Innlent

Hafa ekki áhuga á að nýta kvótann

Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, vísar því á bug að óbeint sé verið að innkalla aflaheimildir með því að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar. Reynslan sýni að útgerðarmenn hafi ekki áhuga á að nýta kvótann til veiða.

Rækjuafli hefur minnkað stórlega á undanförnum árum en heildarafli á síðasta ári nam rúmum tvö þúsund tonnum en þá var leyfilegt veiða sjö þúsund tonn.

Það er mat Hafrannsóknarstofnunar að rækjustofninn sé vannýttur en dæmi eru um að útgerðir nýti rækjukvótann einungis til að auka fram-sals-heimildir í öðrum fisktegundum.

Veiðar á úthafsrækju verða því gefna frjálsar á næsta fiskveiðiári. Þessu hafa útgerðamenn mótmælt og ætla funda með sjávarútvegráðherra á morgun vegna málsins. Útgerðarmenn líta svo á að með þessu sé ráðherra óbeint að innkalla veiðiheimildir.

Þessu vísar ráðherra á bug. „Ef þú horfir á hvernig þetta hefur verið nýtt þá hafa þessar heimildir ekkert verið veiddar. Þá hefur þessi rækja ekki verið veidd þannig að það er ekki hægt að tala um innköllun á aflaheimildum sem ekki hafa verið nýttar í nokkur ár," segir Jón.

En er það ekki ljóst að þau útgerðarfyrirtæki sem eiga núna úthafsrækjukvótann, að þau tapa gríðarlegum fjármunum? „Nei, það er ekki rétt. Því fjármunirnir felast í því að veiða rækjuna en ekki að eiga hana óveidda."

Hann segir að málið verði endurskoðað í lok næsta fiskveiðiárs. „Þetta er bara aðgerð sem verður tekin á næsta ári og byggir á reynslu undanfarinnar ára vegna þess að þetta hefur ekki gengið upp. Þess vegna er þessu beitt á rækjuna eins og lög heimila. Varðandi aðrar tegundir þá er þessi staða ekki þar uppi að fiskurinn sé ekki veiddur og nýttur."

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, sagði í samtali við fréttastofu í dag mikið tap hafi verið á rækjuveiðum fyrir nokkrum árum. Olíuverð hafi þá verið mjög hátt og afurðaverð lágt.

Á yfirstandi fiskveiðiári sé nú þegar búið að veiða um 6 þúsund tonn af rækju og allt bendi til þess að kvótinn verði fullnýttur. Hann sagði ennfremur að aldrei hafi verið leyfilegt að breyta úthafsrækju í aðrar fisktegundir og ný lög um framsalsheimildir taki gildi í haust. Í þessu ljósi sé ákvörðun ráðherra óskiljanleg.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×