Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sá sem drakk stíflueyði í samkvæmi er úr allri lífshættu Maðurinn sem drakk stíflueyði í samkvæmi þar síðustu helgi hefur verið útskrifaður af gjörgæslu Landspítalans. 27.4.2010 10:06
Halldór: Sömdum ekki um skiptingu bankanna „Allt tal um pólitískt samkomulag um skiptingu bankanna er út í hött. Það áttu engin slík samtöl sér stað milli mín og Davíðs," segir Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins. Hann segir að það hafi ekki verið mistök að skipa Davíð Oddsson í stöðu bankastjóra Seðlabankans. 27.4.2010 09:52
Vopnaður maður handtekinn í grennd við forsetaflugvélina Vopnaður karlmaður var handtekinn á flugvellinum í Norður-Karólínu skömmu áður en flugvél Barack Obama, Bandaríkjaforseta, hélt á brott í gær. Maðurinn var stöðvaður áður en komst í tæri við forsetann. 27.4.2010 08:38
Höfuðkúpubraut 14 ára nemanda „Drepstu, drepstu, drepstu,“ hrópaði breskur náttúrufræðikennari áður en hann sló 14 ára gamlan dreng í höfuðið með lóði í kennslustund á síðasta ári. Réttarhöld í málinu hófust í gær en kennarinn á yfir höfði sér fangelsisvist verði hann fundinn sekur. 27.4.2010 08:29
Vill vinna með báðum flokkum en ekki Brown Leiðtogi Frjálslyndra demókrata í Bretlandi hefur dregið til baka yfirlýsingu sína um að hann vilji starfa með Íhaldsflokknum eftir kosningar. Nú segist hann einnig vilja vinna með Verkamannaflokknum. 27.4.2010 08:24
Ekki í lífshættu eftir að hafa drukkið stíflueyði Karlmaður, sem saup á stíflueyði í verslun Húsasmiðjunnar við Skútuvog í Reykjavík á níunda tímanum í gærkvöldi liggur sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landsspítalans, en mun ekki lengur vera í lífshættu. Þegar starfsfólk og viðskiptavinir í versluninni sáu hvers kyns var, brugðust þeir réttilega við og reyndu að láta manninn drekka mjólk á meðan beðið var eftir sjúkraliði. Við fyrstu skoðun reyndist hann mjög bólgin og sviðin í munnholi og vélinda. 27.4.2010 08:21
Myrti eiginkonuna eftir ósætti um sjónvarpgláp Lögreglan í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum handtók um helgina karlmann sem talinn er hafa myrt eiginkonu sína í kjölfar rifrildis um sjónvarpsgláp hans. Konan var ósátt við að eiginmaðurinn skyldi vaka frameftir til að fylgjast með úrslitum í æsispennandi hokkíleik sem þurfti þrívegis að framlengja. Maðurinn tók athugasemdum eigi 27.4.2010 08:16
Á annað hundrað umferðarlagabrot á 15 árum Karlmaður sem nýverið hlaut sex mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir umferðarlagabrot, hefur framið samtals 185 slík brot síðastliðin 15 ár, eða rösklega tíu brot á ári að meðaltali. Síðast var hann tekinn próflaus, en framvísaði ökuskírteini, sem ekki var lengur í gildi því búið var að svipta hann réttindum. Fyrir utan fjölmargar sektir, er refsingin núna sú sjöunda síðan árið 2003. Við lauslega athugun virðist þessi brotaferill mannsins með eindæmum hér á landi. 27.4.2010 08:13
Tveir stútar stöðvaðir Lögreglan í Árnessýslu stöðvaði ökumann á Þorlákshafnarvegi í gærkvöldi grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók annan úr umferð í nótt fyrir sömu sakir, en þrír ökumenn, allt karlmenn, voru teknir úr umferð fyrir fíkniefnaakstur í borginni um helgina. Sex voru auk þess teknir fyrir ölvunarakstur í borginni um helgina, þar af fjórir karlmenn. Í þessum níu tilvikum áttu karlmenn aðild að sjö, en konur aðeins að tveimur. 27.4.2010 08:08
Lífsleiðir borða súkkulaði Þunglyndir og daprir einstaklingar borða mun meira súkkulaði en þeir sem eru eru lífglaðir. Þetta er niðurstaða sérfræðinga í Kaliforníuháskóla í San Diego en tæplega eitt þúsund fullorðnir einstaklingar tóku þátt í rannsókninni. Enginn þátttakandi hafði áður verið greindur með þunglyndi. 27.4.2010 08:07
Bond vill hvalveiðibann Fyrrum Bondstjarnan Pierce Brosnan segir mikilvægt að alþjóðsamfélagið leggist alfarið gegn hvalveiðum. Hann segir ekki hægt réttlæta dráp á hvölum. Leikarinn vonast til þess að ný heimildarmynd sem Disney framleiddi og hann léði rödd sína í verði til þess að fleiri láti sig málið varða. 27.4.2010 08:04
Konungurinn féllst á afsögn Albert konungur Belgíu hefur fallist á afsagnarbeiðni Yves Leterme, forsætisráðherra landsins, sem sagði af sér í síðustu vikur eftir árangurslausar tilraunir til að leysa langvarandi deilur um tungumál kjördæma. Um alllangt skeið hefur verið tekist á um það hvort bæði tungumálin, flæmska og franska, verði jafngild á nokkuð stóru svæði umhverfis höfuðborgina Brussel. Þegar ekki tókst að leysa deiluna sagði einn flokkur sig úr stjórninni. 27.4.2010 07:57
Öllu flugi frestað fram yfir hádegi Öllu flugi Flugfélags Íslands hefur verið frestað fram yfir hádegi, vegna eldfjallaösku í lofti. Athugað verður nánar með flug upp úr klukkan eitt. Flugfélagi Ernir hefur líka frestað öllu sínu morgunflugi, sem átti að vera til Sauðárkróks, Hafnar og Bíldudals. Aðstæður verða endurmetnar í hádeginu. 27.4.2010 07:53
Forseta settar siðareglur Embætti forseta Íslands verða settar siðareglur. Undirbúningur verksins er hafinn í stjórnarráðinu þar sem meðal annars hefur verið skoðað með hvaða hætti reglurnar verða festar í sessi. Kemur til álita að færa þær í lög um laun forsetans eða gefa þær út með forsetabréfi. Forsetabréf eru ein tegund stjórnsýslufyrirmæla en aðrar eru forsetaúrskurðir og reglugerðir ráðherra. 27.4.2010 06:30
Skilanefnd kannar hvort birta megi styrki til stjórnmálamanna Skilanefnd Glitnis er að kanna hvort nokkuð sé því til fyrirstöðu að birta upplýsingar um styrkveitingar Glitnis til stjórnmálamanna með sama hætti og skilanefndir Kaupþings og Landsbanka Íslands hafa gert. 27.4.2010 06:00
Hámarksupphæð var tekin út úr reglum Stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík lagði það til árið 2006, fyrir prófkjör vegna alþingiskosninga 2007, að prófkjörskostnaður mætti ekki fara fram úr einni milljón króna. Einnig áttu frambjóðendur að sýna háttvísi í baráttunni og gera grein fyrir kostnaði að henni lokinni. 27.4.2010 05:00
Földu dóp í rafgeymi bíls Ríkissaksóknari hefur ákært tvo karlmenn og eina konu, Mindaugas Strimaitis, Tadas Griskevicius og Rima Kavalskyte, fyrir að reyna að smygla inn nær 2,8 kílóum af metamfetamíni til sölu og dreifingar. 27.4.2010 04:00
Þingmenn sitji ekki í óþökk grasrótarinnar Þingmenn eru á þingi fyrir kjósendur sína. Telji grasrót flokksins að þingmaður eigi ekki erindi á þing þá á hann einfaldlega ekki erindi þar. 27.4.2010 03:30
Þarf stærra átak en eftir bankahrunið Miklu skiptir að fara strax af stað með markaðsátak til að koma í veg fyrir mikinn samdrátt í fjölda ferðamanna sem koma hingað til lands, segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. 27.4.2010 03:30
Vilja taka lán fyrir framkvæmdum Brýnt er að framkvæmdir verði ekki skornar niður í kreppunni heldur þeim haldið áfram, segir í atvinnustefnu Samfylkingarinnar sem samþykkt var á Reykjavíkurþingi flokksins um helgina. Lagt er til að tekin verði lán til þess að halda framkvæmdastiginu uppi. Borgarsjóður ráði við lántökur sem forðað gætu framkvæmda- og byggingariðnaði frá algjöru hruni. 27.4.2010 03:00
Vélmenni stöðvi gríðarlegan olíuleka Talið er að um 160 þúsund lítrar af olíu leki í hafið á degi hverjum frá olíuborpallinum sem sökk til botns á Mexíkóflóa í síðustu viku. Til að reyna að draga úr umhverfisspjöllum vegna olíunnar hafa vélmenni verið send á dýpið og eiga að gangsetja búnað sem gæti stöðvað lekann. Borpallurinn var í eigu breska olíufélagsins, BP, og lögðu talsmenn hans áherslu á að aðgerðin væri svo flókin að ekki væri víst að hún tækist. Leifarnar af pallinum eru á rúmlega 1.500 metra dýpi. 27.4.2010 03:00
Forseti Súdans heldur völdum Tilkynnt var í gær að Omar al-Basjír forseti, sem eftirlýstur er fyrir stríðsglæpi í Darfúr, hafi orðið hlutskarpastur í forsetakosningum, með um 68 prósent atkvæða. 27.4.2010 02:00
Noriega framseldur til Frakklands í dag Manuel Noriega, fyrrverandi einræðisherra í Panama, var í dag framseldur til Frakklands frá Bandaríkjunum. Noriega hefur setið í fangelsi í Bandaríkjunum fyrir eiturlyfjainnflutning og í janúar komst Hæstiréttur Bandaríkjanna að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að stöðva framsal á honum til Frakklands eftir afplánun. 26.4.2010 21:55
Meirihluti stjórnar BÍ neitaði að skrifa undir reikninga Á stjórnarfundi Blaðamannafélags Íslands sem haldinn var í kvöld neitaði meirihluti stjórnarinnar að undirrita ársreikning félagsins. Fjórir stjórnarmenn af sjö neituðu að skrifa undir, þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir formaður félagsins, Sólveig Bergmann, Svavar Halldórsson og Elva Björk Sverrisdóttir varaformaður. 26.4.2010 21:15
Össur vill heimsækja Gazasvæðið Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra flutti ræðu á aðalfundi Félagsins Ísland-Palestína í Iðnó í gærkvöldi. Össur fjallaði um málefni Palestínu og á hvern veg Ísland hefur stutt Palestínumenn bæði á stjórnmálasviði og með beinum stuðningi við ákveðin verkefni, meðal annars á sviði heilsugæslu, en Ísland viðurkennir og styður sjálfákvörðunarrétt palestínsku þjóðarinnar, rétt hennar til að stofna sjálfstætt ríki og önnur þjóðarréttindi Palestínumanna. 26.4.2010 20:43
Fluttur á slysadeild eftir að hafa drukkið stíflueyði Maður var fluttur á slysadeild um klukkan hálfníu í kvöld eftir að hann hafði drukkið stíflueyði í Húsasmiðjunni í Skútuvogi. Að sögn vakstjóra hjá slökkviliðinu voru það starfsmenn Húsasmiðjunnar sem kvöddu sjúkralið á vettvang en maðurinn var mjög veikur enda um afar sterkt efni að ræða sem brennir innyfli og getur verið baneitrað. 26.4.2010 21:42
Sex drukknir undir stýri og þrír dópaðir Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að tveir hafi verið stöðvaðir í Reykjavík og Kópavogi og einn í Hafnarfirði og Garðabæ. Þrír voru teknir á laugardag og jafnmargir á sunnudag. 26.4.2010 19:38
Tíðindalaust af gosstöðvunum Kvikustreymi og gosmökkur frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Í minnisblaði frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands segir að ekki sjáist merki um að gosi sé að ljúka, þó að virkni á yfirborði sé minni en þegar mest lét. 26.4.2010 19:34
Iceland Express flýtir brottför í fyrramálið Iceland Express ætlar að flýta flugi félagsins til London og Kaupmannahafnar í fyrramálið. Vélarnar fara klukkan 05:30 frá Keflavík í stað 07:00 vegna væntanlegrar lokunar Keflavíkurflugvallar snemma á morgun. 26.4.2010 18:57
Sigmundur: Verulegt svigrúm til skuldaleiðréttingar Formaður Framsóknarflokksins segir bankana hafa svigrúm til verulegrar skuldaleiðréttingar hjá heimilum landsins en yfir helmingur þeirra nái ekki endum saman. Fjármálaráðherra segir stjórnvöld ekki hafa efni á almennri skuldalækkun. Þess í stað eigi að einbeita sér að þeim sem virkilega þurfi á aðstoð að halda. 26.4.2010 18:42
Létust í bílslysi í Reykjanesbæ Stúlkurnar sem létust í bílslysi í Reykjanesbæ á laugardag hétu Lena Margrét Hinriksdóttir, fædd 8 febrúar 1992 og Unnur Lilja Stefánsdóttir, fædd 25. ágúst 1991. 26.4.2010 18:05
Vill aukafund í iðnaðarnefnd Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur farið fram á það við formann iðnaðarnefndar, Skúla Helgason, Samfylkingu, að boðað verði sem fyrst til aukafundar í nefndinni. „Tilefnið er að ítrekað hefur komið fram í umræðu af hálfu opinberra aðila að mörg erlend fyrirtæki hafi líst áhuga á að byggja upp orkufreka atvinnustarfsemi á Íslandi,“ segir þingmaðurinn. 26.4.2010 17:44
Héraðsdómur skal rétta í árásarmáli gegn lögreglusyni Hæstiréttur Íslands snéri úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem varðar vanhæfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu en sonur varðstjóra, sem starfar hjá lögreglunni, kærði annan pilt fyrir að skalla hann í andlitið með þeim afleiðingum að tönn brotnaði. 26.4.2010 16:32
Örninn flýgur Það er víðar en á Íslandi sem það þykir fréttnæmt þegar örnum er sleppt aftur út í náttúruna eftir að búið er að hjúkra þeim til heilsu. 26.4.2010 16:06
Umhverfisráðuneytið vill læra af rannsóknarskýrslunni Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur sett af stað vinnu í umhverfisráðuneytinu til að fara yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og skoða hvort niðurstöður hennar kalli á breytingar á starfsháttum ráðuneytisins. 26.4.2010 15:58
Sóðaakstur í sumarbyrjun Starfsmönnum Spalar brá heldur betur í brún þegar ökumaður á jeppabifreið ók að minnsta kosti á 70 kílómetra hraða á radar sem notaður var til að lengdarmæla bíla í gjaldhliðina við Hvalfjarðargöngin á sumardaginn fyrsta. 26.4.2010 15:15
Tvíburabróðir vill verða forseti Póllands Jaroslaw Kaczynski hefur tilkynnt að hann hyggist bjóða sig fram í embætti forseta Póllands í stað tvíburabróður síns sem fórst í flugslysi í Rússlandi á dögunum. 26.4.2010 15:11
Ræðst gegn klerkum í Íran Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Íran hefur ráðist harkalega á klerkastjórnina þar á heimasíðu sinni. 26.4.2010 14:36
Suðurlandsvegur opinn - rólegt hjá lögreglunni á Hvolsvelli Það hefur verið rólegt hjá lögreglunni á Hvolsvelli í dag en Suðurlandsvegur er opinn almennri umferð. 26.4.2010 14:27
Icelandair flýtir flugi vegna óvissu um öskufall Icelandair hefur tilkynnt að brottför tveggja fluga félagsins frá Keflavíkurflugvelli á morgun, þriðjudaginn 27. apríl verður flýtt. Ástæðan er sú að nokkur óvissa er um flug til og frá Keflavíkurflugvelli síðdegis á morgun vegna ösku frá Eyjafjallajökli. Þessi breyting hefur ekki áhrif á annað flug Icelandair á morgun. 26.4.2010 14:21
Einstein litli Einstein heitir folaldið og er þriggja daga gamalt. Það fæddist í New Hampshire í Bandaríkjunun, Einstein er af smáhestakyni en jafnvel að teknu tilliti til þess verður að segja að hann er óttalegt kríli. 26.4.2010 13:41
Eyjafjallajökull verður tæpast nafngjafi Það eru fjölmörg dæmi um að nöfn manna eða fyrirbæra hafi fest sig í sessi í öllum heimsins tungumálum sem samheiti i fyrir eitthvað sérstakt. 26.4.2010 13:30
Sakaður um pyntingar - dæmdur mánuði áður fyrir hrottaskap Einn mannanna, sem var handtekinn vegna frelsissviptingar í Reykjanesbæ rétt eftir páska, var dæmdur aðeins mánuði áður fyrir hrottalega líkamsárás þegar hann ruddist inn á heimili manns ásamt öðrum manni í Keflavík. 26.4.2010 13:27
Hawking hræddur við geimverur Stjarneðlisfræðingurinn og stærðfræðingurinn Stephen Hawking telur mjög líklegt að geimverur séu til en að mannkyninu sé ráðlegast að hafa hægt um sig og vona að þær taki ekki eftir okkur. 26.4.2010 13:15
Nautið vann -myndband Einn af þekktustu nautabönum Spánar liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að naut sem hann var að berjast við stangaði hann í nárann. 26.4.2010 13:00