Fleiri fréttir

OR skipt í tvennt um áramót

Orkuveitu Reykjavíkur verður skipt upp í tvö fyrirtæki fyrir áramót. Þá rennnur út margframlengdur frestur fyrirtækisins til þess að aðskilja samkeppnishluta og einkaleyfishluta fyrirtækisins í samræmi við Evrópureglur.

Stjórnvöld vilja rifta kaupum

Ríkissjóður hefur ekki efni á að ganga inn í samning um kaup Magma Energy á hlut Geysis Green Energy í HS orku, að mati Björns Vals Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna og varaformanns fjárlaganefndar. Aðrar leiðir í málinu eru til skoðunar.

Gljúfrasteinn friðaður

Menntamálaráðherra hefur, að tillögu húsafriðunarnefndar, friðað Gljúfrastein í Mosfellsdal.

FME fékk frest frá umboðsmanni Alþingis

Fjármálaeftirlitið svaraði ekki fyrirspurnum umboðsmanns Alþingis um tilmæli sem FME og Seðlabankinn gáfu út í kjölfar dóms Hæstaréttar um gengistryggð lán áður en frestur sem umboðsmaður setti rann út í gær.

Ummæli flokksmanna ómakleg

Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og varaformaður fjárlaganefndar, segir ummæli ýmissa flokksmanna hans varðandi aðgerðarleysi flokksins þegar kemur að kaupum Magma Energy á hlut í HS orku, vera röng og ómakleg. Flokkurinn hafi reynt að koma í veg fyrir kaupin.

Ísland hefur staðið við framlög til Haítí

Íslensk stjórnvöld hafa veitt 96,1 milljón króna í hjálpar- og uppbyggingarstarf á Haítí frá því að jarðskjálfti reið þar yfir fyrir rúmu hálfu ári. Þau hafa því nú þegar staðið við öll þau framlög sem lofað hafði verið, að sögn Auðuns Atlasonar, deildarstjóra í utanríkisráðuneytinu.

Stöðvun olíuleka gengur vel

Stöðvun olíulekans í Mexíkóflóa gengur vel að sögn forsvarsmanna olíufélagsins BP. Hann var stöðvaður í tilraunaskyni á fimmtudag til þess að kanna ástand olíuborholunnar.

Hefur áhrif á allt daglegt líf

„Ég held það megi orða þannig að þetta kemur til með að hafa áhrif á allt okkar daglegt líf," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum um tilkomu Landeyjahafnar.

Óráð að ljúka ekki aðildarviðræðum

Stjórnmál Breski Evrópuþingmaðurinn Daniel Hannan segir Íslendinga hafa lítið að sækja í Evrópusambandið. Hann telur jafnframt óráð að ljúka ekki aðildarviðræðunum sem hafnar eru. Hannan er staddur hér á landi og hélt erindi í gær á vegum Heimdallar.

Spánverjar vilja fá kolkrabbann

Kolkrabbinn Páll, sem varð heimsfrægur fyrir að spá rétt um úrslit leikja þýska landsliðsins á HM, gæti verið á leið til Spánar. Páll spáði Spánverjum sigri gegn Hollendingum í úrslitaleik mótsins.

Handtekin fyrir að veðja um HM

Yfir fimm þúsund manns voru handteknir í Asíu fyrir að stunda ólögleg veðmál meðan á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu stóð.

Landsnet flytur raforku til ISAL

Landsnet mun flytja raforku til álversins í Straumsvík, en áætlað er að hækka strauminn í álverinu og auka þannig afkastagetuna um 40 þúsund tonn.

Flugur ónæmar fyrir malaríu

Vísindamönnum hefur tekist að búa til erfðabreyttar moskítóflugur sem geta ekki smitað fólk af malaríu.

Samgönguhindrun rutt úr vegi

Samgönguhindrun hefur verið rutt úr vegi milli Vestmannaeyja og lands því nú tekur ferðin fimmfalt skemmri tíma en áður.

Númer klippt af 70 bílum á Suðurnesjum

Skráninganúmer hafa verið klippt af um 70 bílum á Suðurnesjum það sem af er mánuði vegna ógreiddra trygginga, segir í frétt Víkurfrétta. Oftast eru plötur teknar að næturlagi því þá er líklegra að bílarnir séu fyrir utan heimili eigenda sinna.

Þrjú hjólhýsi fuku

Þrjú hjólhýsi hafa fokið í kvöld á þjóðveginum vestan við Höfn í Hornafirði, að Djúpavogi, að sögn lögregluþjóns á svæðinu. Bílar skemmdust, í tveimur tilvikum fóru þeir á hliðina, en engin slys voru á fólk.

Stolnu fellihýsin fundin

Fellihýsin sem stolið var nýlega frá verslun Ellingsen og Víkurverkum eru komin í vörslu lögreglu og tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Weisshappel safnar fyrir skuldugum Ómari Ragnarssyni

Friðrik Weisshappel, veitingamaður í Kaupmannahöfn, hefur stofnað Facebook-síðu þar sem hann hvetur fólk til að gefa Ómari Ragnarssyni eitt þúsund krónur í sjötugs afmælisgjöf sem þökk fyrir ómetanleg störf í þágu íslenskrar náttúru.

Tölur yfir auglýsingatíma Haga í skekktar

Framkvæmdastjóri birtingarhúss segir tölur yfir auglýsingatíma Haga í sjónvarpi skekktar. Ef tölur yfir keyptar auglýsingar á besta tíma eru bornar saman auglýsa Hagar litlu meira á Stöð 2 en í Ríkissjónvarpinu.

Ný gengislánaúttekt FME - niðurstaðan svipuð

Ný og ítarleg úttekt Fjármálaeftirlitsins á áhrifum dóma Hæstaréttar um lögmæti gengistryggðra lána breytir ekki til muna þeirri mynd sem áður hefur verið dregin upp af afleiðingunum fyrir fjármálafyrirtækin og ríkissjóð, segir í frétt RÚV.

Mikil umferð í gegnum Selfoss

Mikil umferð hefur verið í gegnum Selfoss frá hádegi í dag og þyngdist hún jafn og þétt. Umferðin fór þó minnkandi um sjö leytið í kvöld, að sögn lögregluþjóns. Spáð er mikilli veðurblíðu á svæðinu um helgina.

Breskur Evrópuþingmaður: Kostir EES meiri en ESB

Breskur Evrópuþingmaður segir kosti þess að taka þátt í evrópska efnahagssvæðinu meiri en af Evrópusambandsaðild. Hann segir Evrópuþingið telja Íslendinga svo örvæntingarfulla að þeir samþykki hvaða aðildarskilmála sem er.

Kaupmáttur lágmarkslauna eykst um 2,5%

Kaupmáttur lágmarkslauna hefur aukist um tvö komma fimm prósent frá ársbyrjun 2008 samkvæmt útreikningum Samtaka atvinnulífsins. Á sama tíma hefur kaupmáttur launa að meðaltali dregist saman um rúm 13 prósent.

Kærði stjórnendur Kaupþings en ekkert verður gert

Maður sem kærði stjórnendur Kaupþings til Ríkislögreglustjóra telur að þeir hafi nýtt sér fákunnáttu hans þegar honum var veitt gengislán. Kæran var send frá Ríkislögreglustjóra til Sérstaks saksóknara, sem ætlar ekki að aðhafast í málinu. Maðurinn biðlar til yfirvalda um að einstaklingar þurfi ekki að fjargviðrast í þessum málum sjálfir.

Unnur G. biður Silju Báru afsökunar

Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, hefur sent RÚV yfirlýsingu vegna ummæla Silju Báru Ómarsdóttur, fulltrúa Vinstri græna í nefndinni, í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þar sagði Silja formanninn hafa lagt að sér að sitja hjá við afgreiðslu álits nefndarinnar á kaupum Magma á HS Orku í gegnum sænskt dótturfélag, ella væri ríkisstjórnarsamstarfið í hættu.

Smokkakennsla í miðbænum

Jafningjafræðslan og VÍS buðu landsmönnum í allsherjar sumarfagnað niðri á Austurvelli klukkan tvö í dag. Eins og sést á myndum-inni var bongóblíða í miðbænum þar sem fjöldi fólks naut veðurblíðunnar við ljúfa tóna sem berast frá Götuhátíð Jafningjafræðslunnar og VÍS.

Snjórinn horfinn úr Gunnlaugsskarði

Snjóskaflinn í Gunnlaugsskarði í Esjunni er horfinn samkvæmt upplýsingum frá Páli Bergþórssyni, fyrrverandi Veðurstofustjóra. Þar með er Esjan orðin snjólaus. Páll segir að þetta sé tíunda sumarið í röð sem skaflinn hverfi. Meira en 150 ár séu liðin frá þvi að skaflinn hverfur svo mörg sumur í röð.

Sjósundsgjörningur við Ægissíðu

Í kvöld mun breskur myndlistarmaður standa fyrir óvenjulegum gjörningi við Ægissíðuna í kvöld. Hann mun standa í stiga úti á hafi í háflóði. Þessi gjörningur er hápunktur og lokaatriði listahátíðarinnar Villa Reykjavík.

Sérsveitin fylgist með utanvegaakstri

Sérsveit ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Suðurnesjum fylgjast með utanvegaakstri á Reykjanesi nú í sumar. Settar hafa verið upp skilmerkilegar merkingar við enda Vigdísarvallavegar 428, við Krýsuvíkurveg 42 og

Steinunn Valdís ræktar garðinn sinn

„Mér finnst Akranes vera heillandi sveitarfélag og ég er tilbúinn til þess að veita krafta mína til þess að vinna fyrir það," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og fyrrverandi alþingismaður. Hún er á meðal 37 umsækjenda um stöðu bæjarstjóra á Akranesi.

Allir í fríi nema móttökuritarinn

Það er ekki lokað en það var gefið sólarfrí hérna í ráðuneytinu, segir Silja Gunnarsdóttir, móttökuritari í félagsmálaráðuneytinu.

Varað við framúrakstri

Umferðarstofu hefur borist upplýsingar um það að mikil umferð sé á Suðurlandsvegi og töluvert sé um hættulegan framúrakstur.

Halvtreds hvad for noget?

Danir og Norðmenn eru komnir í hár saman yfir nýjum peningaseðli sem gefinn hefur verið út í Danmörku.

Litli drengurinn kominn úr öndunarvél

Átta ára gamall piltur sem lenti fyrir bíl þegar að hann var á reiðhjóli við Mjóddina í gær er kominn úr öndunarvél. „Hann er farinn að anda sjálfstætt þannig að þetta er í plús,“ segir Hólmar Eðvaldsson, pabbi litla drengsins.

Stal barnapela úr Krónunni: Þjófnaður er þjófnaður

Það skiptir ekki máli hvort þú stelir einu súkkulaðistykki eða tíu, segir yfirmaður hjá Krónunni en Vísir.is sagði frá því í gær að tvítug stúlka er ákærð af lögreglustjóranum á Selfossi fyrir að hafa stolið einum barnapela, átta barnasamfellum og náttbuxum úr búð Krónunnar á Selfossi.

Félagslegar íbúðir á útsölu á Patreksfirði

Um 40 raðhús eru nú til sölu á Patreksfirði. Fasteignaverðið er með því lægsta sem gerist á landinu en íbúðirnar voru byggðar í félagslega kerfinu. Bæjaryfirvöld ákváðu hins vegar að bjóða eignirnar til sölu.

Sjá næstu 50 fréttir