunnan við Straumsvík Talsverður eldur logar nú í gróðri sunnan við Straumsvík. Slökkvilið er að störfum en vegna þess hversu slæmt aðgengi er að svæðinu verður þyrla Landhelgisgæslunnar notuð til að hjálpa við að slökkva eldinn. 17.7.2010 20:48
Harður árekstur á Skeiðavegi - þrír á slysadeild Þrír voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild í Fossvogi eftir harðan árekstur tveggja bíla sem ekið var í gagnstæða átt. Slysið varð í Skeiða- og Hrunamannavegi skammt norðan við Þjórsárdalsvegamót seinnipartinn í dag. 17.7.2010 20:09
Fyrsti vinningur fimmfaldur næsta laugardag Enginn var með allar Lottótölurnar réttar í kvöld og verður því fyrsti vinningur fimmfaldur næstkomandi laugardag. 17.7.2010 20:04
Ómar Ragnarsson: Orðlaus, hrærður og þakklátur „Ég virðist hafa vitað minnst allra um einhvert óvæntasta atvik, sem mig hefur hent á lífsleiðinni, og kem af fjöllum í bókstaflegri merkingu," segir Ómar Ragnarsson á heimasíðu sinni. 17.7.2010 18:33
Útilokar ekki að reksturinn verði boðinn út Kristján L. Möller, samgönguráðherra, útilokar ekki að rekstur Landeyjahafnar verði boðin út á næsta ári. Þangað til mun Eimskip leigja höfnina á 350 þúsund krónur á mánuði samkvæmt nýgerðu samkomulagi. 17.7.2010 18:30
Boðað til sáttafundar Boðað hefur verið sáttafundar í kjaradeilu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaganna næstkomandi miðvikudag. 17.7.2010 18:11
15 ára unglingar í fjórhjólaslysi í Skorradal Tveir fimmtán ára unglingar slösuðust þegar að fjórhjól valt í Skorradal á fjórða tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er ekki vitað hversu alvarleg meiðsli krakkanna eru en þau voru flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur til varúðar. 17.7.2010 16:48
Mótorhjól og Bifreið skullu saman á Álftanesvegi Bifreið og mótorhjól skullu saman á Álftanesvegi um fjögur leytið í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús með minniháttar meiðsl eftir áreksturinn. 17.7.2010 16:32
Sló brautarmet í Laugavegshlaupinu Fyrstu hlauparar í Laugavegshlaupinu sem nú fer fram milli Landmannalauga og Þórsmerkur eru komnir í mark. Sigurvegari í karlaflokki var Þorlákur Jónsson og í kvennaflokki Helen Ólafsdóttir. 17.7.2010 15:42
Neyðarástand í Rússlandi vegna hitabylgju Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í 19 héruðum Rússlands vegna mikilla hitabylgju. Eigendur fiskeldisstöðva í Kostroma héraði hafa þurft að henda fiski sem drepist hefur í kvíum vegna hitans. Í einni fiskeldisstöðinni þurftu menn að henda tólf tonnum af styrju og silungi. 17.7.2010 15:05
40 þúsund manns á Euro Pride í Varsjá Um fjörtíu þúsund manns taka þessa stundina þátt í Evrópu Pride, eða Europride, í Varsjá höfuðborg Póllands. 17.7.2010 14:59
Ók á 173 kílómetra hraða á Reykjanesbraut Ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í dag eftir að lögreglan á Suðurnesjum mældi hann á 173 kílómetra hraða á klukkustund á Reykjanesbrautinni. 17.7.2010 14:55
Weisshappel gefur Ómari 100 þúsund - skorar á önnur fyrirtæki „Laundromat kaffihúsið mitt ætlar að gefa honum 100 þúsund kall og við skorum á einhver önnur tíu íslensk fyrirtæki að gefa líka sömu upphæð," segir kaffihúsaeigandinn Friðrik Weisshappel í Kaupmannahöfn. 17.7.2010 14:20
Lögregla skaut þjóf til bana í Grenoble - Uppþot í borginni Uppþot varð í borginni Grenoble í Suður-Frakklandi í morgun eftir að lögreglan skaut mann til bana sem grunaður er um að hafa, í slagtogi við annan mann, stolið 20 þúsund evrum af spilavíti í borginni. 17.7.2010 13:52
Búið að ráða nýjan bæjarstjóra á Ísafirði Daníel Jakobsson, útibússtjóri Landsbanka Íslands að Laugarvegi 77 í Reykjavík, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Reiknað er með að Daníel komi til starfa í lok næsta mánaðar. Tuttugu og sjö einstaklingar sóttu um starf bæjarstjóra á Ísafirði. Umsóknirnar voru teknar til úrvinnslu hjá Capacent sem síðan lagði niðurstöðurnar fyrir bæjarstjórn. 17.7.2010 13:23
Fjölmenn jarðaför í Íran Tugir þúsunda manna mættu í jarðarför 27 manna sem féllu í tveimur sprengjuárásum í borginni Zahedan í Íran á fimmtudag. Lögregla segist hafa handtekið 40 manns sem grunaðir eru um hlutdeild í sprengjutilræðinu þegar tveir menn sprengdu sig í loft upp skammt fá bænahúsi í borginni. 17.7.2010 12:15
Osama bin Laden verður afi Omar bin Laden, fjórði elsti sonur Osama bin Laden, telur að faðir sinn sé á lífi. Hann veit hins vegar ekki Osama heldur sig. 17.7.2010 11:38
Þingmönnum Vinstri grænna hótað með SMS Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna, segir í grein í Morgunblaðinu í dag, að þingmönnum og ráðherrum Vinstri grænna hafi verið hótað þegar að atkvæðagreiðsla um aðildarumsókn að ESB fór fram í þinginu. 17.7.2010 11:14
Herjólfur í Landeyjahöfn - myndir Herjólfur sigldi undir miðnætti í gærkvöld í Landeyjahöfn til prófunar en reglulegar áætlunarsiglingar milli hafnarinnar og Eyja hefjast á miðvikudag í næstu viku. 17.7.2010 09:40
Þurfa að halda áfram að sjóða neysluvatnið Íbúar á Eskifirði þurfa að halda áfram að sjóða neysluvatn fram yfir helgi að því fram kemur á fréttavefnum Austurglugginn. 17.7.2010 09:34
Fá leyfi til að rannsaka virkjun í Skaftá og Tungufljóti Orkustofnun hefur veitt Suðurorku rannsóknarleyfi vegna 150 megavatta virkjunar í Skaftá og Tungufljóti í Skaftártungu. Undirbúningur miðast við að framkvæmdir geti hafist eftir þrjú ár. 17.7.2010 18:45