Innlent

Þáðu átta boðsferðir á tveimur árum

Lífeyrissjóðsstjórar heimsóttu meðal annars Moskvu á ferðum sínum.
Lífeyrissjóðsstjórar heimsóttu meðal annars Moskvu á ferðum sínum.

Starfsmenn lífeyrissjóðsins Stafa fóru í átta boðsferðir á árunum 2006-2007. Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar fór í ferð til Moskvu haustið 2007 á vegum Glitnis og Lífeyrissjóður bænda sendi mann í sömu ferð.

Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn sem Fréttablaðið sendi stærstu lífeyrissjóðum landsins. Þar er óskað sundurliðaðra upplýsinga um boðsferðir, gjafir og risnu á árunum 2005-2008.

Í svari Ólafs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Stafa, kemur fram að starfsmenn sjóðsins fóru í fjórar utanlandsferðir og eina innanlandsferð 2007 og þrjár ferðir 2006. Stjórnarmenn hafi hvorki þegið gjafir né boðsferðir á þessu tímabili. Frá ársbyrjun 2008 séu í gildi reglur um samskipti starfsmanna Stafa og fjármálafyrirtækja. Þær séu „viðmið okkar þegar metið er hvort þiggja eigi kynningarferðir", segir hann. „Meginreglan er sú að Stafir greiði kostnað við ferðir af þessu tagi. Dæmi eru hins vegar um að „gestgjafinn" greiði ferðir og uppihald."

Ólafur segist ekki hafa þegið laxveiðiferðir frá félögum sem sjóðurinn fjárfestir í frá því reglurnar tóku gildi. Fyrir gildistökuna þáði hann eina laxveiðiferð innanlands 2006. Eftir hana hefur hann tvisvar þegið slíkt boð, tveggja daga ferð á vegum verðbréfafyrirtækis 2008 og dagsferð í boði erlends fyrirtækis.

Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar fór í fjögurra daga ferð til Moskvu haustið 2007 á vegum Glitnis. Sigrún Bragadóttir framkvæmdastjóri segir að sjóðurinn hafi þá nýverið fjárfest í sjóðum sem nái til Brasilíu, Rússlands, Indlands og Kína og ferðin eðlilegt framhald af því. Veiði hefur hún afþakkað en þegið jólagjafir frá bönkunum.

Hvorki boðsferðir né gjafir voru þegnar hjá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja. Lífeyrissjóður bænda sendi starfsmann í boðsferð Glitnis til Moskvu í nóvember 2007.- ghs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×