Innlent

Sterar og kannabis á Akureyri

Fíkniefni og sterar fundust á Akureyri um helgina.
Fíkniefni og sterar fundust á Akureyri um helgina.

Síðastliðið laugardagskvöld framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit hjá karlmanni á þrítugsaldri. Hjá honum fundust 70 grömm af kannabisefnum og tæki og tól til fíkniefnaneyslu.

Var maðurinn handtekinn ásamt tveimur konum sem voru hjá honum í íbúðinni. Voru þau vistuð í fangageymslu en síðan sleppt að loknum yfirheyrslum.

Alls komu fjögur fíkniefnamál til kasta lögreglunnar á Akureyri um helgina þar sem hald var lagt á annað hundra grömm af fíkniefnum auk stera. Auk þess voru þrír ökumenn handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×