Erlent

Óttast að ESB muni draga úr umhverfisvörnum fyrirtækja

Umhverfisverndarsinnar óttast nú að á toppfundi Evrópusambandsins í Brussel sem hefst í dag verði dregið úr hömlum á umhverfisvörnum fyrirtækja vegna fjármálakreppunnar í heiminum.

Gríðarlegar björgunaraðgerðir Seðlabanka Evrópu til að létta á kreppunni eru taldar verða aðalmál fundarins en þar á einnig að ræða um aðgerðirnar til að koma í veg fyrir frekari hlýnun andrúmsloftsins.

Evrópusambandið segir að loforðin um að draga úr gróðurhúsalofttegundum um 20% fyrir árið 2020 muni standa en menn hafi nú áhyggjur af hinum mikla kostnaði sem fylgir þessum áætlunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×