Innlent

Fundu fíkniefni og stera í íbúð á Akureyri

MYND/KK

Lögreglan á Akureyri lagði í gær hald á nokkuð af fíkniefnum og sterum í íbúð í bænum.

Um var að ræða um 23 grömm af kannabisefnum, 10 grömm af amfetamíni, 5 grömm af kókaíni og á annað hundrað steratöflur. Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við málið og viðurkenndi annar mannanna að eiga efnin og einnig að hafa selt fíkniefni á Akureyri fyrr í þessum mánuði.

Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005 þar sem koma má á framfæri nafnlausum ábendingum um fíkniefnamál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×