Vélmenni stöðvi gríðarlegan olíuleka 27. apríl 2010 03:00 Olíubrákin nær nú þegar yfir 1.550 ferkílómetra. Nordicphotos/AFP
Talið er að um 160 þúsund lítrar af olíu leki í hafið á degi hverjum frá olíuborpallinum sem sökk til botns á Mexíkóflóa í síðustu viku. Til að reyna að draga úr umhverfisspjöllum vegna olíunnar hafa vélmenni verið send á dýpið og eiga að gangsetja búnað sem gæti stöðvað lekann. Borpallurinn var í eigu breska olíufélagsins, BP, og lögðu talsmenn hans áherslu á að aðgerðin væri svo flókin að ekki væri víst að hún tækist. Leifarnar af pallinum eru á rúmlega 1.500 metra dýpi. Óttast er að nái olían til bandarískrar strandar verði meiri háttar umhverfisslys. Borpallurinn var einungis 112 kílómetra undan Bandaríkjaströnd en í innan við 50 kílómetra fjarlægð er eyjaklasi sem er áfangastaður farfugla. Sérfræðingar óttast mjög áhrifin sem olían gæti haft á lífríki stranda, eyja og votlendis berist hún að landi. Vindar hafa verið hagstæðir til þessa og olíustraumurinn legið frá landi. Nú þegar hefur olíubrákin breitt sig yfir svæði sem eru 1.550 ferkílómetrar að stærð. Alls 30 skip eru á vettvangi og vinna að hreinsun hennar. Stefnt er að því að loka olíulindinni sem borpallurinn var yfir, en það getur tekið frá nokkrum tímum til margra mánaða. Borpallurinn var 121 metra langur og 78 metra breiður. Ellefu manns úr áhöfn hans er enn saknað.- sbt
Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira