Formlegar viðræður gætu hafist í febrúar 12. júlí 2009 19:07
Formlegar viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu gætu hafist í febrúar á næsta ári samþykki Alþingi tillögu ríkisstjórnarinnar um að ganga til viðræðna. Utanríkisráðherra vill að fulltrúar allra stjórnmálahreyfinga og hagsmunaaðila komi að samningaferlinu. Í fréttum okkar í gær sögðum við frá því að útlit væri fyrir að þingsályktun ríkisstjórnarinnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið verði samþykkt með 35 atkvæðum gegn 28, þótt það liggi auðvitað ekki fyrir fyrr en við atkvæðagreiðsluna sjálfa í vikunni. Utanríkisráðherra er sannfærður um að tillagan nái fram að ganga. „Ég hef sjálfur reynt að leggja mig fram við það að sannfæra bæði meirihlutann og stjórnarandstöðuna um það að við munum vinna þetta í nánu í samráði við aðrar hreyfingar. Það er mín ósk að að stjórnarandstæðan, hvernig sem þetta fer á Alþingi, að hún hugsi um hag lands og þjóðar. Það er langbest að hún taki þátt í þessum leiðangri með sem bestum hætti." Ef tillagan verður samþykkt verður umsókn Íslands kynnt á utanríkisráðherrafundi Evrópusambandsins í þessum mánuði og síðan yrði umsóknin lögð fyrir leiðtogafund sambandsins í desember. Og síðan í febrúar gætu menn hafist handa við að skipuleggja samningaviðræðurnar sem eru gerðar á svokallaðri ríkjaráðstefnu. Þar eru við annars vegar og hins vegar fulltrúar frá öllum ríkum Evrópusambandsins. Febrúar gæti verið tíminn sem við myndum hefjast handa," segir ráðherrann. Ísland hefur nú þegar innleitt 22 kafla af 35 í sáttmála Evrópusambandsins. „En það eru mál sem standa út og gætu verið erfið og langdregin í samningum. Það er náttúrulega fyrst og fremst fiskurinn og síðan landbúnaður. Ef þú spyrð mig beint út hvenær þessu yrði lokið þá myndi ég kannski segja eftir tvö og hálft til þrjú ár," segir Össur.
Mest lesið Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Innlent Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Innlent Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt Innlent Fleiri fréttir Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Þagnarbindindi í ræðustól Alþingis Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt „Ísland er með öruggustu löndum í heimi“ Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Seinka opnun Vesturbæjarlaugar lítillega Óvenjulegt fyrir göngufólk og sannkallað Spánarveður Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Lokametrarnir á Alþingi og veðurblíða um allt land Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli „Við erum bara happí og heimilislaus“ Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Tenerife-veður víða á landinu Þrjú mál á dagskrá á síðasta þingfundinum „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Fagna áttatíu ára afmæli millilandaflugs Íslendinga Mótmæla heimsókn Ursulu von der Leyen „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi að nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Sjá meira