Fleiri fréttir

Páfi vill að deiluaðilar slíðri sverðin

Benedikt 16. páfi vill að deiluaðilar fyrir botni Miðjarðarhafsins slíðri sverðin og bindi enda á vaxandi ofbeldi. Þetta sagði páfi í messu í lok þriggja daga heimsóknar sinnar á Kýpur í dag.

Meintir hryðjuverkamenn handteknir í New York

Meintir hryðjuverkamenn voru handteknir á JFK-flugvellinum í New York í morgun. Um er að ræða tvo einstaklinga, 20 og 24 ára, sem bandarísk yfirvöld hafa fylgst námið með undanfarin fjögur ár. Þeir voru á leið til Egyptalands þegar þeir voru stöðvaðir.

Málefnasamningur lagður fyrir flokkana eftir helgi

„Við höfum náð samkomulagi um flesta hluti og það er fátt sem getur komið í veg fyrir að við myndum meirihluta,“ segir Guðmundur Rúnar Árnason, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.

Synir morðingjans niðurbrotnir

„Við höfum ekki hugmynd um af hverju pabbi myrti þetta fólk,“ segja synir breska leigubílstjórans sem varð 12 manns að bana á miðvikudaginn.

Tryggvi Þór: Jóhanna þarf að svara fyrir tölvupóstana

„Ég vil fá betri skýringar. Það er eins og þinginu og um leið þjóðinni hafi verið sagt ósatt. Þetta mál er allt saman afar undarlegt,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður um tölvubréf sem Már Guðmundsson sendi Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í júní í fyrra áður en hann tók við sem seðlabankastjóri. Á vef Morgunblaðsins var fullyrt í gærkvöldi að Már og Jóhanna hafi rætt um launakjörin.

Ísraelar gera grín að fórnarlömbunum

Fjölmiðlaskrifstofa ísraelska forsætisráðuneytisins sendi fyrir slysni tölvupóst með tengil á myndband þar sem gert er grín að þeim sem voru um borð í skipalestinni sem ísraelski sjóherinn stöðvaði í síðustu viku. Skipalestin var á leið með hjálpargögn til Gazasvæðisins og létust níu sjálfboðaliðar í árás Ísraelsmanna.

Eldur í gróðri í Heiðmörk

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eld í gróðri við Maríuhella í Heiðmörk skömmu fyrir klukkan ellefu í dag. Tveir dælubílar fóru á vettvang og er unnið að niðurlögum eldsins.

Jón Gnarr: Erum ekki á móti Sjálfstæðisflokknum

Jón Gnarr, formaður Besta flokksins og tilvonandi borgarstjóri, segir Besta flokknum ekki stefnt gegn Sjálfstæðisflokknum. Reynt verði að vinna að stjórn borgarinnar í góðu samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta sagði Jón í þætti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í dag.

Skallaði sambýliskonu sína

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna heimilisofbeldis í Hafnarfirði í nótt. Karlmaður á fimmtugsaldri hafði skallað sambýliskonu sína og veitt henni áverka á höfði. Samkvæmt upplýsingum lögreglu sagðist konan ætla að leita sér sjálf hjálpar vegna meiðslanna, sem voru ekki talin alvarleg.

Hátíðarhöld í tilefni sjómannadagsins

Sjómanndagurinn er runninn upp í 72. sinn en dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1938. Hátíðarhöld eru í flestum ef ekki öllum sjávarþorpum og -bæjum á Íslandi þennan dag.

Mistur yfir höfuðborgarsvæðinu

Mistur liggur nú yfir höfuðborgarsvæðinu en samkvæmt veðurfræðing á Veðurstofu Íslands er að mestu um að ræða þokumóðu þótt einhver aska sé henni blönduð. Hann segir svifryk í andrúmsloftinu nú undir heilsuverndarmörkum þótt magn þess hafi nokkuð hækkað eftir því sem liðið hefur á morguninn. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geti vænst því að Sjómannadagurinn verði nokkuð bjartur.

Fjölmiðlafulltrúi segir aðstöðu fyrir hvítabjörn ekki kosta 250 milljónir

Gaukur Úlfarsson, fjölmiðlafulltrúi Besta flokksins, segir að aðstaða fyrir hvítabjörn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þurfi ekki að kosta meira en 250 milljónir. Þetta kemur fram á vef DV. Gaukur segir hugmyndir Besta flokksins um að koma ísbirni fyrir í garðinum miða að því að koma dýri í útrýmingarhættu til hjálpar svo ekki þurfi að skjóta það þegar það rekur hingað á land.

Hópslagsmál í Bolungarvík

Hópslagsmál brutust út fyrir utan skemmtistað í Bolungarvík um klukkan þrjú í nótt. Allt að 20 manns tóku þátt í slagsmálunum með einum eða öðrum hætti. Lögreglumenn fóru á staðinn og stilltu til friðar.

Ók á konu og stakk af

Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Lögreglan handtók fjóra pilta um miðbik nætur þegar þeir reyndu að komast undan eftir að jeppling sem þeir voru í var ekið út af á Reykjanesbraut við Miklubraut. Einn þeirra var handleggsbrotinn og varð færðu á slysadeild. Hinir voru færðir í fangageymslur en óljóst er hver var ökumaður. Allir eru grunaðir um ölvun en rætt verður við þá síðar í dag.

Gekk í sjóinn við Eiðisgranda

Maður gekk í sjóinn við Eiðisgranda í nótt og brást lögregla skjótt við. Lögreglumaður óð á eftir manninum sem virtist staðráðinn í að halda sínu striki og veitti töluverða mótspyrnu. Eftir að manninum var komið á land var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild þar sem honum var veitt aðhlynning.

Áhöfn Rachel Corrie vísað úr landi

Öllum 19 áhafnarmeðlimum flutningaskipsins Rachel Corrie verður vísað úr landi í dag. Áhöfnin var handtekinn í gær en hún ætlaði að reyna sigla flutningaskipinu til Gaza og koma hjálpargögnum til íbúa þar.

Líkamsárás í Þorlákshöfn

Eitt líkamsárásarmál kom upp í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í nótt. Tveimur karlmönnum lenti saman fyrir utan skemmtistað í Þorlákshöfn með þeim afleiðingum að annar þeirra hlaut andlitsáverka. Hann er ekki alvarlega slasaður, að sögn lögreglu. Nóttin var að öðru leyti róleg hjá lögreglumönnum á Selfossi.

Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur

Harður árekstur varð á á sjöunda tímanum í morgun þegar fólksbíl var ekið á miklum hraða austur Miklubraut og hafnaði á kyrrstæðun bíl til móts við Rauðarárstíg. Kyrrstæða bifreiðin valt og lenti á öðrum bíl sem hafnaði á steintröppum raðhúss. Farþegi í bílnum var fluttur á slysadeild og er talinn fótbrotinn samkvæmt upplýsingum lögreglu.

Þrír handteknir með kannabis

Lögreglan í Borgarnesi handtók þrjá karlmenn í nótt eftir fíkniefni fundust á þeim og í bifreið þeirra. Um var að ræða kannabis í neysluskömmtum, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Mennirnir sem allir eru fæddir árið 1987 voru færðir á lögreglustöðina í Borgarnesi. Þeim var sleppt úr haldi að lokinni skýrslutöku.

Palin: Umhverfisverndarsinnar bera ábyrgð á olíulekanum

Sarah Palin, varaforsetaefni Repúblíkana í síðustu forsetakosningum, segir að umhverfisverndarsinnar beri ábyrgð á olíulekanum á Mexíkóflóa. Andstaða þeirra við olíuboranir á landi hafa neytt stjórnvöld og einkafyrirtæki til ráðast í afar áhættusöm verkefni á miklu dýpi, að mati Palin. Hún kom þessum skilaboðum á framfæri í gegnum Facebook.

Töluðu um launakjörin

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ræddu um væntanleg launakjör Más í júní í fyrra áður en hann tók við sem seðlabankastjóri. Þetta kemur fram í tölvupóstsamskiptum Más við forsætisráðuneytið, sem Morgunblaðið hefur fengið aðgang að, að hluta og birt er á vef blaðsins.

Fjórir Íslendingar skipta um kyn næstu tvo daga

Fjórar manneskjur gangast undir svokallaða kynskiptiaðgerð á morgun og á mánudag á Landspítalanum. Málið er umdeilt þar sem aðgerðirnar þykja dýrar á niðurskurðartímum.

Um 900 Kópavogsbúar strikuðu Gunnar út

Alls var 1483 atkvæðum sjálfstæðismanna í Kópavogi breytt eða 36% þeirra atkvæða sem flokkurinn fékk í kosningunum fyrir viku. Samtals var 1745 atkvæðum í Kópavogi breytt ýmist með því að strika út nöfn frambjóðenda eða með því að færa þá til um sæti.

Fyrsti vinningur gekk ekki út

Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld. Þrír voru með fjórar tölur réttar auk bónustölurnar og fá vinningshafarnir tæpar 78 þúsund krónur í sinn hlut.

80 hjól seldust á uppboði lögreglunnar

Rúmlega 50 þúsund krónur fengust fyrir dýrasta hjólið á árlegu hjólauppboði lögreglu höfuðborgarsvæðisins í dag. 80 hjól seldust á uppboðinu, minnst fengust þúsund krónur fyrir barnahjól.

Óttast að íslenskar matvöruhefðir leggist af

Við þurfum að nýta okkur hefðbundinn íslenskan mat; skyr, hangikjöt, harðfisk og fleira til að auka vinsældir hans. Þetta segir talsmaður Slow food á Íslandi sem óttast að framleiðsla á þessum matvörutegundum leggist af.

Fjölsóttur fjölskyldudagur | Myndir

Fjölskyldudagur Ungmennafélags Íslands var haldinn við rætur Miðfells í Hrunamannahreppi í dag. Dagurinn var fjölsóttur en um 300 manns skemmti sér hið besta í blíðskaparveðri og 20 stiga hita.

Dögun sigraði

Siglingamót Brokeyjar á Hátíð hafsins fór vel í dag og sigraði skútan Dögun. Keppnin var svo ræst með fallbyssuskotum af varðskipsbryggjunni klukkan 14:15.

Mótmæltu aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar

Um tuttugu Akureyringar mótmæltu aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar og alþjóðasamfélagsins vegna aðgerða Ísraela þegar ráðist var á skipalest með hjálpargögn á leið til Gazasvæðsins fyrr í vikunni. Á sama tíma kom hópur fólk saman við Akureyrarkirkju og krafist aðskilnaðar ríkis og kirkju.

Ók yfir kant og ofan á bíl

Óvenjuleg sjón blasti við íbúum í Engjaseli í Reykjavík í morgun þegar í ljós kom að bíl hafði verið ekið yfir kant sem staðnæmst ofan á bíl á bílastæðinu.

„Þjóðin vill breytingar og þarf breytingar“

Ágúst Einarsson lét af störfum sem rektor Háskólans á Bifröst í dag. Í sinni síðustu útskriftaræðu gagnrýndi hann stjórnvöld harðlega og sagðist vilja nýtt lýðveldi og beina kosningu framkvæmdavaldsins.

Rofar til seinnipartinn

Skyggni yfir Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu hefur lítið breyst frá því morgun en talið er að það muni rofa til seinnipartinn. Líkt og undanfarna daga liggur aska yfir nágrenni Eyjafjallajökuls og höfuðborgarsvæðinu, en þó í mun minni mæli en í gær að sögn Hrafns Guðmundssonar, veðurfræðings hjá Veðurstofunni. Hann segir erfitt að spá fyrir um dreifingu öskunnar.

Tveir breskir hermenn féllu í Afganistan

Tveir breskir hermenn létu lífið í átökum við talibana í Helmandhéraði í suðurhluta Afganistan í gær. Alls hafa 292 breskir hermann fallið í Afganistan síðan stríðið hófst árið 2001.

Ólafur: Jón þarf að leggja mikið á sig til að verða betri en ég

Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri, segist ætla gefa meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar tíma til að sanna sig. Ólafur segir að Jón Gnarr þurfi að leggja mikið á sig til að verða betri borgarstjóri enn hann hafi verið.

Áfram í varðhaldi vegna innbrota í tugi sumarbústaði

Tveimur ungum mönnum sem hafa verið í gæsluvarðhaldi grunaðir um að hafa brotist inn í tugi sumarbústaði í Grímsnesi, Borgarfirði, Dölunum og á Þingvöllum í maí hefur verið sleppt úr haldi. Þriðji maðurinn, sem jafnframt er sá elsti hópnum verður haldið lengur í gæsluvarðhaldi vegna hagsmuna rannsóknarinnar en einangrun hefur verið aflétt, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi. Fjórði aðilinn, sem er 15 ára, hefur alfarið verið undir umsjón barnaverndaryfirvalda.

Blendnar tilfinningar

„Það er gott að hrista upp í hlutunum,“ segir Halldóra Geirharðsdóttir, leikkona, sem fékk í gær þrjár tilnefningar til Grímuverðlauna.

Boða til mótmæla á Ráðhústorginu

Hópur Akureyringa ætlar að koma saman á Ráðhústorginu klukkan tvö á eftir og mótmæla aðgerðarleysi íslensku ríkisstjórnarinnar og alþjóðasamfélagsins í garð ofbeldis og kúgunar Ísraelsmann á Gazasvæðinu, líkt Sóley Björk Stefánsdóttir einn skipuleggjanda mótmælanna orðar það.

Flugvélar til sýnis

Flugvélar af ýmsum stærðum og gerðum verða til sýnis á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem Flugdagurinn er haldinn frá hádegi til klukkan fjögur.

Vísindamenn fylgjast með óróanum í Eyjafjallajökli

Órói í eldstöðinni í Eyjafjallajökli var nokkur frá miðnætti í nótt. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir að jarðvísindamenn fylgist vel með svæðinu enda hafi óróinn varað lengur en í fyrstu var búist við.

Erfitt að spá fyrir um framhaldið

Skyggni yfir Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu er mun betra í dag en það var í gær, búast má við því að enn rofi til seinni partinn í dag. Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir þó afar erfitt að spá fyrir um framhaldið þar sem aðstæður líkt og þær sem Eyjafjallajökull hefur skapað séu nær óþekktar.

Hermenn komnir um borð í hjálparskipið

Ísraelski sjóherinn hefur ráðist um borð í skip friðarsinna sem var á leið með birgðir til Gaza og siglir því nú til Ashdod Port, sem er helsta lestunarhöfn í Ísrael. Ekkert hefur heyrst frá friðarsinnunum frá því Ísraelsher tók skipið yfir. Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar hafði skipið Rachel Corrie ekki svarað fjórum skipunum hersins um að leggjast að bryggju í Ísrael.

Meintur morðingi í haldi

Lögreglan í Belgíu hefur handtekið mann sem hún hefur grunaðan um að hafa skotið dómara og aðstoðarmann hennar til bana þegar þau voru að koma úr réttarsal í Brussel á fimmtudagsmorgun.

Ísraelar reyna að stöðva för friðarsinna

Ísraelski sjóherinn reynir nú að stöðva för friðarsinna um borð í hjálparskipi á leið til Gaza. Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar hefur skipið Rachel Corrie ekki svarað fjórum skipunum hersins um að leggjast að bryggju í Ashdod Port, sem er helsta lestunarhöfn í Ísrael.

Enn órói í Eyjafjallajökli

Órói í eldstöðinni í Eyjafjallajökli var nokkur frá miðnætti í nótt. Þetta kemur fram á vefsíðu Veðurstofu Íslands, samkvæmt upplýsingum þaðan frá því í morgun virðist einhver mökkur stíga upp frá jöklinum en mjög lítill, hugsanlega hefur kvika komið upp úr gosgígnum en við það myndast sprengingar og mökkur. Ekki séu þó líkur á að gos sé aftur að hefjast.

Sjá næstu 50 fréttir