Fleiri fréttir

Danskur rektor dæmdur fyrir vörslu barnakláms

Danskur dómstóll dæmdi í dag karlmann á sjötugsaldri, sem gegndi stöðu rektors í áratugi, í 30 daga fangelsisvist fyrir vörslu barnakláms. Maðurinn er sakfelldur fyrir að hafa hlaðið niður 84 myndum með börnum.

Brown frystir ráðherralaunin

Ráðherrar í bresku ríkisstjórninni fá engar launahækkanir út þetta ár. Fréttastofa Sky segir frá þessu í dag og hefur eftir heimildum úr Downing stræti. Þarlenda kjararáðið sem ákveður laun ráðherra á Englandi hafði áður ákveðið að hækka laun ráðherranna um 2,33 prósent en Sky hefur heimildir fyrir því að Gordon Brown forsætisráðherra hafi ákveðið að grípa inn í og láta frysta allar launahækkanir ráðherranna út þetta ár.

Litháar á drekkhlöðnum bíl játuðu innbrot

Litháarnir tveir sem lögreglan á Selfossi handtók í liðinni viku játuðu að hafa brotist inn í sumarbústað í nágrenni Flúða. Alls brutust þeir inn í níu sumarbústaði. Lögreglan varð var við mennina í síðustu viku en það vakti ahygli þeirra hversu sigin afturendi bílsins var.

Vilja að strætó verði nemendum að kostnaðarlausu

Stúdentaráð Háskóla Íslands hvetur sveitarfélög landsins til að bjóða námsmönnum öllum frítt í strætó. Markmið þess að bjóða námsmönnum gjaldfrjálsar strætóferðir er minni umferð einkabíla í borginni, aukin áhersla á notkun almenningssamgangna, umhverfisvernd og aukinn sparnaður fyrir stúdenta.

60 ár frá átökunum á Austurvelli

Samtök hernaðarandstæðinga standa fyrir útifundi á Austurvelli klukkan fimm í dag í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá því Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu um inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið.

Fimmtug kona beit lögregluþjón

Fimmtug kona hefur verið ákærð fyrir að bíta í vinstri þumal lögreglumanns og klórað hann í andlitið í ágúst 2007. Konan hafði verið handtekinn og var færð í fangamóttöku lögreglunnar við Hverfisgötuna í Reykjavík.

Barnshafandi kona var föst í bíl á Oddskarði

Björgunarsveitirnar Gerpir frá Neskaupsstað og Brimrún frá Eskifirði voru kallaðar út um klukkan 4:30 í nótt vegna konu sem sat föst í bíl á Oddskarði, Eskifjarðarmegin, en hún var á leið á sjúkrahús til að fæða barn. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að björgunarsveitarbíll frá Eskifirði með lækni innanborðs hafi verið sendur af stað og var hann kominn að bíl konunnar um klukkustund síðar og var ekið með hana áleiðis til Neskaupsstaðar. Eftir þónokkra svaðilför fæddist lítil stúlka á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupsstað.

Sterar og kannabis á Akureyri

Síðastliðið laugardagskvöld framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit hjá karlmanni á þrítugsaldri. Hjá honum fundust 70 grömm af kannabisefnum og tæki og tól til fíkniefnaneyslu.

Fyrrverandi gjaldkeri ÍA ákærður fyrir fjárdrátt

Þorvarður B. Magnússon, fyrrverandi gjaldkeri Íþróttabandalags Akraness, hefur verið ákærður fyrir fjárdrátt. Þorvarður er grunaður um að hafa dregið sér og notað heimildarlaust í eigin þágu sex milljónir og fimmhundruð

Óvissustig í Ólafsfirði og Siglufirði og á Vestfjörðum

Snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands í samráði við lögreglustjórann á Akureyri hefur ákveðið að setja á óvissustig vegna snjóflóðahættu í Ólafsfirði og Siglufirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.

Mikil aðsókn í sundlaugar Hafnafjarðar

Mikil aðsókn hefur verið að sundlaugum Hafnarfjarðarbæjar það sem af er árinu 2009. Fyrstu tvo mánuði ársins höfðu um 41 þúsund fleiri gestir sótt laugarnar en á sama tíma árið 2008 en alls hafa 69 þúsund gestir synt í laugum bæjarins í janúar og febrúar. Inni í þessum tölum eru ekki skólabörn né sundfólk á vegum Sundfélags Hafnarfjarðar og Fjarðar.

Slys á knattspyrnuleikvangi á Fílabeinsströndinni

Á þriðja tug áhorfenda lést í troðningi á knattspyrnuleikvangi í borginni Abidjan á Fílabeinsströndinni í Afríku í gærkvöldi. Tugþúsundir fylgdust þar með leik heimamanna gegn Malaví.

Stangarstökkvari hljóp nakinn gegnum París

Romain Mesnil, silfurverðlaunahafi á heimsmeistaramóti í japönsku borginni Osaka í hitteðfyrra, á ekki sjö dagana sæla. Hann vantar sárlega styrktaraðila sem gerir honum kleift að stunda íþrótt sína og keppa í henni.

Skaut átta til bana á elliheimili

Átta manns biðu bana þegar vopnaður maður ruddist inn á dvalarheimili aldraðra í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gær og hóf skothríð. Sjö hinna látnu voru vistmenn á heimilinu en áttunda fórnarlambið var hjúkrunarmaður.

Spitfire-vél á uppboð

Spitfire-orrustuflugvél frá síðari heimsstyrjöldinni verður boðin upp hjá Bonhams í London 20. apríl næstkomandi. Búist er við að allt að tvær milljónir punda, jafnvirði 340 milljóna króna, fáist fyrir vélina sem er af árgerð 1944.

Fimm bíla árekstur við Leirvogsá

Enginn slasaðist þegar fimm bílar lentu í árekstri við Leirvogsá á Kjalarnesi í gærkvöldi. Þar var vonskuveður og flughálka og lokaði lögregla veginum um tíma. Víða er orðin ófærð á norðanverðu landinu og á Vestfjörðum og veðurspáin er slæm.

Þáðu átta boðsferðir á tveimur árum

Starfsmenn lífeyrissjóðsins Stafa fóru í átta boðsferðir á árunum 2006-2007. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar fór í ferð til Moskvu haustið 2007 á vegum Glitnis og Lífeyrissjóður bænda sendi mann í sömu ferð.

Meirihluti vill stjórnlagaþing

60,8 prósent segjast telja að kjósa eigi til stjórnlagaþings í haust. 39,2 prósent eru því mótfallin. Stuðningur við stjórnlagaþing er meiri meðal kvenna en karla. 68,1 prósent kvenna er fylgjandi kosningum til stjórnlagaþings, en 54,6 prósent karla. Þá er aðeins munur á afstöðu eftir búsetu, en íbúar á landsbyggðinni eru heldur hlynntari stjórnlagaþingi en íbúar höfuðborgarsvæðisins.

Orð Davíðs dæma sig sjálf

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, segir niðrandi ummæli Davíðs Oddssonar, fyrrverandi seðlabankastjóra, um Svein Harald Øygard seðlabankastjóra dæma sig sjálf.

Kínverjar neita allri aðild

Hópur tölvuþrjóta hefur brotist inn í tölvur stjórnvalda víða um heim og stolið þaðan viðkvæmum upplýsingum. Flestir meðlimir hópsins búa í Kína. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá kanadískri upplýsingastofnun sem hefur eftirlit með hernaði.

Atvinnulausir fá ekki bætur í námi

Atvinnulausir eiga engan rétt til atvinnuleysisbóta meðan þeir eru í fullu námi þar sem reglur Vinnumálastofnunar kveða á um að fólk á atvinnuleysisbótum verði að vera virkt í atvinnuleit. Ef þeir eru í fullu námi teljast þeir ekki virkir í atvinnuleit. Atvinnulausir verða því að sækja um námslán ætli þeir að vera í fullu námi. Atvinnulausir geta hins vegar tekið eitt til tvö námskeið meðan þeir eru á bótum og eru þá virkir í atvinnuleit.f

Samið verði við ESB eins fljótt og hægt er

„Við viljum sambærileg kjör fyrir íslenskan almenning og þar sem best gerist í Evrópu. Besta leiðin að þessu markmiði er að leita samninga við Evrópusambandið um fulla aðild og upptöku evru eins fljótt og kostur er."

Vel heppnuð geimferð

Geimferjan Discovery er komin aftur til jarðar eftir vel heppnaðan þrettán daga leiðangur til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Ferjan lenti á Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída nokkrum klukkustundum eftir áætlun, en heimferðinni hafði verið frestað lítillega vegna slæms veðurs.

Hreinsun hafin á ný í höfninni

Síldveiði hófst að nýju í höfninni í Vestmannaeyjum í gær til að hreinsa höfnina. Samkvæmt rannsókn Hafrannsóknastofnunar eru allt að 90 prósent af síldinni sýkt.

Ákvörðun um sumarannir í vikulokin

„Það er vinna í gangi á öllum fræðasviðum og niðurstöður varðandi það hvað við getum boðið stúdentum upp á í sumar ættu að liggja fyrir í lok þessarar viku," segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands (HÍ). Samkvæmt könnun Stúdentaráðs HÍ gætu þúsundir háskólanema verið án atvinnu í sumar.

Hamid Karzai áfram við völd

Hæstiréttur í Afganistan hefur úrskurðað að Hamid Karzai, forseti landsins, megi halda áfram í embætti sínu þangað til nýr forseti verði kosinn síðar á þessu ári.

Lækka lífeyri um tíu prósent

Nokkrir lífeyrissjóðir munu að öllum líkindum skerða réttindi í vor, vegna slæmrar stöðu í kjölfar bankahrunsins. Þeir eru Gildi, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Almenni lífeyrissjóðurinn, Stafir, Lífeyrissjóður Vestfirðinga og Festa. Almennt munu þeir skerða réttindin um tíu prósent.

Spánverjar íhuga ákærur

Spænskir dómstólar íhuga að ákæra sex fyrrverandi embættismenn í Bandaríkjunum fyrir að hafa lagt fram skjöl sem áttu að réttlæta pyntingarnar sem eru sagðar hafa átt sér stað í Guantanamo-fangabúðunum.

Dæmdur menntaskólakennari hættur

Menntaskólakennarinn Björgvin Þórisson sem í síðustu viku var dæmdur fyrir að hafa barnaklám í fórum sínum hefur verið veitt lausn frá störfum við skólann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Margréti Friðriksdóttur skólameistara Menntaskólans í Kópavogi þar sem Björgvin kenndi.

Framkvæmdarstýra VG: Kannast ekki við styrk frá Geira á Goldfinger

Drífa Snædal framkvæmdarstýra VG segist ekki sjá nein merki þess að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi nokkurn tímann þegið styrk frá Geira á Goldfinger eða fyrirtækjum tengdum honum. Geiri sagði í samtali við Vísi í morgun að hann hefði styrkt alla stjórnmálaflokkana fjárhagslega á síðustu árum.

Vesturlandsvegur um Kjalarnes lokaður

Tímabundin lokun á Vesturlandsvegi við Kjalarnes verður nú framkvæmd vegna veðurs og færðar. Lokunin nær frá Leirvogstungu-hringtorgi að Hvalfjarðargöngum. Ekkert ferðaveður er á þessum slóðum og er fólk beðið um að fylgjast vel með upplýsingum um færð og veður áður en haldið er að stað.

Óásættanlegt að heimilin beri allan skaða hrunsins

Sigrún Elsa Smáradóttir var fyrsti flutningsmaður tillögu um almennar aðgerðir vegna verðtryggðra lána heimilanna á landsfundi Samfylkingarinnar um helgina. Tillagan var samþykkt í dag og segist Sigrún Elsa fagna þeirri niðurstöðu. Hún segir óumdeilt að efnahagshrunið hafi verið ófyrrisjáanlegt fyrir allan almenning

Vilja Sjálfstæðisflokkinn áfram í stjórnarandstöðu

Samfylkingin vill fleiri konur í lykilstöður, að ríkið eigi ráðandi hlut í einum banka, fækka ráðuneytum og Sjálfstæðisflokkinn áfram í stjórnarandstöðu eftir kosningar. Þetta kom fram í stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur nýs formanns flokksins nú síðdegis. Tillaga um að skipta tjóni vegna verðbólgu milli skuldara og lánveitenda var samþykkt.

Síldveiði hafin að nýju í Vestmannaeyjahöfn

Síldveiði er nú hafin að nýju í í höfninni í Vestmannaeyjum en talið er að allt að 90% af síldinni sé sýkt. Sótt var um leyfi hjá sjávarútvegsráðuneytinu til þess að hreinsa upp síldina því að lokinni rannsókn Hafró var talið að um 90% síldarinnar myndi drepast. Lítið annað er því í stöðunni en að hreinsa síldina upp því af henni kemur mikil mengun.

Þorgerður hlaut 80,6% atkvæða í varaformanninn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins með 80,6% greiddra atkvæða fyrir stundu. Alls greiddu 1618 atkvæði. Auðir seðlar voru 92 og ógildir 9.

Mótmælt við Héraðsdóm Reykjavíkur

Um fjörutíu til fimmtíu manns komu saman til mótmælafundar fyrir framan Héraðsdóm Reykjavíkur á fjórða tímanum í dag. Vildi hópurinn vekja athygli á því að í þessari viku átti að senda fimm hælisleitendur aftur til Grikklands.

Konum ekki mismunað vegna fordóma

Konum er ekki mismunað í leiðtogastöður vegna fordóma samkvæmt nýrri rannsókn sem kynnt er í tímaritinu Harward Business Review.

Slæm færð við Húsavík - óvissustig á Vestfjörðum

Lögreglan á Húsavík vill koma þeim skilaboðum til vegfarenda að veður og færð eru tekin að spillast víða í umdæminu. Í Köldukinn eru akstursskilyrði slæm sem og í Ljósavatnsskarði vegna snjókófs. Þá hafa ökumenn einnig lent í vandræðum vegna þessa á Tjörnesi.

Munstrar sig í áhöfn Bjarna Ben

Kristján Þór Júlíusson óskaði Bjarna Benediktssyni innilega til hamingju með kosninguna í formannsstól Sjálfstæðisflokksins í ræðu sem hann hélt eftir að ljóst var að sá síðarnefndi var kjörinn formaður. Hann sagði að nú væru ekki nema sjö sólarhringar síðan hann tilkynnti um framboð sitt og sá tími sem liðinn sé síðan þá hafi verið ævintýri líkastur. Hann sagði það kannski hljóma væmið en í hans augum væri Sjálfstæðisflokkinn hluti af fjölskyldu sinni.

ET í Melbourne?

Það er engu líkara en ET hafi stungið sér niður í heimsókn í Melbourne í Ástralíu.

Bjarni Ben kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson var rétt í þessu kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Bjarni sigraði Kristján Þór Júlíusson nokkkuð örugglega en hann hlaut 58% greiddra atkvæða á móti 40,4% sem Kristján hlaut. Alls voru 1705 atkvæði greidd en auðir seðlar voru 5 og ógildir 2. Bjarni er níundi formaður Sjálfstæðisflokksins.

Sjá næstu 50 fréttir