Vill vinna með báðum flokkum en ekki Brown 27. apríl 2010 08:24 Nick Clegg, leiðtogi Frjálslyndra demókrata sagðist í fyrradag ætla að snúa sér að Íhaldsflokknum eftir kosningar en nú segist hann einnig vilja starfa með Verkmannaflokknum. Mynd/AP
Leiðtogi Frjálslyndra demókrata í Bretlandi hefur dregið til baka yfirlýsingu sína um að hann vilji starfa með Íhaldsflokknum eftir kosningar. Nú segist hann einnig vilja vinna með Verkamannaflokknum. Bresku þingkosningarnar fara fram á fimmtudaginn eftir viku og lítur allt út fyrir að lokasprettur kosningabaráttunnar verði afar spennandi. Undanfarna daga hefur kosningabaráttan að miklu leyti snúist um Frjálslynda demókrata, en flokkurinn hefur verið þriðji stærsti stjórnmálaflokkur landsins í meira en 20 ár. Svo virðist sem að Nick Clegg, leiðtogi flokksins, sem stolið hefur senunni sé að einhverju leiti að fatast flugið. Í fyrrakvöld vakti mikla athygli yfirlýsing hans um að hann ætlaði að snúa sér til Íhaldsflokksins um myndun nýrrar ríkisstjórnar fengi enginn flokkur meirihluta. Clegg sagði ennfremur að yrði Verkamannaflokkurinn þriðji stærsti flokkur Bretlands eftir kosningarnar ætti flokkurinn ekki að koma að stjórn landsins á næstu árum. Ummælin vöktu hörð viðbrögð á vinstrivæng stjórnmálanna og nú hefur Clegg dregið í land og sagst jákvæður fyrir samstarfi við Verkamannaflokkinn eftir kosningar. Hann vilji hins vegar ekki vinna með Gordon Brown leiðtoga flokksins og núverandi forsætisráðherra. Hans tími sé einfaldlega liðinn.
Mest lesið Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Kona handtekin vegna dánartilkynningar í Morgunblaðinu Innlent Guðmundarlundur á bólakafi Innlent Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar Innlent Bein útsending: Kynna atvinnustefnu og aðgerðir gegn verðbólgu Innlent Krefjast þess að framkvæmdir við Kaffistofuna verði stöðvaðar Innlent Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Erlent Fleiri fréttir Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Sjá meira