Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ók á tæplega 200 kílómetra hraða Lögreglan er búinn að handtaka ökumanninn sem reyndi að komast undan lögreglunni nú fyrir stundu. Þegar hann ók hvað hraðast þá var hann á 180 kílómetra hraða á klukkustund. 6.4.2009 21:55
Minnst tíu lögreglubílar veittu manni eftirför Minnst tíu lögreglubílar veittu bifreið eftirför eftir Vesturlandsveginum nú fyrir stundu en ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglunnar. 6.4.2009 21:16
Boða til mótmæla gegn Rauða Krossinum Hópur aðgerðasinna hafa efnt til mótmæla við höfuðstöðvar Rauða Krossins við Efstaleitið á miðvikudaginn klukkan hálf tólf. Þetta má sjá á vefsvæði á Facebook. Þar er því haldið fram að Rauði Krossinn standi aðgerðarlaus hjá gagnvart þeim flóttamönnum sem beðið hafa um hæli hér á landi. Þá er einnig spurt hversvegna Rauði Krossinn sinni ekki hlutverki sínu. 6.4.2009 22:00
Össur Skarphéðinsson: Orkulindir geta ekki tapast Iðnaðarráðherrann Össur Skarphéðinsson skrifar á bloggsíðu sína nú um kvöldmatarleytið að orkulindir geti ekki tapast hér á landi, skýr lög verndi þær. 6.4.2009 19:33
Ákærður fyrir eignarspjöll við kínverska sendiráðið Ákæru á hendur hugsjónamannins Jan Jiricek var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en hann hellti rauðri málningu á tröppur kínverska sendiráðsins í mars á síðasta ári. 6.4.2009 18:14
Réttlætanlegt að takmarka mótmæli við einkaheimili Þegar mótmælendur safnast saman fyrir utan einkaheimili er talið réttlætanlegt að takmarka fundarfrelsi og tjáningarfrelsi með aðgerðum lögreglu, segir lagaprófessor við Háskóla Íslands. Sjö manns voru handteknir í gær við mótmæli fyrir utan heimili forstjóra Útlendingastofnunar. 6.4.2009 19:18
Álrisar beðnir um álit á stjórnarskrá Íslands Stjórnarskrárnefnd óskaði eftir því að fulltrúar þriggja erlendra stórfyrirtækja veittu umsögn um stjórnarskrá Íslands. Fróðir menn minnast þess ekki að slíkt hafi áður verið gert. 6.4.2009 19:10
Össur áhyggjufullur vegna eldflaugaskots Utanríkisráðherrann, Össur Skarphéðinsson, lýsir yfir alvarlegum áhyggjum yfir tilraunaskoti stjórnvalda Norður-Kóreu en ríkið skaut eldflaug á loft þann fimmta apríl síðastliðinn. Í tilkynningu sem Össur sendi frá sér segir eftirfarandi: 6.4.2009 18:45
Landsbankinn býður upp á óverðtryggð íbúðalán Landsbankinn tilkynnti á blaðamannafundi nú síðdegis að hann hyggst bjóða upp á óverðtryggð íbúðalán og er það liður í lausn bankans til þess að aðstoða heimili í greiðsluerfiðleikum. 6.4.2009 17:17
Rimlahliði og fartölvu stolið Aðfaranótt síðastliðins föstudags var brotist inn í þrjú fyrirtæki í Þorlákshöfn. Þessi fyrirtæki voru verslun Olís við Óseyrarbraut, veitingastaðurinn Svarti sauðurinn við Unubakka og Þjónustustöðin sem einnig er við Unubakka. Úr Olís var stolið skiptimynt og eitthvað af bílahreinsivörum. Úr Svarta sauðnum var stolið skiptimynt og fjórum kössum af Viking bjór. Einskis var saknað úr Þjónustustöðinni nema hugsanlega lítilræðis af skiptimynnt. Sömu aðferð var beitt við að komast inn í fyrirtækin það er með því að spenna upp hurð með einhvers konar áhaldi. 6.4.2009 16:17
Yfir 40% verðmunur á matarkörfunni 41% verðmunur reyndist á matvörukörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 8 verslunum 2.apríl. Vörukarfan var ódýrust í Bónus þar sem hún kostaði 15.158 krónur en dýrust í Samkaup Úrval 21.402 krónur, en verðmunurinn er 6.244 krónur. 6.4.2009 15:56
„Hættum nú þessum kjánaskap góðir þingmenn“ Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vildu vita þegar þingfundur hófst að nýju klukkan þrjú hversu lengi fundurinn ætti að standa. Sturla Böðvarsson óskaði eftir því að hlé yrði gert á fundinum á meðan sjónvarpsútsending með frambjóðendum í Norðvesturkjördæmi fer fram á Ísafirði kvöld. Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, bað þingmenn um að hætta því sem hann kallaði kjánaskap. 6.4.2009 15:49
Framkvæmdum hraðað við ofanflóðavarnir Í kjölfar tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðherra sem samþykkt var í ríkisstjórn um að framkvæmdum við ofanflóðavarnir verði hraðað, hefur ofanflóðanefnd óskað eftir heimild fjármálaráðuneytisins til að bjóða út framkvæmdir við varnargarða í Neskaupstað og í Ólafsfirði. Umhverfisráðherra lagði til við ríkisstjórn að tæpum 1.100 milljónum króna yrði varið í ofanflóðavarnir til viðbótar við þær tæpar 700 milljónir sem ákveðið var að veita í málaflokkinn samkvæmt fjárlögum. 6.4.2009 15:37
Erfiðara að nálgast harðari efni Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi segist eiga vona á aðgerðir lögreglu er varða upprætingu á kannabisræktunum muni skila sér á næstunni í minna framboði á markaði. Samkvæmt nýjustu verðkönnun SÁÁ hefur grammið af kannabis staðið í stað síðustu þrjá mánuði og kostar um 3.400 krónur en amfetamín hefur snarhækkað í verði. Þórarinn segir að amfetamínið hafi hækkað í janúar sem sé óeðlilegt þar sem yfirleitt hafi það gerst í kringum jólin. 6.4.2009 15:13
Yfir 900 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hafa 942 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika borist til Íbúðalánasjóðs. Úrræði vegna greiðsluvanda geta verið af ýmsum toga, t.d. skuldbreyting vanskila, frestun á greiðslum og lenging lána, að fram kemur í tilkynningu frá sjóðnum. 6.4.2009 14:57
Ólafur Ragnar sendir forseta Ítalíu samúðarkveðjur Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í dag sent forseta Ítalíu Giorgio Napolitano samúðarkveðjur sínar og íslensku þjóðarinnar vegna hörmunganna sem orðið hafa í kjölfar jarðskjálftanna í Abruzzo. 6.4.2009 13:56
Kærður fyrir að vara við jarðskjálftanum á Ítalíu Ítalskur jarðvísindamaður sem varaði við jarðskjálftanum sem þar varð í nótt var kærður til lögreglunnar fyrir hræðsluáróður og skipað að taka viðvaranir sínar af YouTube. 6.4.2009 13:52
Tillögu Þorgerðar hafnað Tillaga Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, um að stjórnarskrárfrumvarpið yrði sett aftur fyrir mikilvægari mál á dagskrá Alþingis var felld í dag. Þorgerður taldi brýnt að ræða frumvarp Össur Skarphéðinssonar, iðnaðarráðherra, um heimild til samninga um fyrirhugað álver í Helguvík. 31 þingmenn voru andsnúnir tillögu Þorgerðar en 20 greiddu atkvæði með henni. 12 voru fjarstaddir. 6.4.2009 13:36
Landsbjörg í viðbragðsstöðu vegna jarðskjálftans á Ítalíu Rétt fyrir klukkan 2 í nótt bárust boð frá jarðvísindastofnun Bandaríkjanna um að jarðskjálfti upp á 6.3 á Richter hefði riðið yfir miðhluta Ítalíu. Jarðskjálftinn var mjög grunnt undir borginni L‘Aquila sem er um 90 km norðaustur af Róm. Stjórnendur Íslensku Alþjóðasveitarinnar vöktuðu ástandið frá fyrstu mínútum og öfluðu upplýsinga í gegnum fjölmiðla og tengiliði innan Sameinuðu þjóðanna. 6.4.2009 13:24
Kókaín og sterar í húsleit á Akureyri Í gærmorgun framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit í íbúð hjá karlmanni á fimmtugsaldri og fundust þar um 15 grömm af kókaíni og lítilræði af sterum. Manninum var sleppt og lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst. Einn karlmaður á þrítugsaldri sem var gestkomandi í íbúðinni reyndist svo hafa einn neysluskammt af fíkniefnum á sér. 6.4.2009 13:18
Nagladekkjum fækkað um fjórðung frá 2001 42% bifreiða í Reykjavík voru á nagladekkjum í marsmánuði. Svifryk fór fjórum sinnum yfir heilsuverndarmörk í marsmánuði. Notkun nagla er bönnuð eftir 15. apríl. 6.4.2009 12:51
Allir nema Álfheiður eiga hlut í Smugunni Allir þingmenn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fyrir utan Álfheiði Ingadóttur eiga hlut í vefmiðlinum Smugunni. Meirihluti þeirra á hlut í Friðarhúsi, húsnæði Samtaka hernaðarandstæðinga. Formaður flokksins á 200 þúsund krónu hlut í Efnalaug Suðurlands. 6.4.2009 12:51
Sómalskir sjóræningjar halda áfram að ræna Sómalskir sjóræningjar rændu í dag þrjátíu og tvöþúsund tonna flutningaskipi undan ströndum landsins. Skipið er skráð í Bretlandi en rekið af ítölsku skipafélagi. Áhöfnin mun vera af blönduðu þjóðerni en ekki er vitað hversu fjölmenn hún er. 6.4.2009 12:25
50 látnir eftir jarðskjálftann á Ítalíu Að minnsta kosti fimmtíu manns létu lífið í jarðskjálfanum sem reið yfir mið Ítalíu í nótt. Hundruð bygginga hrundu til grunna. Björgunarsveitir eru nú að leita í rústum hundruða húsa og er búist við að tala látinna eigi eftir að hækka, jafnvel verulega. 6.4.2009 12:20
Samningar við Breta vegna hryðjuverkalaganna í góðum farvegi Utanríkisráðherra segir að samningar við Breta vegna hryðjuverkalaganna séu í góðum farvegi og vonandi þurfi Íslendingar ekki að taka á sig neinn skell vegna Icesave. Þingmaður Framsóknarflokksins segir utanríkisstefnu Samfylkingarinnar bara felast í því að mala. 6.4.2009 12:15
Algjörlega gjörsamlega óskiljanlegt Illugi Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði það algjörlega gjörsamlega óskiljanlegt hvernig ríkisstjórnin þráast við. Þessi orð lét Illugi falla í umræðum um fundarstjórn forseta sem nú fer fram á Alþingi. Hart er tekist á og vilja sjálfstæðismenn fresta umræðum um stjórnarskrá og afgreiða mál er snerta fyrirtæki og heimili í landinu eins og þeir orða það. 6.4.2009 11:45
Belginn skilaði af sér seint í gærkvöldi Gilles Romain Chaterine Classens, 21 árs gamall Belgi sem gripinn var í Leifsstöð í síðustu viku er búinn að skila af sér fíkniefnum sem hann hafði innvortis. Efnunum skilaði Belginn af sér seint í gærkvöldi en hann notaði meðal annars laxerolíu til þess að auðvelda sér verkið. Ekki liggur fyrir hversu mikið af efnum maðurinn hafði innvortis, en það mun liggja fyrir seinna í dag. 6.4.2009 10:40
Lægstu launin í iðnaði - hæst í fjármálaþjónustu Regluleg laun á almennum vinnumarkaði voru að meðaltali 324 þúsund krónur á mánuði árið 2008. Regluleg laun fullvinnandi launamanna voru 355 þúsund krónur að meðaltali og regluleg heildarlaun, það er regluleg laun ásamt yfirvinnu, voru 393 þúsund krónur. Greiddar stundir fullvinnandi launamanna voru að meðaltali 44,7 stundir á viku. Heildarlaun fullvinnandi launamanna voru 454 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Í heildarlaunum eru regluleg heildarlaun að viðbættum ýmsum greiðslum sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili svo sem desemberuppbót og afkomutengdar greiðslur. 6.4.2009 10:23
Segir álver í Helguvík vinna gegn fjölbreyttri atvinnustefnu Álfheiður Ingadóttir þingmaður Vinstri grænna leggst eindregið gegn samþykkt frumvarps um heimild til samninga um álver í Helguvík. Í nefndaráliti Álfheiðar í iðnaðarnefnd bendir hún meðal annars á óvissu um efnahaglseg áhrif þess sem og umhverfisáhrifin. Hún segir þau hvorki hafa verið mtein fyrir tengdar framkvæmdir né fyrir þá 360 þúsund tonna framleiðslu sem samningurinn gerir ráð fyrir, heldur aðeins fyrir 250 þúsund tonna álver. Þá segir Álfheiður að aðeins liggi fyrir heimildir fyrir losun sem svarar 150 þúsund tonna framleiðslu þannig að væntingar um fjölda nýrra starfa og arðsemi framkvæmdarinnar séu ekki byggðar á raunhæfum forsendum. 6.4.2009 10:10
Skíðamenn streyma til Akureyrar um páskana Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri er opið í dag frá klukkan 10 til sjö. Gott veður er í fjallinu, logn og hiti við frostmark. Fjöldi fólks er komið í bæinn til þess að stunda skíðin um páskana að því er segir í tilkynningu frá reksrtraraðila fjallsins. 6.4.2009 10:06
Anders Fogh baðst ekki afsökunar Anders Fogh Rassmussen verðandi framkvæmdastjóri NATO sagði í ræðu í dag að hann myndi einbeita sér að því að bæta samskipti NATO við Múslima. 6.4.2009 09:19
Íslenskir karlmenn verða elstir í heiminum Árið 2008 dóu 1.986 einstaklingar með lögheimili á Íslandi, 981 karl og 1.005 konur. Dánartíðni var því 6,2 látnir á hverja 1.000 íbúa. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Eins og annars staðar í heiminum er meðalævilengd íslenskra karla styttri en kvenna. Íslenskir karlar geta nú vænst þess að verða 79,6 ára gamlir en konur 83,0 ára. 6.4.2009 09:12
Ók á vegg eftir langa eftirför Grunaður ræningi endaði flótta sinn undan lögreglu á Fjóni í Danmörku með því að aka á vegg. Lögregla sá fyrst til mannsins þar sem hann ók með 150 kílómetra hraða á klukkustund á þjóðvegi skammt frá Óðinsvéum. 6.4.2009 08:41
Myndi ekki þekkja í sundur bin Laden og Winonu Ryder Sýnt hefur verið fram á að kennslabúnaður á breskum flugvöllum þekki ekki í sundur Osama bin Laden og Winonu Ryder. 6.4.2009 08:15
Bletturinn á Júpíter fer minnkandi Rauði bletturinn á plánetunni Júpíter hefur minnkað um allt að 15 prósent á nokkrum árum. 6.4.2009 08:10
Mega á ný fjalla um líkflutninga hersins Bandarískum fjölmiðlum hefur nú á ný verið leyft að fjalla um heimflutning á jarðneskum leifum hermanna sem fallið hafa á erlendum vígvöllum. Bann við slíkri umfjöllun var sett á árið 1991 í forsetatíð George Bush eldri þegar Persaflóastríðið geisaði en frá því banni voru nokkrar undantekningar. 6.4.2009 07:35
Skattahækkanir í Bretlandi Búist er við að meðalskattgreiðandi í Bretlandi muni þurfa að greiða 500 pundum, eða tæplega 90.000 krónum, meira í skatt á ári eftir skattahækkanir sem ríkisstjórnin þar hefur boðað og er ætlað að standa undir hluta af þeim lánum sem taka þarf til að draga breskt efnahagslíf á flot á ný 6.4.2009 07:27
40 látnir í jarðskjálftanum á Ítalíu Tala látinna í jarðskjálftanum á Ítalíu í nótt hefur farið hækkandi þegar liðið hefur á morguninn. Nú er talið að 50 hafi látist í það minnsta en skjálftinn mældist 6,3 á Richter. Það er því orðið ljóst að skjálftinn er sá mannskæðasti sem riðið hefur yfir ítalíu frá árinu 1980 þegar tæplega þrjú þúsund manns létust í suðurhluta landsins. 6.4.2009 07:21
Óku á járnplötur á Hellisheiði Tveir bílar skemmdust nokkuð á Hellisheiðinni í gærkvöldi þegar þeir óku á stórar járnplötur sem virðast hafa dottið af flutningabíl. Bílarnir óku á plöturnar með þeim afleiðingum að þeir rispuðust töluvert en enginn slasaðist í ákeyrslunum. 6.4.2009 07:19
Össur neitaði að vera á ljósmynd með Brown Össur Skarphéðinsson neitaði að láta mynda sig með Gordon Brown forsætisráðherra Breta á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í gær. Á bloggsíðu sinni lýsir Össur því þegar hann gekk í flasið á Brown þar sem hann var að láta mynda sig með Sarkozy Frakklandsforseta og Steve Harper, forsætisráðherra Kanadamanna. 6.4.2009 07:18
Eldur í gaskút í Breiðholti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að Asparfelli á níunda tímanum í gærkvöldi vegna elds á fimmtu hæð. Svo virðist vera sem kviknað hafi í gaskút á svölum hússins. 6.4.2009 07:15
Amfetamínverð snarhækkar en kannabis stendur í stað Þrátt fyrir tíðar fréttir af því að lögregla hafi verið að uppræta kannabisverksmiðjur síðustu vikurnar hefur verðið á grammi af maríjuana ekki hækkað að neinu marki samkvæmt verðkönnun SÁÁ en þar er verð á algengustu fíkniefnum kannað mánaðarlega hjá þeim sem skrá sig í áfengis- og fíkniefnameðferð. 6.4.2009 07:07
Efnahagskreppan og atvinnuleysið mikilvægustu verkefnin Efnahagskreppan og atvinnuleysið eru mikilvægustu verkefnin sem Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra þarf að fast við. Þetta sýna niðurstöður nýrrar Gallup könnunar. 5.4.2009 23:24
Myrti fimm börn sín og fyrirfór sér svo Lögreglan í Washingtonríki telur að faðir hafi myrt átta börn sín og svo framið sjálfsmorð þegar að hann komst að því að konan hans væri að yfirgefa hann fyrir annan mann. 5.4.2009 22:00
Talið að kviknað hafi í gaskút Slökkviliðið var kallað að Asparfelli á níunda tímanum vegna elds á fimmtu hæð. Svo virðist vera sem gaskútur hafi sprungið á svölum hússins. Slökkviliðsmenn eru á leiðinni en frekari upplýsingar hafa ekki fengist. 5.4.2009 20:51