Fleiri
Bandaríkjamenn reiðubúnir til að senda liðsauka til Íraks 12.7.2009 12:08 Norrænir guðir yfirtaka Eden Iðavellir heitir setur norrænnar goðafræði, sem hefur verið opnað í Hveragerði þar sem áður var Eden. 12.7.2009 12:05 Svínaflensan komin til Færeyja Svínaflensan er komin til Færeyja. Fyrir helgi voru sýni tekin úr öllum börnum og starfsfólki leiksskóla í bænum Hoyvík en faðir barns á leikskólanum hefur greinst með flensuna. Þeir sem boðaðir voru í sýnatöku voru beðnir að koma ekki inn á Landssjúkrahúsið vegna smithættu. Þess í stað voru sýnin tekin úr fólki úti á bílastæði að því er fram kemur í færeyskum fjölmiðlum. 12.7.2009 12:02 Gagnrýnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins Dögg Pálsdóttir lögmaður sem bauð sig fram til Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn í síðustu alþingiskosningum, gagnrýnir flokkinn fyrir að leggja til að farið verði í tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. 12.7.2009 12:00 Sjá næstu 50 fréttir
Óttast var um menn á Þingvallavatni Lögreglunni á Selfossi barst aðstoðarbeiðni rétt fyrir klukkan sex á laugardag vegna tveggja manna sem höfðu farið á bát út á Þingvallavatn frá landi Miðfells um hádegið. 13.7.2009 12:49
Lítið barn féll tvo metra Barn á öðru ári féll tvo metra af svefnlofti niður á gólf í sumarbústað í landi Úthlíðar í Biskupstungum í morgun. Barnið var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítala til skoðunar. Barnið mun hafa hlotið höfuðhögg en meiðslin eru ekki talin alvarleg. 13.7.2009 12:45
Um 6% söluaukning á nautakjöti í júní Alls seldust 320 tonn af nautakjöti í nýliðnum júnímánuði, sem er 5,9% aukning miðað við júní í fyrra. Undanfarna 12 mánuði hafa selst 3.640 tonn af nautakjöti og er það 2,1% samdráttur frá árinu á undan, eftir því sem fram kemur á vefsíðu Landssambands kúabænda. Innflutningur á nautakjöti hefur dregist verulega saman að undanförnu. Fyrstu 5 mánuði þessa árs hafa verið flutt inn 49 tonn af nautakjöti, á móti 197 tonnum á sama tímabili í fyrra. 13.7.2009 12:31
Stíft fundað um Icesave Stíft var fundað um Icesave málið á Alþingi í morgun. Haldin var sameiginlegur fundur í efnhags- og skattanefnd og fjárlaganefnd klukkan hálf níu en um klukkan hálf ellefu kom utanríkismálanefnd saman. 13.7.2009 12:10
Nærri fjórðungur atvinnulausra á aldrinum 16-24 Rúmlega 3500 manns á aldrinum 16-24 ára eru skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun. Það er um 23% prósent af heildarfjölda atvinnulausra samkvæmt nýjustu tölum frá því í lok júní. Námsmenn sem unnið hafa að minnsta kosti þrjá mánuði í fyrra eiga rétt á 25% atvinnuleysisbótum. Atvinnuleysi mælist nú 8,1% en rúmlega fimmtán þúsund og fimm hundruð manns eru á atvinnleysisskrá. 13.7.2009 12:06
Bólusetningarlyf gegn H1N1 munu kosta allt að 400 milljónum Áætlað er að kostnaður við kaup á bólusetningarlyfjum gegn svínaflensu verði á bilinu 300 - 400 milljónir að sögn sóttvarnarlæknis. Keyptir verða um þrjú hundruð skammtar en búist er við að bólusetja þurfi hvern einstakling tvisvar. 13.7.2009 12:01
Á batavegi eftir flugslys Karlmaðurinn sem komst lífs af þegar Cessna flugvél brotlenti í Vopnafirði 2. júlí síðastliðinn er á batavegi og var útskrifaður af gjörgæsludeild Landspítalans í gærkvöldi, að sögn vakthafandi læknis þar. Flugvélin sem brotlenti var af gerðinni Cessna 180 og var fjögurra sæta einkaflugvél. Annar karlmaður, sem var um borð í vélinni lést í slysinu. 13.7.2009 11:43
Bjarni svarar Össuri fullum hálsi „Það er skýlaus stefna utanríkisráðherra að hafa þarna hús sem ekki verður opið almenningi. Ég mun berjast á móti henni," segir Bjarni Harðarson, fyrrum þingmaður Framsóknar í samtali við fréttastofu. Hann og Össur Skarphéðinsson hafa munnhöggvist á opinberum vetvangi eftir að Valhöll á þingvöllum brann, en þeir eru á öndverðum meiði um framtíð Valhallarreitsins. 13.7.2009 11:19
Útvarpsgjaldið innheimt með nýjum hætti í næsta mánuði Um næstu mánaðamót munu allir skattskyldir einstaklingar fá sendan innheimtuseðil vegna útvarpsgjaldsins í fyrsta skipti, samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið sem samþykkt voru árið 2007, en áður höfðu eigendur sjónvarpstækja og útvarpstækja greidd af hendi útvarpsgjöldin. 13.7.2009 11:19
Áfram tekist á um ESB í dag Þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu verður áfram til umræðu í þinginu í dag á þingfundi sem hefst klukkan 15. Þá er ályktunartillaga stjórnarandstöðunnar um undirbúning mögulegrar umsóknar um aðild að Evrópusambandinu jafnframt á dagskrá. 13.7.2009 09:29
Japanar spenntir vegna sólmyrkva Japanar bíða nú spenntir eftir að fylgjast með sólmyrkva sem verður 22. júlí og er sá langvinnasti á þessari öld. 13.7.2009 08:31
Cheney leyndi þingið mikilvægum upplýsingum Komið er á daginn að bandaríska leyniþjónustan leyndi þingið mikilvægum upplýsingum um aðgerðaáætlun gegn hryðjuverkum. 13.7.2009 08:14
Stefna anda fyrir hótanir og ónæði Sádiarabísk fjölskylda hefur höfðað mál gegn anda nokkrum og sakar hann um að lesa hótanir inn á símsvara, stela farsímum og grýta fjölskylduna þegar hún fer út úr húsi. 13.7.2009 08:07
Bretar fákunnandi í ritningunni Forsvarsmenn bresku kirkjunnar hafa þungar áhyggjur af því hve illa Bretar eru að sér í Biblíunni. 13.7.2009 07:26
Fleiri Danir teknir fyrir lyfjaakstur Fjöldi þeirra, sem teknir eru fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í Danmörku, hefur margfaldast á stuttum tíma. Meðalfjöldinn var lengi vel í kringum 20 á ári en búist er við að í ár verði tilfellin yfir 200. 13.7.2009 07:24
Kim Jong-il með krabbamein í brisi Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur verið greindur með krabbamein í briskirtli. Kínverskar og suðurkóreskar fréttastofur greindu frá þessu um helgina en lengi hefur verið vitað að leiðtoginn norðurkóreski ætti við heilsufarsvanda að stríða. 13.7.2009 07:22
Hyggjast banna reykingar í hernum Bandaríska varnarmálaráðuneytið íhugar nú að setja her landsins í algjört reykingabann, þannig að hermönnum verði bannað að reykja tóbak þegar þeir klæðast einkennisbúningi sínum. 13.7.2009 07:21
Geimskoti frestað á ný Geimskoti Endeavour-geimskutlunnar var frestað enn einu sinni í gær vegna veðurs en til stóð að hún legði af stað í 16 daga leiðangur til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. 13.7.2009 07:19
Tankarnir komnir til Vopnafjarðar Norski flutningapramminn, sem flutti tíu mjölgeyma HB Granda úr Örfirisey í Reykjavík, kom til nýrrar heimahafnar geymanna í Vopnafirði í gærkvöldi. 13.7.2009 07:11
Strandveiðibátar í erfiðleikum Tveir litlir strandveiðibátar lentu í erfiðleikum suður af landinu í gær. Stýrið datt af öðrum þegar hann var á Eldeyjarbanka og sótti björgunarbátur frá Grindavík hann og dró til hafnar. 13.7.2009 07:08
Ók á staur á Akureyri Ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Fiskitanga við höfnina á Akureyri í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn lenti á ljósastaur og braut hann niður. 13.7.2009 07:07
Tvennt slasaðist í bílveltu Tvennt slasaðist töluvert, en þó ekki lífshættulega, þegar jeppi fólksins valt á Mývatnsöræfum undir kvöld í gær. Fólkið var flutt á sjúkrahúsið á Akureyri. 13.7.2009 07:05
Alþjóðasamfélagið brást íbúum Srebrenica Charles English, sendiherra Breta í Bosníu, sagði við minningarathöfn í Srebrenica í gær að alþjóðasamfélagið hefði brugðist íbúum bæjarins fyrir 14 árum. Alþjóðsamfélagið hafi mistekist að koma í veg fyrir að ígasveitir Bosníu-Serba myrtu um 8000 íbúa, flesta karlmenn og drengi, þegar þeir reyndu að flýja heimabæ sinn í júlí 1995. 12.7.2009 23:15
Leiðtogi þjóðernissinna vill sökkva bátum Nick Griffin, flokksleiðtogi breskra þjóðernissinna, telur ekki raunhæft að Bretland verði einungis byggt hvítu fólki. Hann segir slíkt einfaldlega ekki mögulegt í framkvæmd. 12.7.2009 22:00
Blóðbað í Pamplona Nautahlaupið í Pamplóna hefur verið óvenju blóðugt í ár. Þessi vikulanga hátíð á sér meira en hundrað ára sögu. 12.7.2009 19:30
Formlegar viðræður gætu hafist í febrúar Formlegar viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu gætu hafist í febrúar á næsta ári samþykki Alþingi tillögu ríkisstjórnarinnar um að ganga til viðræðna. Utanríkisráðherra vill að fulltrúar allra stjórnmálahreyfinga og hagsmunaaðila komi að samningaferlinu. 12.7.2009 19:07
Hitamet féllu ekki í Reykjavík Óvenjuleg veðurblíða hefur verið á höfuðborgarsvæðinu í dag og raunar víðast á sunnan og vestanverðu landinu. Á Kjalarnesi og Hjarðarlandi í Biskupstungum hafa hitamælar verið að slá í 23 stig. 12.7.2009 17:09
Össur vill að Bjarni hugsi Hótel Valhöll er nú rústir einar eftir brunann í fyrradag. Húsið fuðraði upp á örskömmum tíma og mildi þykir að ekki urðu slys á fólki. Hótelrekstur hefur verið í Valhöll frá árinu 1898 en það var flutt á núverandi stað skömmu fyrir Alþingishátíðina árið 1930. 12.7.2009 19:17
Villtust í stuttbuxum á Sólheimajökli Þrír menn villtust á göngu sinni við Sólheimajökul í gærkvöld. Tveir þeirra voru illa búnir á stuttbuxum. Í tilkynningu frá lögreglunni á Hvolsvelli segir að mennirnir hafi verið í símasambandi en þeim var orðið kalt. Mennirnir komu heilir höldnu niður. 12.7.2009 18:30
Big Ben á afmæli Hinn frægi klukkuturn Big Ben á þinghúsinu í Lundúnum er orðinn eitthundrað og fimmtíu ára gamall. 12.7.2009 18:30
Ísraelar biðja um friðarviðræður Fyrir nokkrum vikum ljáði Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels loks máls á því að palestínumenn fengju að stofna sitt sjálfstæða palestinska ríki. 12.7.2009 18:15
Afar þung umferð til Reykjavíkur Umferð til Reykjavíkur hefur verið að þyngjast síðustu tvo klukkutíma. Lögreglan á Selfossi segir að á milli Hveragerðis og Selfoss sé bíll við bíl en umferðin miði þó vel áfram. Að sögn lögreglunnar á Akranesi hefur umferð á þjóðveginum í grennd við bæjarfélagið þyngst mikið eftir því sem liðið hefur á daginn en þrátt fyrir það hefur hún gengið stóráfallalaust fyrir sig. 12.7.2009 16:57
Allir mælar sýndu meira en 20 stiga hita Einar Sveinbjörnsson, verðurfræðingur, segir að allir tiltækir mælar á höfuðborgarsvæðinu hafi klukkan 14 sýnt að minnsta kosti 20 gráður á celsíus utan Straumsvíkur þar sem hit var 17 gráður. Á bloggsíðu sinni segir að þetta sé ekki algeng upplifun á höfuðborgarsvæðinu. 12.7.2009 15:58
Óvíst hvort að hótel rísi á nýjan leik á Þingvöllum Óvíst er hvort hótel verður reist á Þingvöllum á nýjan leik eftir að Hótel Valhöll brann til grunna. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að allar framkvæmdir þar yrðu að bíða betri tíma. Hún sagði ljóst að eitthvað yrði í framtíðinni gert á Þingvöllum, en ekki væri sjálfgert að það yrði á sama stað eða að þar yrði hótelrekstur. 12.7.2009 15:29
Maóistar felldu 23 lögreglumenn Skæruliðar Maóista á Indlandi myrtu að minnsta kosti 23 lögreglumenn í Sjattisgar héraði í dag. Lögreglumennirnir voru á hefðbundinni eftirlitsferð þegar skæruliðarnir gerðu þeim fyrirsát. 12.7.2009 15:27
Skoðun Ragnheiðar óbreytt - er hlynnt aðildarviðræðum Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er hlynnt aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hún hyggst ekki gefa ekki upp hvaða tillögu hún styður fyrir enn að loknum umræðum um um málið á þingi. 12.7.2009 15:12
Landsmóti UMFÍ slitið Landsmóti Ungmennafélags Íslands sem fór fram um helgina á Akureyri var slitið eftir hádegi í dag þegar Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, afhenti Íþróttabandalagi Akureyrar, sigurvegurum mótsins, bikar. Mótið þótti takast einkar vel upp en að auki hefur veður verið afar gott fyrir norðan. 12.7.2009 14:23
Sleppt úr halda Al-Kaída Svissenskum karlmanni hefur verið sleppt úr haldi liðsmanna Al-Kaída í Afríkuríkinu Malí. Maðurinn hefur verið haldið föngnum í rúmt hálft ár. 12.7.2009 13:58
Réðust samtímis á sex lögreglustöðvar Hópar byssumanna sem taldir eru tilheyra glæpasamtökum réðust í gær inn á sex lögreglustöðvar í Mexíkó. Fimm lögreglumenn féllu og fjölmargir særðust en árásirnar eru taldar tengjast handtöku Arnoldo Rueda, foringja alræmds glæpagengis í vesturhluta landsins. Mennirnir réðust inn á lögreglustöðvarnar samtímis vopnaðir byssum og handsprengjum. 12.7.2009 13:44
Óvíst hvað Birgitta gerir verði tillaga Bjarna felld Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, ætlar að styðja tillögu um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Hún hefur hins vegar ekkert sagt um það hvernig hún greiðir atkvæði um tillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. 12.7.2009 12:56
Árni boðar til íbúafundar vegna Hitaveitu Suðurnesja Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, boðar til íbúafundar um málefni Hitaveitu Suðurnesja. Fundurinn verður haldinn annað kvöld klukkan 20 í Bíósal Duushúsa. 12.7.2009 12:16
Norrænir guðir yfirtaka Eden Iðavellir heitir setur norrænnar goðafræði, sem hefur verið opnað í Hveragerði þar sem áður var Eden. 12.7.2009 12:05
Svínaflensan komin til Færeyja Svínaflensan er komin til Færeyja. Fyrir helgi voru sýni tekin úr öllum börnum og starfsfólki leiksskóla í bænum Hoyvík en faðir barns á leikskólanum hefur greinst með flensuna. Þeir sem boðaðir voru í sýnatöku voru beðnir að koma ekki inn á Landssjúkrahúsið vegna smithættu. Þess í stað voru sýnin tekin úr fólki úti á bílastæði að því er fram kemur í færeyskum fjölmiðlum. 12.7.2009 12:02
Gagnrýnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins Dögg Pálsdóttir lögmaður sem bauð sig fram til Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn í síðustu alþingiskosningum, gagnrýnir flokkinn fyrir að leggja til að farið verði í tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. 12.7.2009 12:00
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent