Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krefjast þess að bæjaryfirvöld virði lýðræði í Hafnarfirði Í ljósi umræðna undanfarið um mögulega stækkun álvers Rio Tinto í Straumsvík ítreka samtökin Sól í Straumi að bæjarvöld í Hafnarfirði virði lýðræðislegar íbúðakosningar sem fram fóru í mars á seinasta ári. 15.10.2008 11:25
Vonast eftir áframhaldandi stýrivaxtalækkunum Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, fagnar þeirri ákvörðun Seðlabankans að lækka stýrivexti um 3,5 prósent og vonast til að áframhald verði á. 15.10.2008 10:33
Frekari lækkun stýrivaxta fer eftir gengisþróun Stýrivaxtalækkun Seðlabankans kemur Gylfa Magnússyni, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, ekki á óvart. Aftur á móti sé Seðlabankanum þröngur stakkur sniðinn því hann geti í rauninni ekki haft stýrivexti undir verðbólgu, að mati Gylfa. 15.10.2008 10:03
Avant ætlar að frysta afborganir af erlendum lánum Avant hf. hefur ákveðið að verða við þeim tilmælum ríkisstjórnarinnar að frysta afborganir lána í erlendri mynt þar til ró kemst á gjaldeyrismarkað. 15.10.2008 10:00
Vilhjálmur Egilsson: Fagna þessum fyrstu skrefum „Ég fagna því mjög að bankinn skuli vera kominn á þessa braut. Þetta eru fyrstu skrefin og það fylgja vonandi fleiri í kjölfarið,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um stýrivaxtalækkun Seðlabankans. „Ég hef talið óvarlegt að hafa muninn á milli Íslands og evrusvæðisins meiri en þrú prósent og þangað liggur leiðin,“ segir Vilhjálmur. 15.10.2008 09:44
Brown vill breyta IMF Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, vill að starfsemi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði endurskipulögð í þeirri viðleitni að koma betra skikki á hið alþjóðlega fjármálakerfi og forða því að lausafjárkreppa lík þeirri sem nú ríkir endurtaki sig. 15.10.2008 09:22
Nýr Glitnir tekur til starfa Nýr Glitnir tók til starfa í morgun undir stjórn Birnu Einarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Glitnis. Þetta staðfesti Árni Tómasson, formaður skilanefndar bankans, í samtali við fréttastofu. 15.10.2008 09:10
Aflinn fimmtungi meiri í september í ár en í fyrra Heildarafli íslenskra skipa í september, metinn á föstu verði, var ríflega 22 prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra samkvæmt samantekt Hagstofunnar. 15.10.2008 09:03
Hvetja öll íslensk almannaheillsasamtök til að beita sér í kreppunni Samtökin almannaheill, sem eru félög og sjálfseignarstofnanir sem vinna að almannaheill á Íslandi, minna á það mikilvæga hlutverk sem sem slík samtök gegna í glímu við erfið áföll sem samfélag okkar verður fyrir. 15.10.2008 08:48
Ný skoðanakönnun sýnir risavaxið forskot Obama á McCain Ný skoðanakönnum á vegum stórblaðisins The New York Times og CBS sjónvarpsstöðvarinnar sýnir að Barak Obama hefur nú risavaxið forskot á andstæðing sinn. 15.10.2008 07:43
Stormurinn Omar breyttist í fellibyl í nótt Hitabeltisstormurinn Omar breyttist í fellibyl í nótt í Karabíska hafinu. 15.10.2008 07:39
Colin Powell tók lagið með hip hop hljómsveit Colin Powell fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna sýndi í gærkvöldi að honum er margt til lista lagt. 15.10.2008 07:37
Betra veður léttir undir slökkvistarfinu í San Fernando dalnum Batnandi veðurskilyrði í San Fernando dalnum í Kaliforníu hafa gert það að verkum að slökkvistarfið við umfangsmikla skógarelda þar gengur nú betur. 15.10.2008 07:34
Óttast að ESB muni draga úr umhverfisvörnum fyrirtækja Umhverfisverndarsinnar óttast nú að á toppfundi Evrópusambandsins í Brussel sem hefst í dag verði dregið úr hömlum á umhverfisvörnum fyrirtækja vegna fjármálakreppunnar í heiminum. 15.10.2008 07:32
Nokkuð af fíkniefnum og sterum fundust á Akureyri Nokkuð af kannabisefnum, kókaíni og amfertamíni, auk rösklega hundrað sterataflna, fannst við húsleit á Akureyri í gær. 15.10.2008 07:24
Upprættu umfangsmikla bruggstarfsemi við Laugaveginn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti umfangsmikla bruggstarfssemi í bakihúsi við Laugaveg í gærkvöldi. 15.10.2008 07:20
Umfangsmikil lögregluaðgerð á Laugavegi Lögregla fór inn í bakhús á milli Laugavegar 67-69 nú undir kvöld með aðstoð slökkviliðsins. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vildi ekkert segja um málið þegar Vísir leitaði upplýsinga en samkvæmt heimildum Vísis var verið að loka umfangsmikilli bruggverksmiðju. 14.10.2008 23:08
Kanna hvort eitrað hafi verið fyrir lögmanni Khodorkovskys Lögregla í Frakklandi hefur hafið rannsókn á því hvort eitrað hafi verið fyrir þekktum rússneskum lögfræðingi í Strassborg á mánudag. 14.10.2008 22:37
Ísland ekki gjaldþrota Skuldir íslenska ríkisins munu ekki gera ríkið gjaldþrota, þrátt fyrir að fjármálakerfið hafi brugðist og krónan hrunið. Þetta sagði Geir Haarde forsætisráðherra í samtali við Bloomberg fréttastofuna í Reykjavík í dag. 14.10.2008 19:37
Möguleiki að sjá hvort fé hafi verið skotið undan Í fyrsta skipti eiga íslensk stjórnvöld raunhæfan möguleika á að komast að því hvort íslenskir athafnamenn hafi skotið fé undan til skattaparadísa í gegnum íslensku bankana í Luxemborg. Stjórnvöld þar í landi hafa tekið yfir rekstur bankanna. 14.10.2008 18:37
Utanríkisráðherra vill að Davíð víki Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir skynsamlegast að bankastjórn Seðlabankans víki svo forsætisráðherra hafi nægt svigrúm til breytinga. 14.10.2008 18:08
Bíða niðurstöðu sérfræðinefndarinnar Niðurstöðu sérfræðinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verður beðið áður en teknar verða ákvarðanir um hvort Íslendingar sæki þangað um aðstoð, að sögn Árna Mathiesen fjármálaráðherra. 14.10.2008 17:47
Krapi og leiðindafæri á Hellisheiði Leiðinlegt færi er nú á Hellisheiðinni og nokkurra sentimetra krapi á veginum. Vegfarandi á Hellisheiði sem hafði samband við Vísi beindi þeim tilmælum til þeirra sem ekki eru komnir á vetrardekk að fara varlega. Hann sagði að nokkra bíla vera í vandræðum á heiðinni, þar væri hríð og allt snjóhvítt. 14.10.2008 17:06
Kebab framleiðandi með mannslík í eldhúsinu Breskum manni hefur verið bannað að stunda matvælaframleiðslu eftir að upp komst að hann hefði framleitt kebab samlokur nærri líki. 14.10.2008 16:54
Vilja að bankastjórn Seðlabankans víki Rafiðnarmenn krefjast þess að nú þegar verði breytt um efnahagsstefnu. Stjórn Seðlabanka sé rúin öllu trausti innanlands sem utan og verður að mati rafiðnarmanna að víkja ásamt bankastjórum. 14.10.2008 16:45
Fagnar orðum Þorgerðar Katrínar Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, fagnar orðum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, í nýlegri grein í Fréttablaðinu. 14.10.2008 16:31
Fundu fíkniefni og stera í íbúð á Akureyri Lögreglan á Akureyri lagði í gær hald á nokkuð af fíkniefnum og sterum í íbúð í bænum. 14.10.2008 16:19
Dæmd fyrir að falsa undirskrift á víxli Kona á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa falsað undirskrift á víxli sem hún afhenti sem tryggingu á leigugreiðslum. 14.10.2008 15:43
Skýrslutöku ólokið 44 dögum eftir meinta árás eiginmanns Lögregla hefur ekki enn tekið skýrslu af konu sem lögð var inn á sjúkrahús í byrjun september en grunur leikur á að eiginmaður hennar hafi gengið í skrokk á henni á heimili þeirra. 14.10.2008 15:42
Fimmtán mánaða dómur fyrir fíkniefnabrot Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 mánuði skilorðsbundna, fyrir fíkniefnabrot. 14.10.2008 15:36
Juncker varar við of mikilli bjartsýni Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar sem gegnir forystuhlutverki í evrumálum innan ESB þessi misserin, segir að bankakreppunni sé ekki lokið þótt hlutabréfaverð hafi hækkað töluvert í dag og í gær. 14.10.2008 15:06
Reyna að endurheimta hluta af verðmætum sem hafa tapast Forsvarsmenn nokkurra af stærri lífeyrissjóðum landsins hafa sent stjórnvöldum bréf þar sem óskað er eftir formlegum viðræðum um kaup á innlendri starfsemi Kaupþings. Þetta var ákveðið eftir fundi forsvarsmanna lífeyrissjóðanna í gærkvöldi og morgun. 14.10.2008 14:26
Sveitarfélög á Bretlandi bjartsýn á að fá greitt út úr bönkunum Ernst&Young, skiptastjórar í Landsbanka og Kaupþingi á Bretlandi, hafa gefið Sambandi sveitarfélaga á Bretlandi góðar vonir um að kröfur á Landsbankann og Kaupþing fáist greiddar. E&Y hafa farið með þrotabú bankanna á Bretlandi og óskaði sambandið eftir því viðræðum við þá í ljósi þess að sveitarfélög víðs vegar um Bretland geymdu fúlgur fjár í bönkunum. Upphæðin sem sveitarfélögin voru með í íslensku bönkunum nemur rúmlega 858 milljónum punda. 14.10.2008 14:16
Seðlabankinn nýtir gjaldeyrisskiptasamninga við norræna banka Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að nýta sér gjaldeyrisskiptasamninga sem gerðir voru við Seðlabanka Noregs og Danmerkur fyrr á árinu. 14.10.2008 14:11
Árni Páll: Landsbankinn verður að axla ábyrgð Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hóf í dag umræðu á Alþingi um fjármálalöggjöfina og beindi orðum sínum til Ágústs Ólafs Ágústssonar, formanns viðskiptanefndar. 14.10.2008 14:11
Orðspor Íslands hefur skaðast mikið Róbert Marhsall aðstoðarmaður samgönguráðherra á sæti í starfshópi sem vinnur að aðgerðaráætlun sem miðar að því að endurheimta traust á Íslandi. Hópurinn er fjölbreyttur en í honum eru m.a. tveir aðrir aðstoðarmenn ráðherra, fólk sem tengist almannatengslageiranum auk aðila frá Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands. Róbert segir ljóst að orðspor Íslands hafi skaðast mikið að undanförnu. 14.10.2008 13:57
Borgin vill semja við SÁÁ Velferðarráð Reykjavíkurborgar vill semja við SÁÁ um rekstur búsetuúrræðis með félagslegum stuðningi. Velferðarráð ákvað 27. ágúst að slíta samningaviðræðum við Heilsuverndarstöðina um rekstur áfangaheimilis í Norðlingaholti. í framhaldinu voru teknar upp að nýju viðræður við SÁÁ, Ekron og Samhjálp um rekstur áfangaheimilisins. 14.10.2008 13:51
Koma á fót upplýsingamiðstöð fyrir almenning vegna kreppunnar Íslensk stjórnvöld hafa komið á fót upplýsingamiðstöð fyrir almenning, fjölmiðla og fyrirtæki vegna þeirra erfiðleika sem nú ríkja í íslensku fjármálalífi. 14.10.2008 13:45
Stöðvuðu hópslagsmál manna á aðkomubát Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í liðinni viku. Þannig var hún kölluð að veitingastaðnum Lundanum aðfaranótt fimmtudagsins vegna hópslagsmála milli manna á aðkomubáti eins og það er orðað. 14.10.2008 13:32
Greiðslukortin á Fjóni voru ekki íslensk Valitor, greiðslukortum Visa, segja að greiðslukort Íslendinga á Fjóni sem var lokað hafi ekki verið íslensk. Í frétt blaðsins Fyens Stiftstidende kemur fram að um eitt þúsund íslenskir námsmenn og ellilífeyrisþegar búsettir á Fjóni í Danmörku hafi ekki getað notað greiðslukort sín. Þeim hafi verið lokað. 14.10.2008 13:22
Hin norrænu ríkin munu styðja við bakið á Íslendingum Danir munu gera það sem í þeirra valdi stendur til þess að styðja við bakið á Íslendingum í þeirri kreppu sem nú er í landinu. Þetta sagði Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, í dag. 14.10.2008 13:18
Verkalýðsforysta reynir að lágmarka skaðann Þúsundir Íslendinga hafa misst vinnuna það sem af er árinu en óttast er að það sé einungis lognið á undan storminum. Verkalýðsforystan berst í bökkum við að lágmarka skaðann og þrýstir á stjórnvöld að halda atvinnulífinu gangandi. 14.10.2008 12:50
Meðallaun hækkuðu um 42% frá 2002-2007 Laun hafa hækkað um 42% að meðaltali á almennum vinnumarkaði frá 2002-2007, að því er fram kemur í Launakönnun ParX viðskiptaráðgjafar IBM, dótturfélags Nýherja. Hækkun launa var mismunandi á milli atvinnugreina, en hún var hæst hjá fjármála- og tryggingafyrirtækjum, eða 57%. Laun í framleiðslu og iðnaði hafa hækkað um 39% og 25% í verslun og þjónustu á sama tímabili. 14.10.2008 12:40
Sakfelld fyrir skemmdarverk í sumarhúsi Karl og kona hafa verið dæmd í fangelsi eftir að þau brutust inn í sumarhús, ældu í sófa og eyðilögðu parket. 14.10.2008 12:31
Útlit fyrir að lífeyrissjóðir óski eftir viðræðum um kaup á Kaupþingshlut Allt bendir til þess að fimm stærstu lífeyrissjóðir landsins óski eftir formlegum viðræðum við ríkisstjórnina í dag um kaup á ráðandi hlut í innlendum hluta Kaupþings, samkvæmt heimildum fréttastofu. 14.10.2008 12:23