Erlent

Kim Jong-il með krabbamein í brisi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Kim Jong-il.
Kim Jong-il.

Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur verið greindur með krabbamein í briskirtli. Kínverskar og suðurkóreskar fréttastofur greindu frá þessu um helgina en lengi hefur verið vitað að leiðtoginn norðurkóreski ætti við heilsufarsvanda að stríða. Til dæmis þótti hann óvenju slapplegur þegar hann ávarpaði þjóð sína í síðustu viku í tilefni þess að 15 ár voru liðin frá andláti föður hans, Kim Il-sung. Líklegt þykir að dagar leiðtogans séu taldir en aðeins um fimm prósent þeirra, sem greinast með krabbamein i brisi, lifa það af.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×